Greina má almenna viðhorfsbreytingu varðandi ástæður fyrir hlýnun jarðar

Íslend­ingum fjölgar sem telja að hækkun á hita­stigi jarðar sé meira vegna nátt­úru­legra breyt­inga.

Þeim Íslend­ingum fjölgar sem telja að hækkun á hita­stigi jarðar síð­ustu öld sé meira vegna nátt­úru­legra breyt­inga í umhverf­inu. Nú telja 23 pró­sent lands­manna að svo sé en 66 pró­sent telja hækk­un­ina vera vegna meng­unar af manna­völdum.

Þetta kemur fram í nýrri umhverfiskönnun Gallup sem birt var í dag.

Er þetta tölu­verð breyt­ing frá fyrri könnun fyrir rúmu ári síðan þegar 14 pró­sent töldu hækkun á hita­stigi jarðar vera vegna nátt­úru­legra breyt­inga í umhverf­inu.

Í könn­un­inni kemur fram að við­horfs­breyt­ingin sé almenn, en þeim sem segja hækkun á hita­stigi jarðar vera vegna nátt­úru­legra breyt­inga fjölgar í flestum hópum milli mæl­inga en helst er hún hjá fólki á aldr­inum 45 til 55 ára þar sem hún lækkar um 20 pró­sentu­stig milli mæl­inga.

Ólafur Elín­ar­son, sviðs­stjóri mark­aðs­rann­sókna Gallup, segir að gríð­ar­legt mik­il­vægt sé að fylgj­ast með þróun á við­horfum til lofts­lags­mála og í raun nauð­syn­legt að hafa gögn um stöð­una.

„Þessi nið­ur­staða sýnir að við­horf geta breyst á skömmum tíma og virð­ast nú fleiri Íslend­ingar telja að hækkun á hita­stigi jarðar sé af nátt­úr­unnar völdum miðað við síð­ustu könnun þó svo að mik­ill meiri­hluti telji hækk­un­ina af manna­völdum,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár