„Löggæsla á Suðurnesjum er ekki kynþáttamiðuð“

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum full­yrðir að lög­gæsla í umdæm­inu sé ekki kyn­þátta­miðuð og þekkir hann ekki dæmi um slíka lög­gæslu.

Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, segir lög­gæslu á Suð­ur­nesjum ekki kyn­þátta­mið­aða. „Og þekki ég ekki dæmi um slíka lög­gæslu,“ segir hann í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um kyn­þátta­mörkun og verk­lag lög­reglu í kjöl­far ítrek­aðra afskipta lög­reglu af 16 ára dreng í apríl í tengslum við leit hennar að stroku­fanga.

[links]Í kjöl­farið kom upp umræða um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu eða kyn­þátta­mörkun (e. racial profil­ing), það er þegar kyn­þáttur og/eða húð­litur er not­aður til þess að skil­greina ein­stak­linga eða hópa fólks og mis­munum gagn­vart þeim rétt­lætt á þeim for­sendum.

Hvorki lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu né lög­reglan á Suð­ur­nesjum halda sér­stak­lega utan um mál þar sem afskipti lög­reglu má mögu­lega rekja til kyn­þátta­mörk­unar.

Líkt og fram hefur komið í umfjöllun Kjarnans um kyn­þátta­mörkun er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um slík mál, þar sem kyn­þátta­miðuð lög­gæsla eða kyn­þátta­mörkun hafi mögu­lega komið við sögu, með leit í kerfi lög­reglu þar sem öll verk­efni lög­reglu eru skráð, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Því er hægt að leita í öllum gagna­grunn­inum að slíkum málum, það muni taka tíma, en í svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að ekki sé hægt að fara í slíka vinnu.

Ríkislögreglustjóri: Verðum að vera vakandi fyrir kynþáttamiðaðri löggæslu

Umræða um kyn­þátta­mörkun og kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu hefur verið áber­andi eftir að lög­regla hafði í tvígang á tveimur dögum afskipti af ungum dreng í tengslum við leit að stroku­fanga. Báðir eru dökkir á hör­und og með svip­aða hár­greiðslu.

Móðir drengs­ins átti fundi með Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra eftir að lög­regla hafði afskipti af drengnum í fyrra skiptið, í strætó, og í kjöl­farið sendi rík­is­lög­reglu­stjóri frá sér yfir­lýs­ingu þar sem sagði að í sam­tal­inu hefðu komið fram mik­il­vægar áherslur sem rík­is­lög­reglu­stjóri ætl­aði að bregð­ast við, meðal ann­ars með því að eiga „sam­tal við sam­fé­lagið um for­dóma“.

Rík­is­lög­reglu­stjóri ræddi málið einnig á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar að lög­reglan verði að vera vak­andi fyrir kyn­þátta­mið­aðri lög­gæslu. Þau skila­boð virð­ast ekki hafa kom­ist til skila til lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum sem kann­ast ekki við kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu í umdæm­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynþáttamörkun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár