Arion banki hefur birt upplýsingar um endanlega eigendur bankans á vef sínum. Bankinn óskaði eftir því að fá upplýsingar um endanlega eigendur þeirra aðila sem keyptu 29,18 prósent hlut í bankanum um síðustu helgi, og ættu umfram eitt prósent hlutafjár.
[links]Kaupskil eru enn stærsti eigandi bankans og fer með 57,9 prósent hlut. Bankasýsla ríkisins á 13,0 prósent en restina eiga fjórir vogunarsjóðir sem Kjarninn hefur fjallað um á undanförnum dögum. Enginn sjóðanna á meira en 10 prósent hlut.
Í frétt á vef Arion banka kemur fram að enginn einstaklingur eigi meira en tíu prósent af hlutafé, beint eða óbeint, í þeim félögum sem fara með eignarhluti í Arion banka.
Hluthafar og stærð eignahluta þeirra er:
- Kaupskil ehf. – 57,9 prósent
- Bankasýsla ríkisins – 13,0 prósent
- TCA New Sidecar III s.a.r.l (Taconic Capital Advisors) – 9,999 prósent
- Trinity Investments Desinate Activity Company (Attestor Capital LLP) – 9,999 prósent
- Sculptor Investments s.a.r.l (Félag tengt Och-Ziff Capital Managment Group) – 6,6 prósent
- ELQ Investors II Ltd. (Goldman Sachs International) – 2,6 prósent
[adspot]
Í útskýringum við eignarhluti vogunnarsjóðanna segir um Attestor Capital LLP að tveir menn hafi veruleg áhrif á stefnu félagsins í samræmi við uppbyggingu eignarhalds félagsins. Þeir eru Jan Peters og Anke Heydenreich.
Um Sculptor Investments segir að það sé óbeint í fullri eigu fjárfestingasjóða sem stýrt sé af Och-Ziff Capital Management Group. Þar hafi Daniel S. Och heimild á grundvelli eignarhluta og umboðssamninga til þess að fara með rúmlega helmings atkvæðisrétts samanlagt gagnvart öllum hlutum sem gefnir eru út af Och-Ziff Capital Management Group LLC sem er móðurfélag Och-Ziff Capital Management Group.
Um Tactonic Capital Advisors segir að því félagi sé stýrt af Frank Brosens, en að TCA New Sidecar III hafi ákvörðunarvald um fjárfestingar Tactonic.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir