Sendu líka fjárkúgunarbréf til aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs

Syst­urnar Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand sendu tvö bréf til þess að reyna að fjár­kúga fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son. Þetta kemur fram í ákæru á hendur þeim, sem Stundin birti í gær­kvöldi.

Fyrra bréfið setti Hlín inn um bréfalúg­una á heim­ili aðstoð­ar­manns Sig­mundar, Jóhann­esar Þór Skúla­sonar, og inni­hélt hótun um að birtar yrðu opin­ber­lega upp­lýs­ingar um afskipti Sig­mundar Davíðs af fjár­hags­mál­efnum Vef­press­unar ehf., fjöl­miðla­sam­steypu undir stjórn Björns Inga Hrafns­sonar, fyrr­ver­andi unnusta Hlínar. Til að kom­ast hjá því yrði Sig­mundur Davíð að greiða 7,5 millj­ónir króna og afhenda þær þriðju­dag­inn 25. maí í fyrra. Ekki kom hins vegar fram í þessu bréfi hvar afhenda ættið féð, og bréfið var ekki opnað fyrr en 1. júní, eftir að syst­urnar höfðu verið hand­teknar.

Í milli­tíð­inni hafði Hlín póst­lagt annað bréf til Sig­mundar Davíðs, en stílað á eig­in­konu hans, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttur. Í seinna bréf­inu var búið að hækka fjár­hæð­ina í átta millj­ónir króna og með því fylgdu „fyr­ir­mæli um afhend­ing­ar­máta, gps-hnit og ljós­myndir af afhend­ing­ar­staðnum, sem var við Krýsu­vík­ur­veg í Hafn­ar­firði,“ að því er segir í ákærunni á hendur systr­unum. Bréfið barst á heim­ili þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra þann 28. maí í fyrra, og degi síðar voru syst­urnar hand­teknar við Krýsu­vík­ur­veg, eftir að þær höfðu sótt pakkn­ingu í tösku sem þær töldu inni­halda umkrafða greiðslu.

Fram kemur í ákærunni að Hlín hafi ritað bréfin en Malín prentað þau út. Syst­urnar eru báðar ákærðar fyrir til­raun til að fjár­kúga Sigmund Davíð, og einnig fyrir fjár­kúgun á hendur Helga Jean Claessen, sem greiddi þeim systrum 700 þús­und krónur til að koma í veg fyrir að Hlín legði fram kæru um nauðgun. Malín tók við þeim pen­ingum í tvennu lagi og eru syst­urnar sagðar hafa skipt fénu á milli sín.

Helgi gerir einka­rétt­ar­kröfu og krefst skaða­bóta að upp­hæð 1,7 millj­ónum króna frá systr­unum. Engin slík krafa var sett fram frá öðrum sem málið varða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár