„Þetta er íslenskum stjórnvöldum að kenna“

Með því að senda 180 Venes­ú­ela­búa úr landi í einni flug­vél gerðu íslensk stjórn­völd þeim venes­ú­elsku auð­velt fyrir að beina spjótum sínum að hópnum sem þau líta á sem svik­ara, segir hinn venes­ú­elski Zarkis Abraham Mulki Peña. „Þetta er íslenskum stjórn­völdum að kenna.“

Zarkis
Zarkis „Venes­ú­elska rík­is­stjórnin sér þig sem svik­ara ef þú sækir um hæli í öðru landi – með því ertu að segja að Venes­ú­ela sé ekki í lagi.“ Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Þetta er Íslandi að kenna, ekki bara venes­ú­elskum stjórn­völdum,“ segir venes­ú­elski hæl­is­leit­and­inn Zarkis Abraham Mulki Peña um aðstæður sam­landa hans sem sendir voru úr landi í gær. Á flug­vell­inum í höf­uð­borg­inni Caracas tóku lög­reglu­menn á móti hópnum sem nú er í haldi lög­reglu sem sögð er vopnuð. 

Útlend­inga­stofnun, í sam­vinnu við landamæra­stofnun Evrópu (Frontex), stóð að flug­inu frá Íslandi til Venes­ú­ela en í hópnum voru 25 börn og 155 full­orðnir. Dóms­mála­ráðu­neytið segir að flugið hafi gengið vel og far­þeg­arnir hafi gengið heilu og höldnu frá borði og inn í flug­stöð. En þar skildu leiðir Venes­ú­ela­bú­anna og starfs­fólks Útlend­inga­stofn­unar og Frontex. 

„Þau höfðu hægt um sig á meðan íslensku full­trú­arnir voru þarna. Eftir að þau fóru gerðu venes­ú­elsk stjórn­völd það sem þau vildu,“ segir Zarkis í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann er sjálfur enn hér á landi og vill alls ekki snúa til Venes­ú­ela með flug­vél fullri af Venes­ú­ela­búum eftir að hafa séð mót­tök­urnar sem fólkið fékk. 

„Venesúelska ríkisstjórnin sér þig sem svikara“

Sumir Venes­ú­ela­bú­anna segja að pen­ingar, hund­ruð þús­unda sem fólkið hafði fengið í ferða- og aðlög­un­ar­styrk frá íslenska rík­inu, hafi verið teknir af þeim. Þá var þeim gert að skrifa undir ýmis skjöl án lög­fræði­að­stoðar og er talið að eitt skjalið hafi verið um land­ráð. 

„[Venes­ú­elsk stjórn­völd] vissu að þarna var fólk sem hafði sótt um hæli á Íslandi. Þau létu fólkið skrifa undir skjal þar sem það játar á sig land­ráð,“ segir Zarkis. 

Hann gagn­rýnir Útlend­inga­stofnun fyrir að hafa skipu­lagt svo stóran flutn­ing á Venes­ú­ela­búum með leiguflugi. 

„Ef þú ferð með venju­legu flugi er það mjög erfitt fyrir venes­ú­elsk stjórn­völd að hafa uppi á þér,“ segir Zarkis. Með þeim hætti er hægt að týn­ast í fjöld­anum. En í þessu til­viki var vélin full af fólki sem hafði sótt um hæli á Íslandi.

„Þetta er á ábyrgð íslenskra stjórn­valda,“ segir Zarkis. „Venes­ú­elska rík­is­stjórnin sér þig sem svik­ara ef þú sækir um hæli í öðru landi – með því ertu að segja að Venes­ú­ela sé ekki í lagi.“

CaracasFrá sal­ern­is­að­stöð­unni í hús­næð­inu sem venes­ú­elsku hæl­is­leit­end­unum er haldið í. Þar virð­ist ekki vera neitt renn­andi vatn.

Ótti í hópi Venesúelabúa á Íslandi

Við kom­una til Venes­ú­ela voru vega­bréf fólks­ins tekin af því. „Þetta fólk mun ekki geta flúið aftur beint frá Venes­ú­ela,“ segir Zarkis um það. „Til þess að flýja þyrftu þau að fara í gegnum Kólumbíu eða Ekvador.“

Venes­ú­elskir hæl­is­leit­endur eins og Zarkis sem enn eru á Íslandi upp­lifa nú mik­inn kvíða og streitu. Hræðsla um að þeirra bíði sömu örlög hefur gripið um sig. 

„Ég er mjög hræddur,“ segir Zarkis. Hann hafði sjálfur fengið atvinnu­til­boð frá Hinu hús­inu þegar honum var neitað um hæli. Mál hans er nú í ferli hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála en hann hefur ekki fengið leyfi til þess að vinna.

Lögmenn sem Heim­ildin hefur rætt við telja að íslensk stjórn­völd þurfi að rann­saka atburði síð­asta sól­ar­hrings vel og að varla sé verj­an­legt að senda fleiri Venes­ú­ela­búa með leiguflugi frá Íslandi til Venes­ú­ela í bili. 

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur ekki gefið kost á við­tali í dag. Hið sama má segja um for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er vel skiljanlegt al allt fólk vill helst öryggi og vellíðan þetta býr í öllumm
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Ekki að undra að dómsmálaráðherra láti ekki ná í sig.
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Til hamingju ríkisstjórn Íslands og sérstaklega formenn flokkanna og dómsmálaráðherrar Jón og Gunna. Nú hafið þið skráð ykkur í sama klúbb og Hermann Jónasson og Vilmundur Jónsson landlæknir. Þeir báru sök á því að vísa fjölda gyðinga úr landi í aðdraganda stríðs fullvitandi hvað hugsanlega beið þeirra, það sanna dagblöð þess tíma. Mikið af þessu fólki lenti í fangabúðum og lifði ekki af. Ég vona svo innilega að ekki fari svo illa fyrir þessu fólki en óttast það versta, því stjórnvöld í Venesúela hafa látið myrða þúsundir á undanförnum árum jafnvel þó samkvæmt lögum sé dauðarefsing ekki heimil. Hafið ævarandi skömm fyrir. Þegar maður glatar mennskunni þá verður maður hættulegt skrímsli. Þið hafið ekkert umboð í mínu nafni.
    7
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Þetta eiga Útlendingastofnun og dómsmálaráðherra skuldlaust. Megi þau skammast sín, þau gera þetta ekki í mínu nafni.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
GreiningFlóttafólk frá Venesúela

Sleppti mál­tíðum til þess að kom­ast frá Ásbrú

„Stans­laust von­leysi vaknar um leið og þú mætir,“ segir ungur venes­ú­elskur hæl­is­leit­andi um Ásbrú. Þar hafi verið ómögu­legt fyrir hann, eða nokkurn mann, að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi – sem er atriði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur sagst vilja fleiri búsetu­úr­ræði á borð við Ásbrú.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár