Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að aukast

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins tekur stökk í nýrri könnun MMR og mælist nú stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina um 55 pró­sent. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins minnkar á milli kann­ana og mælist nú í 25,4 pró­sentum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú 25,4 pró­sent sam­kvæmt nýrri könnun MMR á fylgi stjórn­mála­flokka og hefur minnkað um tvö pró­sentu­stig á einum mán­uði. Á sama tíma hefur stuðn­ingur við Fram­sókn­ar­flokk­inn auk­ist um rúm­lega þrjú pró­sentu­stig og mælist hann nú næst­stærsti flokk­ur­inn með 12,3 pró­senta fylgi.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur auk­ist um rúmt pró­sentu­stig á milli kann­ana og mælist nú 54,9 pró­sent.

Til við­bótar við Fram­sókn­ar­flokk­inn bætti Viðreisn einnig við sig fylgi frá síð­ustu könnun MMR, en flokk­ur­inn mælist nú með 9,1 pró­senta fylgi, sem er 1,3 pró­sentu­stigum hærri en fyrir mán­uði síðan og 2,5 pró­sentu­stigum hærra en kjör­fylgi flokks­ins.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata lækkar hins vegar um tæpt pró­sentu­stig á milli kann­ana, en Píratar mæl­ast nú með 12,2 pró­senta fylgi og Sam­fylk­ingin með 10,6 pró­senta fylgi. Sam­fylk­ingin, sem hefur lengi verið næst­stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn á þessu kjör­tíma­bili, mælist nú sá fimmti stærsti. Fylgi Mið­flokks­ins hefur einnig lækkað á sama tíma, úr 7,3 pró­sentum niður í 6,6 pró­sent.

Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokk­ur­inn mæl­ast báðir með rúm­lega fimm pró­senta fylgi og næðu því báðir inn á þing, en fylgi flokk­anna hefur hald­ist óbreytt frá síð­ustu könnun. Fylgi Vinstri Grænna hreyf­ist einnig lítið á milli kann­ana, en flokk­ur­inn mælist nú með 11,9 pró­senta stuðn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár