Útlistanir á frekari markmiðum tilkynntar á nýju ári

Ísland semur með ESB og Noregi á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París. Samið verður inn­byrðis um los­un­ar­heim­ildir eftir ráð­stefn­una.

Á loftslagsráðstefnunni í París er markmiðið að komast að lagalega bindandi samkomulagi um losun gróðurhúsalofttegunda á jörðinni.
Á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París er mark­miðið að kom­ast að laga­lega bind­andi sam­komu­lagi um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á jörð­inni. Mynd: Birgir Þór

Nánari mark­mið og áherslur Íslands í lofts­lags­málum verða ekki kynnt fyrr en árið 2016, eftir að samn­inga­ferlið milli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) hefur verið mótað. Frá þessu var skýrt í umhverf­is­ráðu­neyt­inu í dag. Ísland fylgir lands­mark­miðum Evr­ópu­sam­bands­ins í lofts­lags­málum um 40 pró­sent minnkun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2030 miðað við árið 1990. Ísland mun því fylgja Evr­ópu­sam­band­inu og Noregi á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París í des­em­ber.

Aðeins hafa verið óform­leg sam­skipti á milli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um það hvernig samið verður innan Evrópu um los­un­ar­heim­ildir og því óvíst hversu mikið Ísland þarf að draga úr losun til árs­ins 2030. Noregur hefur sama sam­komu­lag við Evr­ópu­sam­bandið og semur um los­un­ar­heim­ildir eftir ráð­stefn­una í París. Í krafti aðildar Íslands að Evrópska efna­hags­svæð­inu þá fylgjum við sömu verk­ferlum og ESB í þessum efnum.

[adspot]

Flest ríki Evr­ópu­sam­bands­ins eru aðilar að Kyoto-bók­un­inni um los­un­ar­heim­ildir gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og er lík­legt að svipað fyr­ir­komu­lag verði haft innan ESB, á Íslandi og í Noregi. Jafnvel verði hægt verði að versla með los­un­ar­kvóta milli landa. Á þessum vanga­veltum eru fyr­ir­varar; koma verður í veg fyrir að los­un­ar­heim­ildir safn­ist saman á fárra höndum og stuðli því að ójöfnum vexti efna­hags milli landa innan sam­bands­ins, svo dæmi sé tekið.

Lofts­lags­ráð­stefnan í París fer fram dag­ana 30. nóv­em­ber til 11. des­em­ber. Ísland mun standa fyrir og taka þátt í mörgum við­burðum til hliðar við ráð­stefn­una sjálfa. Opinber sendi­nefnd full­trúa úr fjórum ráðu­neytum hér á landi munu fjalla um lofts­lags­samn­ing­inn fyrir Íslands hönd. Fyrir utan ráð­stefnusal­ina hefur fjöldi fólks boðað komu sína. Fulltrúi Kjarnans mun fylgj­ast með gangi mála og flytja fréttir af ráð­stefn­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár