Breska félagið sem vill leggja raforkusæstreng til Íslands reyndi að kaupa HS Orku

Breska félagið Dis­r­uptive Capital, sem hefur lengi unnið að því að leggja sæstreng á milli Bret­lands og Íslands, hefur átt í við­ræðum við stærsta eig­anda orku­fyr­ir­tæk­is­ins HS Orku um kaup á hlut hans í fyr­ir­tækin. Af kaup­unum verður þó lík­leg­ast ekki.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa átt sér stað við­ræður milli Dis­r­uptive Capital og Ross Beaty, aðal­eig­anda Alterra Power, kanadísks félags sem á tvo þriðju hluta í HS Orku í gegnum sænskt skúffu­fyr­ir­tæki. Við­ræð­urnar hafa aldrei verið form­legar, enda Alterra skráð á hluta­bréfa­markað í Kanada og þá þyrfti að til­kynna um þær þar til að gæta að jafn­ræði fjár­festa. Heim­ildir Kjarnans herma hins vegar að tölu­verð alvara hafi verið í þeim á tíma­bili í fyrra en þær síðan dottið upp fyrir. Þráð­ur­inn var tek­inn upp í vor og voru þá miklar vænt­ingar um árangur. Nú sé staðan hins vegar sú að litlar líkur séu á því að Dis­r­uptive kaupi 66,3 pró­sent hlut Alterra í HS Orku.

Kjarninn hafði sam­band við Ross Beaty, starf­andi stjórn­ar­for­mann Alterra Power, vegna máls­ins. Hann vildi ekki tjá sig um það. Sömu sögu er að segja af fyr­ir­svars­mönnum Dis­r­uptive Capital.

[caption id="attachment_32278" align="alignnone" width="600"] Ross Beaty, starf­andi stjórn­ar­for­maður Alterra Power, aðal­eig­anda HS Orku. Hann vill ekki tjá sig um við­ræð­urnar við Dis­r­uptive Capital.[/caption]

Reyfarakennd saga HS Orku


Miklar vær­ingar hafa verið í kringum eign­ar­hald á HS Orku, sem áður hét Hita­veita Suð­ur­nesja, und­an­farin ár. Í upp­hafi góð­ær­is­árs­ins 2007 var fyr­ir­tækið að fullu í eigu sveit­ar­fé­laga og íslenska rík­is­ins. Ríkið ákvað hins vegar að aug­lýsa 15,2 pró­sent hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu til sölu í byrjun mars það sama ár. Alls bár­ust fjögur til­boð. Það lang­hæsta var frá Geysi Green Energy, orku­út­rás­ar­fyr­ir­tæki sem FL Group, Glitnir og Mannvit höfðu þá nýverið stofnað. Aðrir eig­endur Hita­veit­unnar ákváðu hins vegar að nýta sér for­kaups­rétt og reyna þannig að halda fyr­ir­tæk­inu í opin­berra eigu.

Sumarið 2007 náð­ist mála­miðlun í bar­átt­unni um hita­veit­una með gerð hlut­hafa­sam­komu­lags. Samkvæmt því áttu Reykja­nes­bær, Orku­veita Reykja­víkur og Hafn­ar­fjörður að eiga saman aukin meiri­hluta í fyr­ir­tæk­inu en Geysir Green Energy 32 pró­sent. Orku­veitan átti síðan for­kaups­rétt á hlut Hafn­ar­fjarðar.

Í októ­ber 2007 átti sér svo stað ein umdeild­asti við­skipta­gjörn­ingur síð­ari tíma á Íslandi, þegar Geysir Green Energy, orku­út­rás­ar­fé­lag helstu áhættu­sækn­ustu fjár­festa á Íslandi sem fjár­magnað var að fullu með lánum frá Glitni, átti að sam­ein­ast útrás­ar­armi Orku­veit­unnar, Reykja­vík Energy Invest, betur þekkt sem REI. REI-sam­run­inn gekk hins vegar til baka með látum, eftir að komið hafði í ljós að valdir starfs­menn REI og Orku­veit­unnar, sumir með rík tengsl við kjörna borg­ar­full­trúa, áttu að fá kaup­rétt­ar­samn­inga sem áttu að gera þeim kleift að eign­ast hluti í sam­ein­uðu félagi á kosta­kjörum. Málið varð meðal ann­ars til þess að meiri­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur sprakk og Björn Ingi Hrafns­son, sem setið hafði í stjórn REI, mynd­aði nýjan meiri­hluta með fyrri minni­hluta.

Kanadamennirnir koma


Drama­tík­inni og átök­unum í kringum Hita­veitu Suð­ur­nesja var hins vegar ekki lokið. Þann 1. jan­úar 2008 höfðu níu af þeim tíu sveita­fé­lögum sem áttu hlut í félag­inu í upp­hafi árs 2007 annað hvort selt sig út úr fyr­ir­tæk­inu eða áttu undir eitt pró­sent hlut. Í des­em­ber það ár var ákveðið að skipta Hita­veit­unni upp í tvö fyr­ir­tæki, Orku og Veitur. Í milli­tíð­inni varð hrun og allir eig­endur Hita­veit­unnar urðu fyrir veru­legum skakka­föllum. Reykja­nes­bær, sem átti, og á, í miklum fjár­hagskröggum ákvað að selja eign­ar­hlut sinn í HS Orku til Geysis Green Energy. Kanadíska orku­fyr­ir­tæki Magma keypti svo, í gegnum sænskt skúffu­fé­lag, 10,8 pró­sent hlut í HS Orku af Geysi Green Energy. Við þau kaup var hlutur í íslensku orku­fyr­ir­tæki í fyrsta sinn kom­inn í eigu erlends aðila. For­stjóri og aðal­eig­andi Magma var Ross Beaty.

Orku­veita Reykja­víkur, sem var ekki síður í fjár­hagskröggum á þessum tíma, seldi líka sinn hlut í HS Orku til Magma haustið 2009, eftir gríð­ar­legar deilur um sum­arið. Rík­is­stjórn Íslands reyndi meðal ann­ars að beita sér fyrir því að Magma fengi ekki að kaupa hlut­inn. Í maí 2010 keypti Magma svo hlut Geysis Green Energy í HS Orku og átti eftir 98,5 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu. Geysir Green Energy var þegar þarna var komið við sögu orðið nán­ast gjald­þrota, enda útrás­ar­gleðin liðin, FL Group búið og Glitnir, sem fjár­magn­aði ævin­týrið, far­inn kyrfi­lega á höf­uðið ásamt hinum íslensku við­skipta­bönk­unum. Þegar skiptum á þrota­búi Geysis Green lauk í jan­úar 2015 kom í ljós að 28,5 millj­örðum króna hafði verið lýst í búið. Uppi­staða krafn­anna var í eigu Íslands­banka, sem var reistur á grunni Glitnis.

Modum og Stefnir reyna að kaupa


Vorið 2011 keypti Jarð­varmi, félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, 25 pró­sent hlut í HS Orku. Við það var fyr­ir­tækið ekki lengur að jafn stóru leyti í eigu erlendra aðila. Í febr­úar 2012 ákvað Jarð­varmi að auka við hlut sinn í gegnum hluta­fjár­aukn­ingu og átti eftir það 33,4 pró­sent hlut. Magma, sem hafði þá breytt nafni sínu í Alterra Power í kjöl­far sam­ein­ingar við annað félag, og var nú skráð á hluta­bréfa­markað í Kanada, átti eftir þetta 66,6 pró­sent hlut.

Sumarið 2012 reyndi hópur íslenskra fjár­festa, sem sam­an­stóð af Modum Energy og sjóðum í rekstri Stefnis, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Arion banka, að kaupa 66,6 pró­sent hlut Alterra Power í HS Orku. Ef af kaup­unum yrði átti síðan að stefna að því að skrá HS Orku á íslenskan hluta­bréfa­markað. Við­ræð­urnar voru það alvar­legar að til­kynnt var um þær til kaup­hall­ar­innar í Toronto, þar sem Alterra er skráð, í júní 2012.

Modum Energy, sem leiddi hóp­inn, var stofnað í febr­úar 2012. Fyrir félag­inu fara Alex­ander K. Guð­munds­son og Eldur Ólafsson. Alex­ander var for­stjóri Geysis Green Energy, sem var um nokk­urt skeið stærsti eig­andi HS Orku, þar til jan­úar 2012 Unnið hafði verið að hinum mögu­legu kaupum frá því í jan­úar 2012. Í jan­úar 2013 var hins vegar greint frá því í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipta og efna­hags­mál, að við­ræð­unum væri lokið án árang­urs.

Sæstrengsáhugamenn vildu orkufyrirtæki


Síðan að við­ræð­unum við Modum lauk hefur ekk­ert heyrst um mögu­legar breyt­ingar á eign­ar­haldi HS Orku. Kjarninn hefur hins vegar heim­ildir fyrir því að Dispruptive Capital, sem hefur haft lagn­ingu sæstrengs á milli Íslands og Bret­lands á teikni­borð­inu í lengri tíma, hafi átt í við­ræðum við Alterra Power um mögu­leg kaup á eign­ar­hlut þess síð­ar­nefnda í HS Orku.

Dis­r­uptive Capital hefur lengi unnið að verk­efni sem félagið kallar „Atlantic Superconnection“ og snýst um að leggja eitt þús­und kíló­metra langan sæstreng mili Íslands og Bret­lands sem á að færa um tveimur millj­ónum breskra heim­ila um 1,2 gíga­vött af sjálf­bærri íslenskri orku. Dis­r­uptive Capital seg­ist enn­fremur geta fjár­magnað allt verk­efnið ef vilji sé til þess. Þ.e. lagn­ingu strengs­ins, styrk­ingu orku­flutn­inga­kerf­is­ins, stækkun og bygg­ingu virkj­ana og svo fram­vegis. Stjórn­ar­for­maður Dis­r­uptive Capital er Edmund Truell.

[caption id="attachment_29671" align="alignnone" width="548"] Charles Hendry, fyrrum orku­mála­ráð­herra Bret­lands, hefur unnið sem ráð­gjafi fyrir þá aðila sem vilja leggja sæstreng til Íslands.[/caption]

Einn þeirra sem unnið hefur að verk­efn­inu sem ráð­gjafi félags­ins er Charles Hendry, fyrrum orku­mála­ráð­herra Bret­lands. Hann kom meðal ann­ars til Íslands í apríl síð­ast­liðnum og hélt erindi á opnum fundi Kjarnans og Íslenskra verð­bréfa um raf­orku­sæ­streng milli Bret­lands og Íslands. Þar ræddi Hendry um afstöðu Breta til sæstrengs.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans áttu sér stað við­ræður fyrir um tíu mán­uðum síðan sem leiddu ekki til nið­ur­stöðu. Ljóst er að við­ræð­urnar voru ekki komnar á þann stað að Alterra taldi nauð­syn­legt að til­kynna um þær til kaup­hall­ar­innar í Toronto. Snemma á þessu ári áttu sér síðan stað end­ur­nýj­aðar við­ræður sem miklar vonir voru bundnar við að myndu skila nið­ur­stöðu. Heim­ildir Kjarnans herma að svo hafi ekki verið og að við­ræðum sé nú að öllu leyti lokið.

HS Orka vill losna undan orkusölusamningi


Það verður að telj­ast aug­ljóst að áhugi Dis­r­uptive Capital á HS Orku teng­ist lagn­ingu sæstrengs. Það þyrfti enda að auka orku­fram­leiðslu á Íslandi til að slíkur gæti borið sig.

HS Orka er reyndar bundin af orku­sölu­samn­ingi sem fyr­ir­tækið gerði við Norðurál í apríl 2007 vegna fyr­ir­hug­aðs álvers í Helguvík. HS Orka hefur reynt að losna undan þeim orku­sölu­samn­ingi, sem er upp á 150 mega­vött, enda getur fyr­ir­tækið ekki selt þá orku til ann­ars kaup­anda á meðan að samn­ing­ur­inn er í gildi. Gerð­ar­dómur í Svíþjóð komst nefni­lega að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber 2011 að HS Orku væri ekki skuld­bundið til að standa við samn­ing­inn nema hann skil­aði fyr­ir­tæk­inu við­un­andi arð­semi. Það telur HS Orka ekki að hann gerði og neitar því að ráðst í fram­kvæmdir til að tryggja álver­inu umrædda orku.

Þar sem engin sýni­leg lausn er á vand­anum, og móð­ur­fé­lag Norð­ur­áls virð­ist heldur ekki hafa mik­inn áhuga á að byggja álver í Helguvík, greip HS Orka til þess ráðs í fyrra­sumar að hefja gerð­ar­dóms­ferli til að losna alfarið undan orku­sölu­samn­ing­unum við Norðurál, sem var und­ir­rit­aður fyrir rúmum átta árum. Samkvæmt nýjasta árs­hluta­reikn­ingi HS Orku er búist við að nið­ur­staða liggi fyrir í apríl 2016.

Verði hún HS Orku hag­stæð gæti það þýtt að fyr­ir­tækið verði mun sölu­væn­legra, enda ekki bundið í óhag­kvæmum orku­sölu­samn­ingi. Við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja vel til í orku­geir­anum segja að Ross Beaty hafi staðið mjög fast í lapp­irnar við að losa HS Orku undan þessum samn­ingi, og að það gæti orðið mikil gæfa fyrir íslenska orku­geir­ann gangi það upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár