Þrefalt fleiri farbannsúrskurðir

Töluverð aukn­ing hefur orðið á fjölda gæslu­varð­halds- og far­banns­úr­skurða hér á landi á síð­ustu árum. Fjöldi far­banns­úr­skurða sem hér­aðs­dómar kváðu upp rúm­lega þre­fald­að­ist á fjórum árum.

Hér­aðs­dómar lands­ins kváðu upp 489 gæslu­varð­halds­úr­skurða í fyrra en það er nær tvö­falt fleiri úrskurðir en fjórum árum áður þegar 257 úrskurðir voru kveðnir upp. Enn meiri aukn­ing var þó í far­banns­úr­skurðum en slíkir úrskurðir þre­föld­uð­ust á fjórum árum. Árið 2015 voru 69 slíkir úrskurðir kveðnir upp en í fyrra voru þeir 214.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata.

Gæsluvarðhaldsúrskurðum fjölgað verulega

Á vef hér­aðs­sak­sókn­ara segir að gæslu­varð­hald sé tíma­bundin frels­is­svipt­ing sem lög­regla geti beitt í þágu rann­sóknar eða með­ferðar saka­máls á grund­velli dóms­úr­skurðar að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Gæslu­varð­hald er ekki afplánun en kemur að jafn­aði til frá­dráttar fang­els­is­refs­ingu ef við­kom­andi er dæmdur til fang­els­is­refs­ingar í kjöl­far gæslu­varð­halds.

Mikil aukn­ing hefur orðið í gæslu­varð­halds­úr­skurðum á síð­ustu árum. Hér­að­dómar lands­ins kváðu upp 489 gæslu­varð­halds­úr­skurði í fyrra, 449 árið áður, árið 2016 voru þeir 343, þeir voru 338 árið 2015 og 257 árið 2014.[adspot]

Dómari getur jafn­framt úrskurðað sak­born­ing í far­bann í stað þess að úrskurða hann í gæslu­varð­hald. Far­banns­úr­skurðir hafa einnig auk­ist á síð­ustu árum en á síð­asta ári voru kveðnir upp alls 214 far­banns­úr­skurðir í hér­aðs­dóm­stólum lands­ins. Voru úrskurð­irnir 85 árið 2017, 137 árið 2016 og árið 2015 voru þeir 69. 

Fram kemur í svari dóms­mála­ráð­herra að um sé að ræða fjölda gæslu­varð­halds- og far­banns­úr­skurða en ekki fjölda ein­stak­linga þar sem hægt sé að úrskurða sama ein­stak­ling end­ur­tekið í gæslu­varð­hald eða far­bann.

Fékk ekki svar um þjóðerni eða brotaflokka

Þór­hildur Sunna óskaði jafn­framt eftir upp­lýs­ingum um brota­flokka, þjóð­erni þeirra sem úrskurður beind­ist að og laga­á­kvæðum sem úrskurður var reistur á.

Í svari dóms­mála­ráð­herra segir hins vegar að til þess að nálg­ast slíkar upp­lýs­ingar þyrfti að skoða hvern og einn úrskurð og að slík vinna yrði of umfangs­mikil til að svara fyr­ir­spurn­inni í stuttu máli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár