FBI var á Íslandi á fölskum forsendum

Ögmundur Jónasson vís­aði lög­reglu­mönnum FBI úr landi sem sögð­ust ætla að hjálpa Íslend­ingum með netárásir. Verkefni þeirra var hins vegar af öðrum toga.

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ögmundur Jónasson, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, vís­aði hópi lög­reglu­manna á vegum banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar, FBI, úr landi í ágúst 2011. Lög­reglu­menn­irnir ætl­uðu að reyna að lokka Julian Assange, stofn­anda og stjórn­anda Wikileaks, úr vari í sendi­ráði Ekvador í London en höfðu komið hingað undir fölsku flaggi.

Ögmundur lýsir þessu í við­tali við evr­ópska vef­mið­il­inn Katoikos.eu sem birt­ist í síð­ustu viku. RÚV.is greindi fyrst frá á íslensku.

Sem inn­an­rík­is­ráð­herra vís­aði Ögmundur lög­reglu­mönn­unum úr landi sum­arið 2011. Kristinn Hrafns­son, tals­maður Wikileaks, greindi frá þessu í Kast­ljós­við­tali árið 2013. Þeir hafi komið hingað undir því yfir­skini að ráð­leggja ætti íslenskum stjórn­völdum um yfir­vof­andi árásir á tölvu­kerfi rík­is­ins. The New York Times greindi síðar frá því að FBI hafi verið á hött­unum eftir Wikileaks-liðum hér á landi.

Ætlunin hafi verið að nota Sigurð Inga Þórð­ar­son, sem er betur þekktur undir nafn­inu Siggi hakk­ari, sem tál­beitu. Sigurður Ingi stað­festi þetta á fundi með alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis árið 2013.

Spurður hvort hann hafi vísað FBI-mönnum úr landi vegna þess að hann grun­aði að verk­efni þeirra hér á landi var að koma Julian Assange fyrir katt­ar­nef, stað­festir Ögmundur að svo hafi verið.

„Það sem gerð­ist í júní 2011 var að banda­rísk yfir­völd komu að máli við okkur og gerðu okkur við­vart um að sam­kvæmt þeirra upp­lýs­ingum væru hakk­arar að reyna að eyði­leggja íslensk hug­bún­að­ar­kerfi,“ segir Ögmundur í við­tal­inu. „Þeir buðu hjálp. Ég var var um mig því ég átta mig á að hjálp­ar­hönd getur auð­veld­lega farið að tosa í strengi.“

„Síðar um sum­arið, í ágúst, sendu þeir flug­vél fulla af full­trúum FBI til Íslands og vildu vera í sam­starfi við okkur í aðgerðum sem ég skildi að hafi verið aðgerð til að koma Julian Assange og WikiLeaks fyrir katt­ar­nef,“ segir Ögmundur. „Vegna þess að þeir höfðu ekki leyfi íslenskra stjórn­valda til að starfa á Íslandi og vegna þess að aðgerðir gegn WikiLeaks voru ekki á verk­efna­list­anum mínum, nema svo síður sé, þá skip­aði ég svo fyrir að öllu sam­starfi með þeim yrði hætt og ég gerði það einnig ljóst að FBI skyldi hætta öllum aðgerðum hér á landi strax.“

Ögmundur seg­ist einnig hafa gert full­trúum FBI ljóst að þeir ættu að yfir­gefa Ísland. „Ég held að þeir hafi farið til ann­ara landa, alla­vega til Dan­merkur,“ segir hann.

Ögmundur Jónasson var þing­maður Reyk­vík­inga og í Suð­vest­ur­kjör­dæmi á árunum 1995 til 2016. Hann varð ráð­herra í ráðu­neytum Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur á árunum 2009 til 2013. Hann gaf ekki kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu í Alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Ögmundur talar í lengra máli um upp­ljóstr­ara og ver­ald­ar­sýn sína í við­tal­inu sem lesa má hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár