Sundrung í Kanada eftir umsátur vörubílstjóra og aðgerðir lögreglu

Kanadísk stjórn­völd bundu enda á þriggja vikna mót­mæli vöru­bíl­stjóra í höf­uð­borg lands­ins um helg­ina. Mótmælin voru mjög óvin­sæl á meðal almenn­ings í land­inu, en við­brögðin við þeim hafa einnig mætt mik­illi gagn­rýni.

Óeirðarlögregla mætti mótmælendum í Ottawa um helgina og handtók fjölda þeirra.
Óeirð­ar­lög­regla mætti mót­mæl­endum í Ottawa um helg­ina og hand­tók fjölda þeirra. Mynd: EPA

Þriggja vikna mót­mælum kanadískra vöru­bíl­stjóra í höf­uð­borg lands­ins, Ottawa, lauk um helg­ina, eftir að rík­is­stjórnin setti neyð­ar­lög og óeirð­ar­lög­regla réðst í umfangs­miklar fjölda­hand­tökur, hald­lagn­ingu á bif­reiðum og fryst­ingar á banka­reikn­ingum á grund­velli þeirra.

Meiri­hluti Kana­da­búa var and­vígur mót­mæl­unum, sem leiddu til þess að sam­göngur voru í lama­sessi í borg­inni. Hins vegar hafa stjórn­ar­and­stæð­ingar gagn­rýnt við­brögð stjórn­valda við þeim, en sam­kvæmt þeim voru aðgerðir lög­reglu yfir­gengi­legar.

Lokað á samgöngur

Fyrir þremur vikum síðan hófu bíl­stjór­arnir, sem mót­mæltu skyldu­bólu­setn­ingum þeirra sem fara um landa­mærin við Banda­ríkin, að stífla helstu sam­göngu­æðar Ottawa. Samkvæmt umfjöllun Financial Times hafa þau svo undið upp á sig og snú­ast þau nú um and­stöðu gegn sitj­andi stjórn­völdum.

Á þessum 24 dögum sem mót­mælin stóðu yfir höfðu bíl­stjór­arnir sett sér upp aðstöðu á miðjum götum í miðbæ borg­ar­innar, en þar mátti meðal ann­ars finna úti­eld­hús, tjöld, leik­svæði fyrir börn og svið. Framan af skipti lög­reglan sér ekki að ástand­inu, en sam­kvæmt BBC fengu þátt­tak­endur mót­mæl­anna að flauta bílum sínum, kveikja á sírenum og skjóta flug­eldum á loft óáreittir.

Tengsl við kynþáttahyggju

Mót­mæl­end­urnir hafa fengið millj­ónir Banda­ríkja­dala í fjár­hags­legan stuðn­ing frá hægrisinn­uðum öfga­hópum og and­stæð­ingum bólu­setn­inga, bæði frá Kanada og Banda­ríkj­unum. Einnig voru hægri­s­inn­aðir öfga­menn á meðal mót­mæl­enda, en Financial Times greinir frá því að að sumir þeirra veif­uðu haka­krossum og Suð­ur­ríkja­fána Banda­ríkj­anna.

Þá hefur einn skipu­leggj­enda mót­mæl­anna, Kana­da­bú­inn Pat King, einnig tekið undir mál­flutn­ing öfga­hópa, en fyrir tveimur árum síðan birti hann mynd­band af sér þar sem hann tal­aði um að sótt væri að hvíta kyn­stofn­inum, sem væri kom­inn af sterk­ustu ætt­unum.

Lítill stuðningur frá almenningi

Þrátt fyrir stuðn­ing­inn frá áður­nefndum hópum hafa mót­mælin ekki verið vin­sæl á meðal kanadísks almenn­ings. Samkvæmt umfjöllun CNN hefur fjöldi skoð­ana­kann­ana sýnt að meiri­hluti Kana­da­búa sé and­stæður þeim og mál­flutn­ingi þeirra.

Í einni slíkri könnun, sem var fram­kvæmd fyrir tveimur vikum síðan og var byggð á slembi­úr­taki á kanadísku þjóð­inni, töldu tæp­lega tveir af hverjum þremur við­mæl­endum að mót­mælin voru ógn við lýð­ræðið. Jafn­margir voru fylgj­andi því að stjórn­völd myndu binda enda á þeim með hjálp hers­ins og var meiri­hlut­inn fylgj­andi því að hand­taka ætti þá sem fylgja ekki fyr­ir­mælum stjórn­valda.

Raunverulegar aðgerðir sem bíta

Fyrir viku síðan til­kynnti for­sæt­is­ráð­herra Kanada, Justin Trudeau, svo að hann myndi virkja neyð­ar­lög í fyrsta skipti í sögu lands­ins til að koma böndum á ástandið. Neyð­ar­lögin gefa lög­regl­unni í land­inu meira vald í 30 daga til að leysa upp ólög­legar sam­komur, hald­leggja eigur mót­mæl­end­anna og frysta banka­reikn­inga þeirra. Samkvæmt Trudeau eru lögin mik­il­væg til að tryggja öryggi og atvinnu Kana­da­búa og auka traust til stofn­ana lands­ins.

Á blaða­manna­fundi síð­asta mánu­dag sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann að lög­mælin væru ekki lengur lög­leg, heldur ólög­legt umsátur um höf­uð­borg­ina. „Það er kom­inn tími á að fólk fari heim til sín,“ bætti hann við.

Á fimmtu­dag­inn byrj­uðu kanadískir bankar að frysta banka­reikn­inga hjá ein­stak­lingum sem voru tengdir mót­mæl­unum, en fjár­mála­ráð­herra lands­ins, Chrystia Freeland, sagði að bíl­stjór­arnir sem tækju þátt í umsátr­inu gætu misst trygg­ing­arnar sínar. „Afleið­ing­arnar eru raun­veru­legar og þær munu bíta,“ sagði hún á blaða­manna­fundi.

Á föstu­dag­inn hófust svo einar stærstu lög­reglu­að­gerðir í sögu lands­ins, þar sem lög­reglan í Ottawa skarst í leik­inn og hand­tók yfir 170 þátt­tak­endur mót­mæl­end­anna, en þeirra á meðal var áður­nefndur Pat King. Þar að auki fjar­lægði hún 53 far­ar­tæki til að losa um stífl­una á umferð­ar­æðum borg­ar­innar. Í gær sagð­ist löggan svo ætla að leit­ast við að bera kennsl á mót­mæl­end­urna og ákæra þá fyrir lög­brot, auk þess sem þeir verði beittir fjár­hags­legum refsi­að­gerðum.

Starf­andi lög­reglu­stjóri Ottawa, Steve Bell, sagði að aðgerðir lög­reglu hefðu verið ómögu­legar ef stjórn­völd hefðu ekki virkjað neyð­ar­lögin.

Ekki einhugur um viðbrögðin

Fjöldi þing­manna kanadíska Íhalds­flokks­ins, sem situr í stjórn­ar­and­stöðu, gagn­rýndi aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar harka­lega og segja þær hafa verið yfir­drifnar. Einn þeirra, Pierre Poilevre, lof­sam­aði vöru­bíl­stjór­ana og sak­aði Trudeau um hefnd­ar­að­gerðir gegn þeim sem eru á móti bólu­setn­ingum.

Þá hefur Donald Trump, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna, einnig mót­mælt aðgerð­irnar og kallað Trudeau „öfga-vinstri brjál­æð­ing.“ Sömu­leiðis hefur Repúblík­ana­þing­mað­ur­inn Ted Cruz opin­ber­lega stutt kanadísku vöru­bíl­stjór­ana og Tucker Carlson, frétta­þulur á Fox-sjón­varps­stöð­inni segir „harð­stjórn“ ríkja í land­inu.

Tíma­ritið The Economist gagn­rýndi einnig við­brögð Trudeau í leið­ara sem birt­ist um helg­ina, en þar sagði að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði ekki gert nóg til að kom­ast til móts við mót­mæl­end­urna.

Þó segir Lori Turnbull, stjórn­mála­fræði­pró­fessor í Nova Scotia og við­mæl­andi Financial Times, að við­brögð Trudeau við mót­mælin séu ólík­leg til að draga úr vin­sældum hans. „Allir í Ottawa eru svo ánægðir með að losna við þau, en það vekur ugg ef rík­is­stjórnin getur ekki verndað eigin höf­uð­borg,“ bætti hún við. Þrátt fyrir það sagði hún að flokkur Trudeau, Frjáls­lyndi flokk­ur­inn, ætti ekki að vera of spenntur fyrir næstu kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár