Plássum fjölgað Leik­skóla­plássum hefur fjölgað mark­visst á kjör­tíma­bil­inu og er fyr­ir­séð að laus pláss verði í vetur fyrir börn sem verða tólf mán­aða eftir að inn­ritun klár­ast í sept­em­ber. Þannig munu ein­hver börn sem verða tólf mán­aða á meðan skóla­ár­inu stendur kom­ast inn fljót­lega eftir afmæl­is­dag­inn. Mynd: Unsplash

Börnin sem er ekki pláss fyrir í borginni

Hundruð barna í Reykjavík hafa ekki víst aðgengi að dagforeldrum eða leikskóla­plássi. Stórfelld uppbygging hefur átt sér stað en það hefur ekki leyst vandann. Flest framboð leggja áherslu á að leysa leik­skólamál borgarinnar án þess að fyrir liggi hvað eigi að gera öðruvísi en núverandi meirihluti. Vanda­málið er bæði húsnæðis- og mönnunar­vandi.

„Við eignuðumst barn á kolröngum tíma ársins en það að ég sé að segja það upphátt yfir höfuð er fáránlegt,“ segir Hólm­fríður Rut Einars­dóttir sem eignaðist barn í desember. Þegar hún og sambýlis­maður hennar, Daði Petersson, voru að klára fæðingar­orlofið stóðu þau frammi fyrir algjöru ráðaleysi um dagvistun fyrir son sinn. Nær engin pláss hjá dagforeldrum laus og margra mánaða bið þar til leikskóla­plássum yrði næst úthlutað.

„Raun­verulegt val okkar var að setja barnið okkar sjö mánaða í dagvistun eða eins og hálfs árs, rúmlega. Við fengum tilboð um pláss en þá hefði hann þurft að fara þangað sjö mánaða, sem við vorum ekki tilbúin til að gera, og þá var okkur boðið að borga til að halda plássinu. Við vorum ekki til í það, að borga fjóra mánuði sem við vorum ekki að nýta. Það var raun­verulega bara valmöguleikinn sem við höfðum og við skiljum það alveg út …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár