Lífeyrissjóðirnir standa saman og mynda sameiginlegan vettvang vegna ÍL-sjóðs

ÍL-sjóður mun að óbreyttu tapa 200 millj­örðum króna. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra vil „spara“ rík­is­sjóði að bera ábyrgð á um 150 millj­örðum króna af því tapi. Þeir sem þurfa að axla þorra þess, líf­eyr­is­sjóðir, eru ekki sam­mála um að það sé góð hug­mynd.

Almenningur mun þurfa að axla tapið vegna ÍL-sjóðs, annað hvort í gegnum ríkissjóð eða lífeyrissjóðakerfið.
Almenn­ingur mun þurfa að axla tapið vegna ÍL-sjóðs, annað hvort í gegnum rík­is­sjóð eða líf­eyr­is­sjóða­kerfið. Mynd: Bára Huld Beck

Flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa ákveðið að mynda sam­eig­in­lega vett­vang til að greina stöðu sjóð­anna vegna ÍL-sjóðs. Hver og einn sjóður mun þó á end­anum taka sjálf­stæða ákvörðun um hvað hann vill gera í mál­inu.

Í til­kynn­ingu segir að frá þessu hafi verið greint á fjöl­mennum upp­lýs­inga­fundi sem flestir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins mættu til í dag. Þar kom fram að einu­hugur væri um sam­starf vegna grein­ingu stöð­unnar vegna þessa máls, enda gríð­ar­legir hags­munir í húfi fyrir íslenska sjóð­fé­laga. „Þegar hefur verið gengið frá ráðn­ingu lög­fræði­stof­unnar Logos sem lög­fræði­legs ráð­gjafa líf­eyr­is­sjóð­anna, unnið er að því að greina lög­fræði­leg álita­mál, hags­muni sjóð­anna – og þar með almenn­ings í land­inu – og frek­ari fram­gangi máls­ins. Þá hafa fjár­hags­legir ráð­gjafar jafn­framt verið ráðnir.“

Vill að lífeyrissjóðirnir taki höggið

ÍL-­sjóður varð til á grund­velli laga sem sam­þykkt voru árið 2019, og skiptu Íbúða­lána­sjóði upp í tvennt. Hluti hans, sá sem snýr að fjár­mögnun á félags­legri upp­bygg­ingu á hús­næði, færð­ist í nýja stofn­un, Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un. Skuldir og eignir vegna íbúða­lána á almennum mark­aði, sem rekja má að mestu til skulda­bréfa­út­gáfu á árinu 2004, voru sett í ÍL-­sjóð. Skulda­bréf­in, sem eru með gjald­daga til 2044, eru ekki upp­greið­an­leg en lánin sem sjóð­ur­inn veitti eru það hins veg­ar.

[adspot]Vandi ÍL-­sjóðs er til­kom­inn vegna þess að íbúða­lán bank­ans hafa verið greidd upp á miklum hraða, og eru nú ein­ungis um 20 pró­sent af eignum sjóðs­ins, á meðan að enn þarf að þjón­usta skulda­bréf­in. Áætlað er að tap vegna þessa fyr­ir­komu­lags verði að óbreyttu 200 millj­arðar króna.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í síð­asta mán­uði að hann vildi semja við kröfu­hafa ÍL-­sjóðs um að þeir sam­þykki að gefa eftir hluta eigna sinna. Líf­eyr­is­sjóðir eiga um 75-80 pró­sent allra skulda­bréfa sem útgefin eru af ÍL-­sjóði og þeir þurfa því að taka mesta högg­ið, eigi til­laga Bjarna að ganga upp. Tak­ist ekki að semja ætlar Bjarni að leggja fram frum­varp fyrir árs­­lok sem felur í sér að ÍL-­­sjóði verði slitið á næsta ári, skuldir hans látnar gjald­­falla og með því myndi ein­­föld rík­­is­á­­byrgð virkj­­ast.

Pólitísk ákvörðun sem fór illa

Við­brögð þeirra sem gæta hags­muna líf­eyr­is­sjóða lands­ins við þeirri hótun fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að lög verði sett sem muni rýra eignir sjóð­anna um meira en 100 millj­arða króna, sam­þykki þeir ekki að gefa eftir sam­bæri­lega upp­hæð í frjálsum samn­ingum um slit ÍL-­sjóðs, hafa verið hörð.

[links]Þeirra mat er að verið sé að reyna að knýja líf­eyr­is­þega til að borga fyrir póli­tíska ákvörðun sem fór illa, og sam­hliða rétta við skulda­stöðu rík­is­sjóðs á hátt sem líti betur út fyrir núver­andi ráða­menn. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um ÍL-sjóð. Hægt er að lesa þá umfjöllun alla hér til hliðar.

Tapið sem eig­endur bréfa í ÍL-sjóði telja sig verða fyrir kemur til að þegar bréfin, sem eru á gjald­daga allt til árs­ins 2044, voru verð­lögð miðað við 3,75 pró­sent verð­tryggða vexti út líf­tíma þeirra. Á heima­síðu Gildis, eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins, segir að ef bréfin væru greidd upp miðað við stöðu þeirra í dag væri hægt að ávaxta þá fjár­muni á um 1,7 til 1,8 pró­sent vöxtum með kaupum á verð­tryggðum rík­is­skulda­bréfum. Tapið felst í mun­inum á þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár