Þörf á öflugra eftirliti af hálfu hins opinbera varðandi málefni erlends vinnuafls

Samkvæmt nýrri skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála um aðstæður erlends starfs­fólks í ferða­þjón­ustu er árang­urs­rík­asta leiðin til að stöðva alvar­leg brot í geir­anum að stoppa upp í göt í lögum og efla eft­ir­lit opin­berra stofn­ana.

Ýmissa úrbóta er þörf ef takast á að tryggja betur að erlent starfs­fólk í ferða­þjón­ustu verði ekki fyrir brotum á reglum sem gilda á íslenskum vinnu­mark­aði. Auk þess er mis­jafnt hversu vel er staðið að búsetu starfs­manna, þar sem algengt er að vinna og vist­ar­verur erlends starfs­fólks í ferða­þjón­ustu sé sam­tengt.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála sem birt­ist í dag.

Í henni segir jafn­fram að flestir erlendir starfs­menn í ferða­þjón­ustu komi frá aust­ur­hluta Evrópu og þurfi að huga betur að upp­lýs­inga­gjöf og sam­fé­lags­legu örygg­is­neti fyrir suma nýrri hópa starfs­manna. Mikil þörf sé á öfl­ugra eft­ir­liti af hálfu hins opin­bera varð­andi mál­efni erlends vinnu­afls í íslenskri ferða­þjón­ustu og styrkja þar með vinnu­staða­eft­ir­lit stétt­ar­fé­laga um land allt. Einnig sé nauð­syn­legt að fræða betur þá sem hefja ferða­þjón­ustu rekstur og ráða fólk í vinnu.

Höfundar skýrsl­unnar eru Magn­fríður Júl­í­us­dóttir lektor í mann­vist­ar­land­fræði hjá Háskóla Íslands og Íris H. Hall­dórs­dóttir sér­fræð­ingur hjá Rann­sókna­mið­stöð ferða­mála. Þær tóku við­töl við starfs­fólk stétt­ar­fé­laga utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og einnig við erlent starfs­fólk í ferða­þjón­ustu víða um landið. Einnig var unnið með sér­út­keyrslu gagna frá Hagstofu Íslands, til að kort­leggja nánar erlendra rík­is­borg­ara í ferða­þjón­ustu­störfum hér á landi.

Hæst hlutfall á Suðurlandi

Í skýrsl­unni kemur fram að ferða­þjón­usta sé vinnu­afls­frek atvinnu­grein og sam­fara miklum vexti ferða­þjón­ust­unnar síð­ast lið­inn ára­tug hafi ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki þurft að leita út fyrir land­stein­ana að starfs­fólki. Árið 2019 hafi erlendir rík­is­borg­arar verið að störfum í ferða­þjón­ustu á Íslandi frá yfir 70 löndum. Þegar horft sé á skipt­ingu starfs­manna eftir rík­is­fangi og lands­hlutum er hlut­fall erlendra starfs­manna í ferða­þjón­ustu hæst á Suð­ur­landi, eða 44 pró­sent, en Suðurnes og Aust­ur­land fylgja fast á eftir með 42 pró­sent.

Rann­sóknin sýnir að flokka má fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu í þrennt þegar kemur að mál­efnum erlends starfs­fólks:

Fyr­ir­tæki sem eru með hlut­ina í lagi og fara eftir gild­andi kjara­samn­ingum og reglum á íslenskum vinnu­mark­aði. Fyr­ir­tæki þar sem gerð eru mis­tök vegna þekk­ing­ar­skorts eða fljót­færni eig­enda og for­svars­manna. Fyr­ir­tæki sem ítrekað brjóta kjara­samn­inga að því er virð­ist af ásetn­ingi og kom­ast refsi­laust upp með það.

Árangursríkasta leiðin að stoppa upp í göt í lögum og efla eftirlit opinberra stofnana

Að mati starfs­manna þeirra átta stétt­ar­fé­laga sem tóku þátt í rann­sókn­inni er árang­urs­rík­asta leiðin til að stoppa alvar­leg­ustu brotin að stoppa upp í göt í lögum og efla eft­ir­lit opin­berra stofn­ana. Sam­an­lagt hafi þær víð­tækar laga­heim­ildir til að krefj­ast úrbóta og meiri vald­heim­ildir en aðilar vinnu­mark­að­ar­ins.

Í skýrsl­unni segir að ímynd og orð­spor íslenskrar ferða­þjón­ustu bygg­ist á því að fag­mennska sé sýnd á öllum sviðum rekst­urs, þar á meðal í starfs­manna­haldi. Því sé áríð­andi að allir sem koma að skipu­lagi og rekstri ferða­þjón­ustu fari eftir þeim leik­reglum sem aðilar vinnu­mark­aðs­ins hafa sam­þykkt sín á milli. Einnig sé það í sam­ræmi við skuld­bind­ingar Íslands varð­andi Heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem eitt af und­ir­mark­mið­unum er að efla mann­sæm­andi vinnu, með áherslu á far­and­verka­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár