Ákærður fyrir að nauðga 14 konum

Lögregla fékk ábend­ingu um að 68 ára gam­all karl­maður væri grun­aður raðnauð­gari. Við hús­leit fund­ust mynd­skeið af honum nauðga konum sem hann hafði byrlað ólyfjan. Hann hefur verið ákærður fyrir brot gegn 14 konum, en alls hafa 58 konur verið nefndar í tengslum við málið.

Berlín
Berlín Fólk á förnum vegi í Berlín. Myndin teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: Shutterstock

68 ára gam­all maður frá Berlín hefur verið ákærður fyrir að byrla 14 konum ólyfjan, nauðga þeim og taka verkn­að­inn upp, að sögn þýskra sak­sókn­ara. Konunum kynnt­ist hann í gegnum stefnu­móta­öpp.

Ekkert fórn­ar­lambanna mundi eftir meintum brotum, en þau komust upp þegar lög­reglan gerði hús­leit í íbúð hins grun­aða og lagði hald á minniskubba sem inni­héldu „fjöl­mörg mynd­skeið af kyn­ferð­is­brotum,“ að sögn sak­sókn­ara. 

„Hinum ákærða er gefið að sök hafa byrlað kon­unum svefn­lyf ásamt áfengi og síðan nauðgað þeim,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá sak­sókn­ara­emb­ætt­inu í Berlín. 

„Hann er sagður hafa kynnst kon­unum í gegnum stefnu­móta­vefi á net­inu.“

58 konur nefndar

Alls hafa 58 konur verið nefndar í tengslum við meint brot manns­ins, en ákær­urnar sem lagðar hafa verið fram til þessa varða 22 nauðg­anir gegn 14 konum, að sögn sak­sókn­ara.

Yfirvöld fengu ábend­ingu um málið frá lög­regl­unni í Neðra-Saxlandi sem var að rann­saka …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár