Lofuðu Vegagerðinni að opna veginn aftur en náttúruvernd ræður för

Land­eig­andi á Sól­heima­sandi þar sem flug­vél­arflak er orðið að vin­sælum ferða­manna­stað segja nátt­úru­vernd valda því að lokað hefur verið fyrir bíla­um­ferð á sand­inum.

Douglas DC-3 flugvél Bandaríkjahers brotlenti á Sólheimasandi árið 1973. Flak vélarinnar situr enn í sandinum og er orðið að vinsælum ferðamannastað þrátt fyrir að vera illa leikið af veðrum og vindum.
Douglas DC-3 flug­vél Banda­ríkja­hers brot­lenti á Sól­heima­sandi árið 1973. Flak vél­ar­innar situr enn í sand­inum og er orðið að vin­sælum ferða­manna­stað þrátt fyrir að vera illa leikið af veðrum og vindum. Mynd: Marcus Holland-Moritz / Flickr

Vega­gerðin stóð fyrir fram­kvæmdum á veg­slóða innan einka­lands á Sól­heima­sandi, frá þjóð­vegi 1 að flug­vél­arflak­inu á sand­inum, síð­ast­liðið sumar. Vega­gerðin hafði fengið vil­yrði frá land­eig­endum á Sól­heima­sandi að opnað yrði fyrir bíla­um­ferð eftir veg­inum þegar fram­kvæmd­unum var lokið en það hefur ekki gerst og stendur ekki til.

Einn land­eig­enda á svæð­inu segir að nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið ráði því að slóðin niður að flug­vél­arflak­inu hafi ekki verið opnuð fyrir almenna bíla­um­ferð. Slóðin sé opnuð fyrir þá sem þurfa að aka niður að flak­inu vegna atvinnu­starf­semi. Ljós­mynd­arar og kvik­mynda­gerð­ar­menn þurfa þess vegna að borga fyrir opnun veg­ar­ins.

Í mars árið 2016 var leið­inni að flug­vél­arflak­inu lokað fyrir bíla­um­ferð vegna mik­ils utan­vega­akst­urs á sand­inum. Í sam­tali við RÚV sagði Benedikt Bragason á Ytri-Sól­heimum, einn land­eig­enda á Sól­heima­sandi, að um tíma­bundna lokun væri að ræða á meðan leitað væri ráða um hvernig bregð­ast ætti við utan­vega­akstri.

Eftir að hlið­inu á veg­inum við þjóð­veg 1 var lokað í mars í fyrra hafa ferða­menn lagt bif­reiðum sínum við þjóð­veg 1 eða á veg­öxl­inni við afleggjar­ann inn á einka­veg­inn og gengið um fjög­urra kíló­metra leið niður að flug­vél­arflak­inu. Nokkur hætta hefur skap­ast vegna þessa og eitt banaslys orðið þegar erlendur ferða­maður varð fyrir bíl sem ók eftir þjóð­veg­inum þegar hann steig úr bíl sínum.

Eftir að ljóst var að veg­ur­inn yrði ekki opn­aður stóð Vega­gerðin fyrir bygg­ingu bílaplans við þjóð­veg­inn sem nýverið var tekið í notkun.

G. Pétur Matth­í­as­son, upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerð­ar­innar, segir í tölvu­pósti til Kjarnans að vega­gerðin niður eftir Sól­heima­sandi hafi verið óvenju­legt verk­efni og að það gefi ekki for­dæmi um vinnu við slóða eða aðra vegi utan vega­kerf­is­ins. „Við höfðum miklar áhyggjur af umferð­ar­ör­yggi á þjóð­veg­inum, sem er á okkar ábyrgð og fórum því í þessar lág­marks­að­gerðir bæði til að koma bílum af þjóð­veg­inum og bæta aðkom­una,“ skrifar Pétur um vega­fram­kvæmd­ina á einka­land­inu. „[...] hætta skap­að­ist við útafakstur þarna og ekki síður inn á akstur vegna öku­tækja sem stöðv­uðu í veg­kant­inum. Það eru iðu­lega margir tugir bíla á stæð­inu.“

Vegurinn hafi verið heflaður síð­asta sumar „[...]í þeirri trú að land­eig­endur myndu opna fyrir almenna umferð að þessu loknu og í sam­ráði við þá,“ skrifar Pétur enn fremur. „Þeir höfðu kvartað yfir því að slóðin var orðin svo léleg að menn voru farnir að keyra um allt þarna. Þess vegna gerðum við þetta með þeim. Þ.e.a.s. hefl­uðum slóð­ann og settum vegstikur í báða kanta með 50 metra milli­bili til að afmarka leið­ina betur.“

Í svar­inu segir að kostn­aður við veg­hefl­un­ina og stikun beggja vegna veg­ar­ins hafi kostað um hálfa milljón krónur. Í dag nýt­ist þessi leið sem göngu­leið að flug­vél­arflak­inu.

Í sam­tali við Kjarnann segir Elín Ein­ars­dóttir, einn land­eig­end­anna, að það sé rétt að Vega­gerð­inni hafi verið gefið lof­orð um að veg­ur­inn yrði opn­aður aftur eftir fram­kvæmd­irnar. Sú fram­kvæmd hafi hins vegar dreg­ist tölu­vert. Land­eig­endur hafi svo ákveðið að opna ekki fyrir umferð eftir lag­færðum vegi eftir stöðu­fund þeirra með full­trúum Vega­gerð­ar­innar og lög­regl­unni.

„Lög­reglan sagði okkur að ef búið er að aka utan veg­ar­ins og marka slóða þá er sá sem á eftir kemur ekki að aka utan vegar,“ segir Elín. Það sé þess vegna ekki hægt að hætta á að opna fyrir umferð bíla. Á stöðu­fund­inum hafi verið ákveðið að land­eig­endur myndu leggja til land­svæði við þjóð­veg 1 þar sem Vega­gerðin gæti byggt bílaplan svo tryggja mætti öryggi veg­far­enda.

Vilja 100.000 krónur fyrir atvinnutengdar ferðir að flakinu

Í ágúst í fyrra voru fluttar af því fréttir að ferða­maður hafi verið rukk­aður um 100.000 krónur fyrir að hafa ekið niður að flaki flug­vél­ar­innar á Sól­heima­sandi. Sá taldi að á sér hafi verið brotið og til­kynnti málið til lög­regl­unnar. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni á Suð­ur­landi var ekki um refsi­vert athæfi að ræða og ekki þótti til­efni til sér­stakrar rann­sóknar á þessu máli.

Elín segir í sam­tali við Kjarnann að land­eig­endur hafi ákveðið að heimtað sé gjald af atvinnu­tengdum ferðum á bílum að flak­inu. Tölu­verður fjöldi kvik­mynda­gerð­ar­manna og ljós­mynd­ara kjósi að nota flug­vél­arflakið sem sviðs­mynd í verkum sínum. Það hafi verið til­fellið í því dæmi sem er nefnt hér að ofan, en það látið líta út í fjöl­miðlum að um almennan ferða­mann hafi verið að ræða. Hið rétta sé að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki eins land­eig­and­ans á svæð­inu hafi leitt ljós­mynd­ara að flak­inu.

Lög­reglan skiptir sér ekki af því að einka­vegi sé lokað enda eru land­eig­endur í fullum rétti til að loka leið­inni fyrir bíla­um­ferð. Lög­reglan hefur haft afskipti af og vísað fólki af þjóð­veg­inum sem hafði stöðvað bíl­ana sína þar. Engum sektum hafi hins vegar verið beitt gegn þeim.

Vegagerðin sýnir meiri varúð

Ellefu land­eig­endur á svæð­inu tóku ákvörðun um að loka og læsa leið­inni niður að flaki flug­vél­ar­innar á Sól­heima­sandi. Eins og áður segir var haft eftir Benedikt Braga­syni, einum land­eig­enda, á RÚV að um tíma­bundna lokun hafi verið að ræða.

Land­eig­endur hafa hins vegar ekki opnað fyrir almenna bíla­um­ferð niður að flug­vél­arflak­inu á ný, þvert á þau lof­orð sem gefin voru starfs­mönnum Vega­gerð­ar­innar. „Eftir þetta hefur verið passað upp á að ekk­ert væri gert nema búið væri að ganga frá skrif­legum samn­ingum,“ skrifar Pétur, upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerð­ar­innar, enn fremur í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Skrif­legir samn­ingar voru svo gerðir þegar bíla­stæðin við mót þjóð­veg­ar­ins og einka­veg­ar­ins voru útbúin. Stæðin eru ekki á landi Vega­gerð­ar­innar. „Þetta gerðum við í haust en það dróst svo lengi sem raun bar vitni því það tók langan tíma að landa þeim samn­ingum. Þá höfðu skap­ast hættu­legar aðstæður vegna bíla sem lögðu í veg­kant­inum og út um land þar sem leiðin að flak­inu var lokuð nema fyrir gang­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár