Helmingur landsmanna telur fréttir af alvarleika hlýnunar jarðar réttar

Karlar halda frekar en konur að fréttir af alvar­leika hlýn­unar jarðar séu almennt ýktar, en um þriðj­ungur karla telur þær vera það.

Aðeins helm­ingur lands­manna telur að fréttir af alvar­leika hlýn­unar jarðar séu almennt réttar. Aðrir skipt­ast í tvær fylk­ingar þar sem ríf­lega fjórð­ungur telur að þær séu almennt ýktar og nær fjórð­ungur telur að þær séu almennt van­metnar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri umhverfiskönnun Gallup. Hlutfall þeirra sem telja að fréttir af alvar­leika hlýn­unar jarðar séu almennt ýktar er hærra nú en fyrir tveimur árum.

Karlar halda frekar en konur að fréttir af alvar­leika hlýn­unar jarðar séu almennt ýktar, en um þriðj­ungur karla telur þær vera það. Fólk á aldr­inum 45-66 ára telur sömu­leiðis frekar en aðrir ald­urs­hópar að frétt­irnar séu almennt ýktar.

[links]Í til­kynn­ingu frá Gallup í síð­ustu viku kom fram að greina mætti almenna við­horfs­breyt­inguvarð­andi ástæður fyrir hlýnun jarðar. Þeim Íslend­ingum fjölgar sem telja að hækkun á hita­stigi jarðar síð­ustu öld sé meira vegna nátt­úru­legra breyt­inga í umhverf­inu. Nú telja 23 pró­sent lands­manna að svo sé en 66 pró­sent telja hækk­un­ina vera vegna meng­unar af manna­völdum.

Umhverfiskönnun Gallup verður á Umhverf­is­ráð­stefnu Gallup í Hörpu á morgun, 19. febr­úar. Í rann­sókn­inni voru lands­menn spurðir um við­horf og hegðun í tengslum við umhverf­is­mál og lofts­lags­breyt­ingar. Ráð­stefnan er haldin í sam­starfi við Krónuna, Reykja­vík­ur­borg, Arion banka, Lands­virkjun, Umhverf­is­stofnun, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og Icelandair Hotels.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár