Karolina Fund: Myndir sem gefa vísbendingar um aðstæður

Sigurður Mar Hall­dórs­son ljós­mynd­ari hefur lengi notað mynda­vél­ina sem tæki til að skrá­setja atburði og segja sögur vænt­an­legt er smá­sagna­safn eftir hann sem nefn­ist ein­fald­lega Sögur. Bókin er óvenju­leg að því leyti að í henni eru engin orð heldur aðeins ljós­myndir. Myndir sem gefa vís­bend­ingar um aðstæður, atburði eða augna­blik og skilja eftir spurn­ingar sem les­and­inn verður að leita svara við hjá sjálfum sér og spinna upp sínar eigin sögur. Kjarninn hitti Sigurð og tók hann tali.

Hver er þín baksaga?

„Ég er fæddur og upp­al­inn á Miðhúsum á Egils­stöðum. Ég ætl­aði upp­haf­lega að verða smiður eins og aðrir í fjöl­skyld­unni en lang­aði samt í Mynd­lista- og hand­íða­skól­ann. Þorði hins­vegar ekki í inn­töku­próf því mér fannst ég svo lélegur að teikna. Ég var því ekki stór þegar ég tók mér mynda­vél í hönd og lærði að fram­kalla filmur og stækka svart­hvítar myndir. Eftir stúd­ents­próf fékk ég tæki­færi sem ljós­mynd­ari á Þjóð­vilj­anum sál­uga og fór síðan til náms í ljós­myndun í Gauta­borg. Þegar ég kom til baka eftir nám þá flutt­ist ég til Egils­staða og starf­aði jöfnum höndum við smíðar og ljós­myndun. Síðustu 16 ár hef ég búið á Höfn í Horna­firði og kenni m.a. ljós­myndun við Fram­halds­skól­ann í Austur-Skafta­fells­sýslu og í fjar­kennslu við Mennta­skól­ann á Trölla­skaga. Ég er félagi í FÍSL, Félagi íslenskra sam­tímaljós­mynd­ara og hef tekið þátt í tveimur sam­sýn­ingum félags­ins en einnig haldið nokkrar einka­sýn­ingar.“

Hvers konar verk er ‘Sögur’?

„Þetta er ekki venju­leg ljós­mynda­bók sem maður flettir og dáist af fal­legum myndum. Meira eins og smá­sagna­safn nema það eru engin orð bara myndir. Mynd­irnar gefa vís­bend­ingar um atburði eða augna­blik sem les­and­inn getur notað til að skálda upp sínar eigin sögur eða í það minnsta velta fyrir sér hvað gæti hugs­an­lega verið að ger­ast á mynd­unum. Mynd­irnar eru mjög ólíkar enda segja þær mjög ólíkar sögur. Allar sög­urnar fjalla um konur enda hefur verið nægt fram­boð af sögum af körlum í gegn um tíð­ina en sögur af íslenskum alþýðu­konum eru mun sjaldnar sagðar.“

Hver er sagan á bak­við verkið?

„Það er eig­in­lega áhugi minn á þjóð­sögum, ævin­týrum og goð­sögum sem er kveikjan að þessu öllu saman. Mig lang­aði að vinna með þennan sagna­arf. Ég hef lengst af sýslað við að skrá­setja sam­tím­ann með mynda­vél­inni, taka frétta­myndir eða dokúm­entera ein­hverja atburði. Þá er maður að segja frá með mynda­vél­inni og mynd­irnar eiga að geta staðið einar og óstuddar og gefið skýra mynd af atburð­inum.

Í bók­inni sný ég þessu eig­in­lega við og mynd­irnar eru augna­blik í atburða­rás sem eng­inn veit hver er þannig að myndin segir alls ekki alla sög­una. En auð­vitað er ég með ein­hverja sögu eða aðstæður í huga. Stundum eru það þjóð­sagna­per­sónur eða goð­sagna­verur sem eru kveikjan að mynd­unum en einnig ákveðnir staðir sem mér fannst kalla á ein­hverjar aðstæður. Á marga þess­ara staða kom ég oft með hund­inn minn og meðan hann hljóp og hnus­aði, tók ég myndir á sím­ann og pældi í hvað hefði kannski gerst á þessum stað. Svo voru ákveðnir hlutir sem mig lang­aði að hafa með á mynd eins og fjós­lukt sem afi minn í Loð­mund­ar­firði átti og myndin spannst í kring um hana.

Við mann­fólkið höfum alltaf skemmt okkur með því að segja sögur og þær hafa gengið mann fram af manni og orðið að þjóð­sögum. Í seinni tíð eru fáir að lesa þjóð­sögur eða ævin­týri og við fáum okkar skammt með því að horfa á Game of Thrones eða álíka þætti sem er frá­bært. Gallinn er hins­vegar sá að þar er verið að mata okkur á sögum og ég held að við séum að missa smám saman hæfi­leik­ann til að láta hug­mynda­flugið blása okkur í brjóst nýjar og skemmti­legar sögur. Ég fór þá leið í bók­inni að búa til myndir sem eru eins og augna­blik í ein­hverri sögu sem eng­inn veit hver er. Mig lang­aði að skapa myndir sem hefðu þann eig­in­leika að áhorf­and­inn færi að spek­úlera í hvað væri eig­in­lega að ger­ast.

Nú stendur yfir söfnun á hóp­fjár­mögn­un­ar­vefnum Karolina Fund þar sem unn­endur sagna­listar og ljós­mynd­unar geta eign­ast skemmti­lega og öðru­vísi bók og stuðlað að því að fjár­magna prentun hennar. Þar sem bókin bygg­ist á myndum en ekki orðum getur hún gagn­ast hverjum sem er, óháð móð­ur­máli eða lestr­ar­kunn­áttu.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár