Þingmenn óska eftir því að gert verði hlé á þingfundi – „Við verðum að taka þetta alvarlega“

Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, ásamt öðrum þing­mönnum, hefur óskað eftir því að for­menn flokka á þingi setj­ist niður og taki ákvörðun um það að fram fari fag­leg rann­sókn á söl­unni á Íslands­banka í ljósi orða Sigríðar Bene­dikts­dóttur.

Helga Vala Helgadóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala telur að komin sé upp sú staða á Alþingi að for­seti þings­ins eigi að gera hlé á þing­fund­inum til þess að for­menn flokka á Alþingi geti sest niður og tekið ákvörðun um það að fram fari fag­leg rann­sókn á söl­unni á Íslands­banka. Þetta kom fram í máli hennar rétt í þessu undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta á Alþingi.

„Við þurfum að kom­ast að sam­eig­in­legri ákvörðun um það að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis verði skipuð,“ sagði hún en fjöl­margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar tóku undir með henni.

Vísaði Helga Vala í frétt Kjarnans sem birt­ist í dag þar sem Sigríður Bene­dikts­dóttir, sem sat í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið, segir að sala á hlutum í Íslands­banka til lít­illa fjár­festa í lok­uðu útboði brjóti í bága við lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta ríkis í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

[links]Sigríður segir að á grund­velli ákvæða lag­anna verði ein­hver að axla ábyrgð á að hafa heim­ilað söl­una og auk þess þurfi að rifta þessum við­skiptum við ein­stak­linga og félög, enda séu við­skiptin ekki í sam­ræmi við lög og kaup­endum og mið­lendum hefði átt að vera það ljóst sem og því stjórn­valdi sem heim­il­aði þetta.

Helga Vala hélt áfram: „Ég geri þá kröfu að við tökum núna hlé á þing­fundi til þess að for­menn flokka sem eiga sæti á Alþingi geti nú sest niður og kom­ist að sam­komu­lagi um að hér dugir ekk­ert annan en rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til þess að fara ofan í saumana á þessu. Þetta er spill­ing, frú for­seti. Það lítur út fyrir að hér hafi lög verið brotin. Við verðum að taka þetta alvar­lega.“

Margir þing­menn í stjórn­ar­and­stöð­unni tóku undir orð Helgu Völu og ósk­uðu eftir hlé á þing­fundi til að fara yfir málið og að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis.

Uppfært klukkan 16:05: Forseti Alþingis hefur orðið við ósk þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar að gera hlé á þing­fundi og ræða við þing­flokks­for­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár