Skýrsla um umsvif útgerða í ótengdum rekstri sýnir ekki umsvif útgerða í ótengdum rekstri

Skýrsla sem Kristján Þór Júl­í­us­son skil­aði til Alþingis í dag, átta mán­uðum eftir að beiðni um gerð hennar var sam­þykkt, átti að fjalla um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna í íslensku atvinnu­lífi.

Í des­em­ber 2020 lögðu 20 þing­menn, 18 úr stjórn­ar­and­stöðu og tveir þing­menn Vinstri grænna, fram beiðni um að Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, myndi láti gera skýrslu um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­laga í íslensku atvinnu­lífi. Fyrsti flutn­ings­maður máls­ins var Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar.

Þing­menn­irnir vildu að ráð­herr­ann myndi láta taka saman fjár­fest­ingar útgerð­ar­fé­lag­anna, dótt­ur­fé­laga þeirra og félaga þeim tengdum í félögum sem ekki hafa útgerð fiski­skipa með höndum á síð­ustu tíu árum og bók­fært virði eign­ar­hluta þeirra í árs­lok 2019. Í beiðn­inni var sér­stak­lega farið fram á að í skýrsl­unni yrðu raun­veru­legir eig­endur þeirra félaga sem yrði til umfjöll­unar til­greindir og gerð sam­an­tekt á eign­ar­hlut 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna í íslensku atvinnu­lífi byggt á fram­an­greindum gögn­um.

Beiðnin var sam­þykkt 18. des­em­ber með 57 atkvæðum þeirra þing­manna sem voru við­staddir atkvæða­greiðslu um hana. Samkvæmt þing­skap­a­lögum hefur ráð­herra tíu vikur til að vinna slíka skýrslu eftir að beiðni þess efnis er sam­þykkt. Sá frestur rann út í mars.

Skýrslan var birt í dag, 25. ágúst, rúmum átta mán­uðum eftir að beðið var um hana. Hanna Katrín segir hana ekki svara að neinu leyti því sem hún átti að svara. Hún spyr hvað stjórn­völd séu að fela.

Átti að vera tilbúin í maí

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið leit­aði til Skatts­ins um að gera skýrsl­una í byrjun febr­úar 2021. Í bréfi sem Skatt­ur­inn sendi til ráðu­neyt­is­ins nokkrum dögum síðar, þann 17. febr­úar, sagði að emb­ættið hefði ekki mann­afla til að vinna svo umfangs­mikið grein­ing­ar­verk­efni. Að því þyrftu að koma aðilar með sér­þekk­ingu á árs­reikn­ings­skilum. Um leið var því nánar lýst hvernig gögn emb­ætt­is­ins gætu nýst við vinnsl­una og boð­inn aðgangur að gögnum.

Á meðal þess sem Skatt­ur­inn taldi sig ekki ráða við var tímara­mm­inn sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um. Þ.e. upp­lýs­ingar sem teygðu sig tíu ár aftur í tím­ann. Þess í stað var ákveðið að skýrslan næði yfir tíma­bilið 2016-2019, eða fimm ár, og var það gert í sam­ráði við þá þing­menn sem ósk­uðu eftir skýrsl­unni. Stefna átti að því að skýrslan yrði til­búin í maí.

Það stóðst ekki.

Hlutafjáreign ekki listuð upp

Skatt­ur­inn vann skýrsl­una með þeim hætti að farið var yfir inn­senda árs­reikn­inga útgerð­ar­fé­lag­anna fyrir reikn­ings­árin 2016-2019, tengdra eign­ar­halds­fé­laga, dótt­ur­fé­laga og dótt­ur­fé­laga tengdra eign­ar­halds­fé­laga.

Í skýrsl­unni, sem var birt í dag, kemur fram að þessi hluta­fjár­eign sé ekki listuð upp í henni en sér­stak­lega tekið fram að „stór hluti umræddra félaga starfar í sjáv­ar­út­vegi, mat­væla­vinnslu eða tengdum greinum, s.s. fisk­vinnslu, þjón­ustu við sjáv­ar­út­veg, mark­aðs­starf eða nýsköpun.“

Því birtir skýrslan ekki upp­lýs­ingar um raun­veru­legt eign­ar­hald eig­enda 20 stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækja í þeim fyr­ir­tækjum í íslensku atvinnu­lífi sem ekki hafa útgerð fiski­skipa með höndum, líkt og þeir þing­menn sem ósk­uðu eftir skýrsl­unni fóru fram á, og Alþingi sam­þykkti.

Auk þess byggja þær upp­lýs­ingar sem Skatt­ur­inn tók saman á bók­færðu virði eigna, sem byggir á upp­runa­legu kostn­að­ar­verði sem greitt var fyrir þær eignir. Til að útskýra hvað það þýðir þá er kvót­inn sem útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins nýta met­inn á um 1.200 millj­arða króna miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með hann. Bókfært virði hans er hins vegar marg­falt lægra, eða á því verði sem hver útgerð keypti kvót­ann á.

Skýrslan er því sam­an­tekt á allt öðrum hlutum en óskað var eftir.

Í skýrsl­unni segir enda á einum stað að hafa verði „fyr­ir­vara um álykt­anir sem kunna að verða dregnar af þeim tölu­legu gögnum, um bók­fært virði fjár­fest­ingar, sem skýrslan byggir á.“

Fyndin niðurstaða

Síðan fylgir yfir­lit yfir hvert bók­fært virði fjár­fest­inga útgerð­ar­fé­laga, tengdra eign­ar­halds­fé­laga, dótt­ur­fé­laga og dótt­ur­fé­laga tengdra eign­ar­halds­fé­laga 20 stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækja lands­ins í öðrum félögum en útgerð­ar­fé­lögum er.

Hanna Katrín Friðriksson var fyrsti flutningsmaður málsins þegar beiðni um skýrsluna var lögð fram á þingi í desember 2020.
Hanna Katrín Frið­riks­son var fyrsti flutn­ings­maður máls­ins þegar beiðni um skýrsl­una var lögð fram á þingi í des­em­ber 2020.

Nið­ur­staða skýrsl­unnar er að 20 stærstu útgerðir lands­ins hafi, beint eða í gegnum tengd eign­ar­halds­fé­lög og dótt­ur­fé­lög, átt bók­færða eign­ar­hluti í öðrum félögum en útgerð­ar­fé­lögum upp á 176,7 millj­arða króna í árs­lok 2019. Sú eign var bók­færð á 137,9 millj­arða króna árið 2016.

Ekki er til­greint með neinum hætti um hvaða eignir er að ræða.

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar og fyrsti flutn­ings­maður skýrslu­beiðn­innar, segir að skýrslan sé sann­ar­lega ekki það sem beðið var um. Hún viti ekki hvort hún eigi að hlægja eða gráta þegar hún les skýrsl­una. „Ég hall­ast frekar að því að hlægja. Það er eitt­hvað fyndið við að þetta skuli verða nið­ur­staðan. Að stjórn­völd skuli hafa ákveðið að fara þessa leið til að forð­ast að umbeðnar upp­lýs­ingar kæmust fyrir augu almenn­ings fyrir kosn­ingar.

Hanna Katrín segir að þær tölur sem settar eru fram í skýrsl­unni sýni ekki kross­eign­ar­tengsl eða ítök útgerð­ar­fé­laga í íslensku atvinnu­lífi. „Þetta varpar fyrst og fremst fram þeirri spurn­ingu: hvað er verið að fela?“

Með sýnileg ítök víða

Frá hruni og út árið 2018 batn­aði eig­in­fjár­staða útgerða lands­ins, sam­kvæmt Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte, um 376 millj­arða króna. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 103,2 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um að minnsta kosti 479,2 millj­arða króna frá hruni. Til sam­an­burðar greiddu útgerð­irnar 4,9 millj­arða króna í veiði­gjöld á síð­asta ári fyrir afnot sín að fisk­veiði­auð­lind­inni.

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um aukin ítök stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins í óskyldum geirum á und­an­förnum árum, en ítök þeirra hafa auk­ist hratt sam­hliða mik­illi arð­semi í grein­inni.

Samherji, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, hefur til að mynda verið ráð­andi í Eimskip og á stóran hlut í Jarð­bor­unum.

Þá er SVN eigna­fé­lag, sem er að uppi­stöðu í eigu Samherja og Kjálka­ness (félags í eigu þeirra sem eiga útgerð­ar­fyr­ir­tækið Gjögur, meðal ann­ars Björg­ólfs Jóhanns­sonar), langstærsti eig­andi Sjóvá með 14,55 pró­sent eign­ar­hlut. Björgólfur er stjórn­ar­for­maður Sjóvá.

Samherji átti lengi vel stóran hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, en lán­aði Eyþóri Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, til að kaupa þann hlut af sér. Eyþór hefur ekki end­ur­greitt það lán.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Hvalur hf., Stálskip og Ísfélag Vest­manna­eyja eru dæmi um önnur félög í útgerð, eða sem voru í útgerð en hafa selt sig út úr henni, sem eru afar umsvifa­mikil í íslensku við­skipta­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár