Íslenska ríkið dæmt til að greiða miskabætur vegna ómannúðlegrar meðferðar lögreglu á útlendingi

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur kveðið upp dóm í máli Tyrkja sem taldi afskipti lög­reglu af sér almennt hafa ein­kennst af tungu­mála­örð­ug­leikum og for­dómum gagn­vart múslímum.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi íslenska ríkið í lok maí síð­ast­lið­ins til að greiða Tyrkja af kúrdískum upp­runa 500.000 krónur í miska­bætur vegna þving­un­ar­ráð­staf­ana lög­reglu og athafna lög­reglu í tengslum við saka­mál á árinu 2018 þar sem stefn­andi hafði stöðu sak­born­ings. Málin voru síðar öll felld niður á rann­sókn­ar­stigi. Gjaf­sókn­ar­kostn­aður manns­ins greið­ist enn fremur úr rík­is­sjóði, þar með talin þóknun lög­manns hans að fjár­hæð 2.157.600 krónur.

Maðurinn, sem er tyrk­neskur rík­is­borg­ari en af kúrdískum upp­runa, taldi afskipti lög­reglu af sér almennt hafa ein­kennst af tungu­mála­örð­ug­leikum og for­dómum gagn­vart múslímum. Hann krafð­ist þess að ríkið myndi greiða honum bætur að fjár­hæð 3.252.250 krónur með vöxtum, sem og máls­kostnað.

Íslenska ríkið hafn­aði frá upp­hafi bóta­skyldu og vís­aði til þess að mað­ur­inn hefði sjálfur stuðlað að eða valdið aðgerðum lög­reglu sem hefði að öllu öðru leyti verið rétt­læt­an­legar.

Þá taldi mað­ur­inn að þving­un­ar­ráð­staf­anir í máli hans hefðu ekki verið í nægi­legu sam­hengi við hegðun hans og þá hátt­semi sem honum var gefin að sök.

Maðurinn taldi að ljóst væri að lög­regla og önnur stjórn­völd hefðu í máli hans brotið gegn með­al­hófi við val á þving­un­ar­ráð­stöf­unum og þannig sýnt af sér sak­næma og ólög­mæta hátt­semi sem hefði valdið honum tjóni, sem íslenska ríkið bæri ábyrgð á með vísan til almennu sak­ar­regl­unnar.

Þá taldi hann að bein orsaka­tengsl væru á milli and­legs tjóns sem hann hefði orðið fyrir og hinnar bóta­skyldu hátt­semi sem lýst er hér að framan. Hann kvað málin hafa valdið sér veru­legu hug­ar­angri, kvíða og hræðslu und­an­farið ár og haft áhrif á dag­lega líðan hans og fjöl­skyldu­líf.

Líta bæri til þess að um umfangs­miklar aðgerðir hefði verið að ræða sem fólu í sér víð­tæk inn­grip í frið­helgi einka­lífs hans. Að síð­ustu taldi mað­ur­inn einnig að rétt væri að líta til þess að marg­þættar rann­sókn­ar­að­gerðir lög­reglu hefðu engan árangur borið en öll málin voru felld niður gagn­vart honum.

Heimilt að beita manninn valdi til þess að tryggja öryggi hans og annarra

Í nið­ur­stöðu dóms­ins segir að þann 13. maí árið 2018 hafi lög­regla verið kölluð að heim­ili fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu manns­ins eftir til­kynn­ingu frá henni. Segir í stefnu að mað­ur­inn hafi verið búinn að skera sig á kvið og læsa sig inni á bað­her­bergi þegar lög­reglu bar að garði. Þá ber gögnin máls­ins og fram­burði fyrir dómi saman um að þegar lög­regla kom á stað­inn hafi mað­ur­inn verið æstur, blóð­ugur og búinn að hella yfir sig eld­fimu efni. Einnig kom fram að hann hafði skorið sig með dúka­hníf í við­ur­vist lög­reglu­manna sem reyndu að ræða við hann og hót­aði hann að kveikja í sér. Máttu lög­reglu­menn því allt eins gera ráð fyrir því að stefn­andi væri vopn­aður.

Eins og aðstæðum var háttað í umrætt sinn telur dóm­ari engan vafa ríkja um að lög­reglu­mönnum, það á meðal sér­sveit­ar­mönnum, hafi verið heim­ilt að beita mann­inn valdi til þess að tryggja öryggi hans og ann­arra og afstýra því hættu­á­standi sem hegðun hans olli.

„Ekki er á það fall­ist að sú aðgerð að skjóta 40 mm þar til gerðri kúlu að stefn­anda hafi verið úr hófi eða verði með ein­hverjum hætti virt lög­reglu­mönnum til sakar, hvorki með vísan til reglna lög­regl­unnar um vald­beit­ingu né almenns sak­næm­is­mæli­kvarða. Ekki er um það deilt að eftir hand­töku var stefn­andi fluttur á geð­deild og honum sleppt að lok­inni aðhlynn­ingu án frek­ari eft­ir­mála af hálfu lög­reglu. Var sá tími sem stefn­andi tald­ist hand­tek­inn þar af leið­andi skammur,“ segir í dómnum.

Að mati dóm­ara verður hand­taka manns­ins í umrætt sinn og vald­beit­ing henni tengd alfarið rakin til stór­háska­legrar hátt­semi hans sjálfs. Vegna þess­ara atvika átti mað­ur­inn því hvorki rétt á bótum, að því er fram kemur í dómnum.

Fékk símann sinn til baka eftir 11 daga

Varðandi annað atvik er snerti hald­lagn­ingu á síma manns­ins 13. maí 2018 „liggur fyrir að athafnir lög­reglu byggð­ust á grun um að stefn­andi hygð­ist nota myndir af fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni, sem hugs­an­lega voru geymdar í sím­anum, í refsi­verðum til­gangi. Hvað sem þessu líður, svo og þeim vafa sem uppi er um það hvernig sím­inn komst nákvæm­lega í hendur lög­reglu, er ekki komin fram við­hlít­andi sönnun fyrir því að stefn­andi hafi valdið eða stuðlað að þess­ari aðgerð lög­reglu.“

Þá telur dóm­ari að nokkuð langur tími hafi liðið frá því að hald var lagt á sím­ann þar til mað­ur­inn fékk hann afhentan til baka, eða 11 dagar. Er þá litið til þess að stefn­andi hafi veitt sam­þykki fyrir afritun sím­ans og greiddi þannig fyrir afritun hans. Dómurinn fellst á að mað­ur­inn eigi rétt á ein­hverjum miska vegna téðrar rann­sókn­ar­að­gerðar, en hann hefur ekki uppi fjár­kröfu af þessu til­efni.

Rétt á bótum vegna handtöku

Þriðja atvikið átti sér stað þann 28. maí 2018 en þá var mað­ur­inn hand­tek­inn í fram­haldi af því að dóttir fyrrum sam­býl­is­konu manns­ins hafði haft sam­band við lög­reglu og til­kynnt að hann væri ölv­aður á bif­reið að elta móður hennar. Var mað­ur­inn hand­tek­inn á heim­ili sínu í fram­haldi af til­kynn­ing­unni, meðal ann­ars vegna gruns um ölv­un­arakstur, og færður á lög­reglu­stöð.

Á það verður fall­ist með íslenska rík­inu að eins og atvikum var háttað hafi verið nægi­legt til­efni fyrir lög­reglu að færa mann­inn á lög­reglu­stöð til blóð­rann­sóknar. „Hvað sem þessu líður er ekk­ert komið fram um að stefn­andi hafi valdið eða stuðlað að hand­tök­unni með ein­hverjum hætti.“ Á hann því rétt á bótum vegna hand­tök­unnar enda er ekki deilt um að málið var síðar fellt niður, að því er fram kemur í dómnum.

„Við mat á fjár­hæð bóta verður að horfa til þess að stefn­anda var haldið í nokkurn tíma á lög­reglu­stöð­inni, þ.á m. var stefn­andi hafður í haldi í fanga­klefa í u.þ.b. einn og hálfan klukku­tíma eftir að töku síð­ara blóð­sýnis lauk án þess að fram hafi komið við­hlít­andi skýr­ingar af hálfu stefnda á nauð­syn þeirrar vist­unar,“ segir í dómnum. Eins og ástandi manns­ins var háttað í umrætt sinn verður lög­reglu hins vegar ekki gefið sjálf­stætt að sök að hafa gert leit á stefn­anda áður en hann var vistaður í fanga­klefa.

Um að ræða erlendan mann með skerta burði til samskipta

Þá kemur fram að fyrir liggi við­ur­kenn­ing íslenska rík­is­ins á því að mis­tök hafi orðið við með­ferð máls manns­ins í umrætt sinn með því að ítrek­uðum beiðnum hans um aðstoð lög­manns og túlks hafi ekki verið sinnt, þó þannig að ríkið vísi til þess að mað­ur­inn hafi virst, þrátt fyrir allt, hafa haft nægi­lega kunn­áttu í ensku til að ræða við lög­reglu­menn og átta sig sak­ar­giftum. Þá mót­mælir íslenska ríkið því að mað­ur­inn hafi orðið fyrir rétt­ar­spjöllum vegna skorts á lög­manns­að­stoð.

Að mati dóms­ins verður að horfa til þess að réttur hand­tek­ins manns til lög­manns­að­stoðar heyrir til grund­vall­ar­rétt­inda hans. Þótt ekki hafi verið um að ræða form­lega skýrslu­töku af stefn­anda sé eng­inn vafi á því að lög­reglu­mönnum hafi borið að bregð­ast við ítrek­uðum óskum hans þar að lút­andi. Þá telur dóm­ur­inn að brot lög­reglu hafi verið þeim mun alvar­legra að um var að ræða erlendan mann með skerta burði til sam­skipta og skiln­ings á þeim aðstæðum sem uppi voru. Var því í reynd einnig vegið að rétti manns­ins til rétt­látrar máls­með­ferðar.

Gild ástæða til afskipta lögreglu en ekki handtöku

Í fjórða lagi var mað­ur­inn hand­tek­inn þann 10. nóv­em­ber 2018 og eru máls­at­vik að mestu ágrein­ings­laus. „Í mál­inu verður að leggja til grund­vallar að á þessu tíma­marki hafi nálg­un­ar­banni stefn­anda gagn­vart fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu hans verið lokið. Ekki er fram komið með óyggj­andi hætti, gegn mót­mælum stefn­anda, að hann hafi í reynd hótað fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni og syni hennar eða brotið gegn áður­greindu nálg­un­ar­banni meðan á því stóð. Gildir þá einu þótt í úrskurði hér­aðs­dóms 15. nóv­em­ber 2018, þar sem stefn­andi var að nýju lát­inn sæta nálg­un­ar­banni, sé því slegið föstu að rök­studdur grunur sé um refsi­verða hátt­semi stefn­anda að þessu leyti.“

Þótt dóm­ur­inn telji að gild ástæða hafi verið til afskipta lög­reglu af stefn­anda í umrætt sinn, meðal ann­ars vegna þeirra atvika sem á undan höfðu gengið, jafn­gildi það ekki því að mað­ur­inn hafi valdið eða stuðlað að hand­tök­unni. Þá sé hald­laus sú máls­á­stæða íslenska rík­is­ins að hand­taka manns­ins við þessar aðstæður hafi mátt helg­ast af því að koma hafi átt í veg fyrir áfram­hald­andi brot, enda hafi þá lög­reglu borið að leiða mann­inn án und­an­dráttar fyrir dóm­ara, krefj­ast gæslu­varð­halds og að því búnu gefa taf­ar­laust út ákæru.

Var látinn dvelja í 17 klukkustundir í fangaklefa klæðalaus, án dýnu og viðhlítandi aðhlynningu

Af gögnum máls­ins verður ráðið að stefn­andi hafi verið í haldi lög­reglu í um ?það bil 24 klukku­stundir og fyrst tekin af honum stutt skýrsla undir lok gæsl­unnar. „Jafnvel þótt fall­ist verði á að ölvun stefn­anda og fram­koma hans í haldi lög­reglu, meðal ann­ars sú hátt­semi hans að vera með hnífs­blað innan klæða og skera sig í upp­hand­leggi, hafi tafið fyrir skýrslu­töku telur dóm­ur­inn þennan tíma veru­lega úr hófi miðað þær sak­ar­giftir sem hér var um að ræða.“

Þá telur dóm­ur­inn að ekki hafi komið fram við­hlít­andi skýr­ingar á því hvers vegna ekki var aflað aðstoðar geð­heil­brigð­is­starfs­fólks fyrr en að því er virð­ist eftir tæp­lega 20 klukku­stunda gæslu hjá lög­reglu.

Í dómnum kemur fram að það verði að telja sannað að mað­ur­inn hafi verið lát­inn dvelja í um það bil 17 klukku­stundir í fanga­klefa klæða­laus, án dýnu og án þess að fá við­hlít­andi aðhlynn­ingu. Í þessu hafi falist harð­ræði lög­reglu ólög­mæt mein­gerð gagn­vart frelsi og per­sónu manns­ins.

„Samkvæmt öllu fram­an­greindu verður stefn­andi dæmdur til að greiða stefn­anda miska­bætur sem þykja hæfi­lega ákveðnar 500.000 krónur. Er þá að stærstum hluta litið til ómann­úð­legrar með­ferðar lög­reglu á stefn­anda 10. til 11. nóv­em­ber 2018,“ segir í dómnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár