Næstum helmingur nýrra starfa í ferðaþjónustu

Laun­þegum í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu fjölg­aði um 2.900 frá mars í fyrra fram í febr­úar á þessu ári. Það er næstum helm­ingur nýrra starfa á tíma­bil­inu.

Nú eru um 23.400 launþegar sem starfa í einkennandi greinum ferðaþjónustu.
Nú eru um 23.400 laun­þegar sem starfa í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Störfum í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu fjölg­aði hlut­falls­lega mest hér á landi á tíma­bil­inu frá febr­úar 2016 til febr­úar 2017. Störfum í sjáv­ar­út­vegi fækk­aði hins vegar á sama tíma­bili.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands um launa­greið­endur og laun­þega.

Á þessu tólf mán­aða tíma­bili voru að jafn­aði tæp­lega sautján þús­und launa­greið­endur á Íslandi, og hafði þeim fjölgað um 210 eða 1,3 pró­sent frá síð­ustu tólf mán­uðum þar á undan. Á sama tíma­bili greiddu launa­greið­endur að með­al­tali um 181.300 ein­stak­lingum laun, sem er aukn­ing um 4,8 pró­sent og 8.300 ein­stak­linga miðað við árið þar á undan.

Laun­þegum hefur fjölgað mikið milli ára í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu, líkt og fyrr segir. Fjölg­unin nemur 17 pró­sentum í bygg­ing­ar­iðn­aði. Í febr­úar á þessu ári voru 10.700 laun­þegar í bygg­ing­ar­iðn­að­inum og 2.423 launa­greið­endur.

Í ferða­þjón­ustu fjölg­aði laun­þegum um 14 pró­sent á einu ári, og í febr­úar störf­uðu um 23.400 manns í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu. Þetta er fjölgun upp á 2.900 manns, en á sama tíma fjölg­aði laun­þegum í heild­ina um sex þús­und. Það þýðir að tæp­lega helm­ingur nýrra starfa sem urðu til á þessu tíma­bili voru í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ust­unnar.

Laun­þegum í sjáv­ar­út­vegi fækk­aði um 1.600 á tíma­bil­inu, sem er 17 pró­senta fækkun á einu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár