Persónuvernd gerir alvarlegar athugasemdir við skýrslu um eignarhald 20 stærstu útgerða

Per­sónu­vernd segir ýmsar rang­færslur vera í skýrslu sem sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra birti fyrir skemmstu. Skýr­ingar sem gefnar voru fyrir að birta ekki upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur haldi til að mynda ekki vatni.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Per­sónu­vernd sendi á þriðju­dag bréf til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis í til­efni fram­lagn­ingar skýrslu Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins sem birt var fyrir skemmstu.

Í bréf­inu gerir Per­sónu­vernd alvar­legar athuga­semdir við svar við spurn­ingu sem finna má í skýrsl­unni þar sem því var haldið fram að per­sónu­vernd­ar­lög höml­uðu því að Skatt­ur­inn, sem vann skýrsl­una, gæti birt upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur félaga. Var þar meðal ann­ars vísað í úrskurð Per­sónu­verndar frá 15. júní síð­ast­liðnum þar sem stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu að víð­tæk birt­ing heild­ar­hlut­haf­alista margra stærstu fyr­ir­tækja lands­ins á vef Skatts­ins væri ekki heimil lögum sam­kvæmt.

Vegna þess­arar túlk­unar skýrslu­höf­unda var ekk­ert yfir­lit að finna yfir þau fyr­ir­tæki sem útgerð­ar­menn og aðilar tengdir þeim hafa keypt í óskyldum geirum.

Í bréfi Per­sónu­verndar segir að í skýrsl­unni séu ýmsar rang­færslur sem Per­sónu­vernd taldi ástæðu til að leið­rétta. Þar kemur með ann­ars fram að úrskurð­ur­inn frá því í júní hafi ein­ungis náð til upp­lýs­inga um hluta­fjár­eign ein­stak­linga, ekki fyr­ir­tækja eða ann­arra lög­að­ila sem njóti ekki sömu verndar. Varðandi til­vísun Skatts­ins um að ekki væri heim­ilt að birta upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur segir Per­sónu­vernd að hún sé ein­fald­lega röng.

Sýndi ekki umsvif útgerða í ótengdum rekstri

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una þegar hún var loks birt 25. ágúst síð­ast­lið­inn, átta mán­uðum eftir að beiðni um gerð hennar var sam­þykkt. Skýrslan sýndi hvorki kross­eign­ar­tengsl eða ítök útgerð­ar­fé­lag­anna í ein­stökum fyr­ir­tækjum.

[adspot]Þess í stað var Skatt­ur­inn feng­inn til að setja upp yfir­lit yfir bók­fært virði þeirra eigna sem útgerð­ar­fé­lögin, eig­endur og tengdir aðilar áttu í öðrum félögum en útgerðum.

Nið­ur­staða skýrsl­unnar er að 20 stærstu útgerðir lands­ins hafi, beint eða í gegnum tengd eign­ar­halds­fé­lög og dótt­ur­fé­lög, átt bók­færða eign­ar­hluti í öðrum félögum en útgerð­ar­fé­lögum upp á 176,7 millj­arða króna í árs­lok 2019. Sú eign var bók­færð á 137,9 millj­arða króna árið 2016.

Ekki er til­greint með neinum hætti um hvaða eignir er að ræða.

„Hvað er verið að fela?“

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar og fyrsti flutn­ings­maður skýrslu­beiðn­innar, sagði í sam­tali við Kjarnann að skýrslan væri sann­ar­lega ekki það sem beðið var um. Hún viti ekki hvort hún eigi að hlægja eða gráta þegar hún les skýrsl­una. „Ég hall­ast frekar að því að hlægja. Það er eitt­hvað fyndið við að þetta skuli verða nið­ur­staðan. Að stjórn­völd skuli hafa ákveðið að fara þessa leið til að forð­ast að umbeðnar upp­lýs­ingar kæmust fyrir augu almenn­ings fyrir kosn­ingar.

Hanna Katrín sagði þær tölur sem settar voru fram í skýrsl­unni ekki sýna kross­eign­ar­tengsl eða ítök útgerð­ar­fé­laga í íslensku atvinnu­lífi. „Þetta varpar fyrst og fremst fram þeirri spurn­ingu: hvað er verið að fela?“

Ráðuneytið hafnar gagnrýni

Atvinnu­vega­ráðu­neytið brást við umræðu um skýrsl­una með til­kynn­ingu sem send var út síð­ast­lið­inn laug­ar­dag.

[links]Í henni sagði meðal ann­ars að í skýrsl­unni hafi ekki verið gefið yfir­lit um raun­veru­lega eig­endur félaga þar sem árs­reikn­inga­skrá taldi það vera óheim­ilt. „Þá er rétt að árétta að lög um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda öðl­uð­ust gildi um mitt ár 2019 og var aðeins byrjað að safna upp­lýs­ingum þá um haustið. Á árunum 2016-2019 var ekki til að dreifa skrán­ingu raun­veru­legs eig­enda í árs­reikn­ingum.“

Ráðu­neytið hafn­aði einnig gagn­rýni á að skýrslan byggði á bók­færðu virði eigna og sagði að skýrslu­beiðnin hefði ekki náð til kross­eigna­tengsla heldur ein­ungis umsvifa.

Að öllu fram­an­greindu taldi ráðu­neytið ljóst að í skýrsl­unni væru birtar allar þær upp­lýs­ingar sem óskað hefði verið eftir og heim­ilt var að birta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár