FME: Tökum undir með AGS og höfum kallað eftir breytingum í mörg ár

FME segir í svari við fyr­ir­spurnum Kjarnans að stofn­unin geti tekið undir margt það sem sendi­nefnd AGS sagði um eft­ir­lit með fjár­mála­mörk­uðum hér á landi. Hún eigi þó von á frek­ari skýr­ingu í loka­skýrslu sendi­nefndar sjóðs­ins.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) segir að það geti tekið undir flest það sem sendi­nefnd Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) segir í yfir­lýs­ingu sinni um ýmis­legt sem snýr að fjár­mála­eft­ir­liti á íslenskum fjár­málmark­aði, og mik­il­vægi þess að tryggja sjálf­stæði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þetta kemur fram í svari FME við fyr­ir­spurnum Kjarnans vegna umsagnar sendi­nefndar AGS um stöðu fjár­mála­eft­ir­lits á Íslandi, í nýj­ustu úttekt sinni um stöðu efna­hags­mála á Íslandi.

Styrkja þarf eftirlit

Í yfir­lýs­ingu sendi­nefnd­ar­innar er umtals­verðu púðri eytt í að fjalla um fram­tíð íslenska banka­kerf­is­ins. Þar minn­ist hún meðal ann­ars sér­stak­lega á nýlega sölu á 29,18 pró­sent hlut í Arion banka til þriggja vog­un­ar­sjóða og Gold­man Sachs, sem síðan eiga kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar í bank­an­um. AGS segir að þetta séu eig­endur sem séu lík­legir til að sækj­ast eftir háum arð­greiðsl­um, sölu á eignum út úr bank­anum og ýmiss konar end­ur­skipu­lagn­ingu til hag­ræð­ing­ar.

Það séu allt kraftar sem muni auka sam­keppni á banka­mark­aði. Í raun muni hann umbreyt­ast úr svefn­mark­aði yfir í markað sem verði með mikla sam­keppni. Slík gæti leitt af sér kerf­is­læga áhættu og ógnað fjár­mála­legum stöð­ug­leika.

Þá segir að styrkja þurfi alla laga- og reglu­um­gjörð í kringum fjár­mála­kerfið og auka eft­ir­lit með því, að því er segir í yfir­lýs­ingu AGS. Auk þess þurfi að tryggja sjálf­stæði þess eft­ir­lits með skýr­ari hætti. Ein leið til þess væri sú að sam­eina allt eft­ir­lit með bönkum hjá Seðla­banka Íslands en láta FME eftir eft­ir­lit með annarri fjár­mála­starf­semi. Leggja þurfi áherslu á að fá hágæða­eig­endur að íslenskum bönk­um, segir í yfir­lýs­ing­unni.

Tekur undir með AGS

Blaða­maður sendi fyr­ir­spurnir til FME vegna þeirrar umsagnar sem sendi­nefnd AGS birti um stöð­una hjá FME.

AGS segir að það þurfi að styrkja veru­lega eft­ir­lit með fjár­mála­mörk­uðum, meðal ann­ars með því að efla sjálf­stæði og bæta, svo til þvert yfir, allt eft­ir­lit. Hver eru ykkar við­brögð við þessu mati/gagn­rýni? Teljið þið hana eiga við rök að styðj­ast?

„Fjármala­eft­ir­litið tekur undir þá skoðun AGS að losun fjár­magns­hafta boði nýtt tíma­bil á fjár­mála­mark­aði með auk­inni áhættu­töku mark­aðs­að­ila og að í því felist auknar áskor­anir fyrir fjár­mála­eft­ir­lit. Í þessu sam­bandi má nefna að Fjár­mála­eft­ir­litið hefur unnið að umfangs­miklum umbóta­verk­efnum á síð­ustu árum sem ekki er að fullu lokið. AGS hefur fylgst með þeirri þróun og gefið það álit að veru­legar umbætur hafa átt sér stað. Þetta kemur fram í eldri skýrslum AGS og mun vænt­an­lega koma fram í loka­skýrslu vegna heim­sóknar þeirra í ár. Ábend­ingar AGS í yfir­lýs­ingu sendi­nefnd­ar­innar frá 28. mars, sem spurt er um, snúa fyrst og fremst að fjár­hags­legu sjálf­stæði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og að ein­hverju leyti að heim­ildum til að setja reglur. Fjár­mála­eft­ir­litið tekur undir með AGS að mik­il­vægt sé að tryggja, m.a. með fyr­ir­komu­lagi fjár­mögn­unar, að Fjár­mála­eft­ir­litið sé sjálf­stætt í störfum sínum. Meðal ann­ars af þessum ástæðum hefur Fjár­mála­eft­ir­litið í nokkur ár kallað eftir end­ur­skoðun á lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi, líkt og AGS gerir í yfir­lýs­ingu sinni.

Vald­heim­ildir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins hafa styrkst veru­lega með nýlegri lög­gjöf, einkum vegna inn­leið­ingar á meg­in­gerðum ESB um fjár­mála­fyr­ir­tæki og vátrygg­inga­fé­lög (CRDIV/CRR og Solvency II) og telur Fjár­mála­eft­ir­litið ekki að þeim sé ábóta­vant í neinum meg­in­at­riðum. Vissu­lega geta nýjar áhættur og þörf fyrir nýjar vald­heim­ildir komið upp, en telja verður eðli­legt að slíkar heim­ildir komi fram með skýrum hætti í íslenskum lögum.“

Traust eignarhald

Hvernig horfir við ykkur það mat AGS, að það þurfi að ein­blína á trú­verð­ugt og traust eign­ar­hald á fjár­mála­kerf­inu?

„Þessar ábend­ingar eiga alltaf við og eru skilj­an­legar í ljósi sög­unnar og aðstæðna nú. Þeim virð­ist þó fremur beint að örum stjórn­völdum en Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Hlutverk Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í þessu ferli er fyrst og fremst að gæta að hæfi virkra eig­enda, stjórn­ar­manna og stjórn­enda í fyr­ir­tækjum á fjár­mála­mark­aði. Söluverð eða hraði sölu­fer­ils hafa engin áhrif á þau við­mið sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur til hlið­sjónar við slíkt mat.“

Hvernig sjáið þið þessa leið­sögn eða umsögn AGS, í sam­hengi við kaup vog­un­ar­sjóða á Wall Street ásamt að litlu leyti Goldman Sachs bank­ans, á hlut í Arion banka?

„Umrædd við­skipti eru birt­ing­ar­mynd þeirra breyt­inga sem vísað var til hér að ofan. Fjár­mála­eft­ir­litið telur, rétt eins og AGS, afar mik­il­vægt að allir þeir sem koma að sölu fjár­mála­fyr­ir­tækja gæti ýtr­ustu var­færni og hugi vand­lega að mik­il­vægi upp­bygg­ingar trausts á fjár­mála­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár