Arion lokar útibúi – tugir kílómetra í næsta banka

Útibúi Arion banka á Kirkju­bæj­ar­klaustri verður að óbreyttu lokað eftir nokkra daga. Um eina bank­ann á svæð­inu er að ræða og eftir lok­un­ina mun fólk þurfa að fara til Hafnar eða Víkur til að kom­ast í banka.

Útibú Arion banka á Kirkjubæjarklaustri er eina bankaútibúið á svæðinu.
Útibú Arion banka á Kirkju­bæj­ar­klaustri er eina banka­úti­búið á svæð­inu.

Sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps er allt annað en sátt við þá ákvörðun Arion banka að loka eina banka­úti­bú­inu á Kirkju­bæj­ar­klaustri. Lokunin stóð einnig til fyrir um tveimur árum en var frestað. Sveit­ar­stjórn barst hins vegar til­kynn­ing 3. febr­úar síð­ast­lið­inn þess efnis að nú væri komið að því að fram­kvæma hana. Útibúinu verður lokað þann 31. mars.

Sveit­ar­stjórnin mót­mælir þess­ari ákvörðun harð­lega og í bókun sem sam­þykkt var á fundi hennar í vik­unni er minnt á að útibú Arion banka á Kirkju­bæj­ar­klaustri þjóni Skaft­ár­hreppi og Öræfum „auk allra þeirra þús­unda ferða­manna og nýbúa sem eru á svæð­inu tíma­bundið hverju sinni. Ljóst er að lokun úti­bús­ins kemur til með að hafa mjög slæm áhrif á íbúa og atvinnu­líf svæð­is­ins“.

[adspot]

Greint var frá áformum Arion banka í frétt á vef DFS.is, Frétta­vef Suð­ur­lands, fyrir um tveimur árum en þá stóð til að úti­bú­inu á Klaustri yrði lokað í enda febr­ú­ar­mán­aðar. Þar kom fram að með lok­un­inni yrði næsta banka­útibú í Vík eða á Höfn. „Það eru 70 kíló­metrar frá Klaustri yfir á Vík og mun lengra fyrir suma Skaft­fell­inga,“ hafði blaðið eftir íbúa sem var mjög ósáttur við fyr­ir­ætl­anir bank­ans.

Sigrún Sig­ur­geirs­dóttir skrif­aði svo aðsenda grein í Frétta­blaðið vegna máls­ins. „Þeir sem vilja búa og starfa á lands­byggð­inni verða að geta reitt sig á að grunn­þjón­usta sé til staðar.“

300 íbúar skoruðu á bankann að hætta við

Á fundi atvinnu­mála­nefndar Skaft­ár­hrepps í febr­úar 2020 var lagður fram und­ir­skrifta­listi 300 íbúa á svæð­inu þar sem skorað var á Arion banka að end­ur­skoða ákvörðun sína.

Fólkið í Skaft­ár­hreppi lýsti yfir óánægju með að „stöðugt sé ráð­ist að grunn­þjón­ustu“ og „Arion banki sjái ekki ástæðu til að halda uppi við­un­andi þjón­ustu eftir ára­tuga sam­starf“.

Atvinnu­mála­nefnd Skaft­ár­hrepps harm­aði á fundi sínum ákvörðun stjórn­enda bank­ans sem hafði verið boðuð með fimm vikna fyr­ir­vara.

Stjórn­endur Arion banka frest­uðu lok­un­inni en nú er hún aftur komin á dag­skrá að því er fram kemur í fund­ar­gerð sveit­ar­stjórnar Skaft­ár­hrepps.

[links]Arion banki hagn­að­ist um 28,6 millj­arða króna á síð­asta ári. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­arða króna . Til stendur að greiða 79 pró­sent af hagn­aði árs­ins út sem arð, alls 22,5 millj­arða króna, og kaupa eigin bréf fyrir að minnsta kosti 4,3 millj­arða króna á kom­andi ári. Gangi þessi áform eftir mun Arion banki verða búinn að skila hlut­höfum sínum 58,3 millj­örðum króna frá byrjun síð­asta árs. Bank­inn hefur áform um að greiða um 30 millj­arða króna ofan á það til hlut­hafa í nán­ustu fram­tíð þannig að heildar útgreiðslur nemi allt að 88 millj­örðum króna.

Hópur starfs­manna mun að auki fá veg­lega bónusa vegna góðs gengis bank­ans á síð­asta ári, sam­tals 1,6 millj­arð. Kaup­réttur þeirra mun einnig tryggja þeim tvö­földun á fjár­fest­ingu sinni að óbreyttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár