Ólafur áfram á toppnum - fjórðungur vill Guðna Th.

Guðni Th. Jóhann­es­son er með 25 pró­senta fylgi í nýrri könnun. Ólafur Ragnar Grímsson er áfram með yfir­burða­fylgi. Andri Snær Magnason mælist með 15 pró­sent. Kosning erlendis hófst í dag. Guðni og Berglind Ásgeirs­dóttir til­kynna ákvörðun sína brátt.

Guðni Th. Jóhannesson tilkynnir brátt hvort hann ætli að bjóða sig fram til forseta Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnir brátt hvort hann ætli að bjóða sig fram til for­seta Íslands.

Fjórð­ungur aðspurðra vill að Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur verði for­seti Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson er eftir sem áður með lang­mest fylgi og mælist með 46 pró­sent, í nýrri skoð­ana­könnun Maskínu. 15 pró­sent segj­ast ætla að kjósa Andra Snæ Magnason og 1,8 vilja Höllu Tóm­as­dóttur. Guðni hefur enn ekki til­kynnt hvort hann ætli að bjóða sig fram, en sagð­ist í gær ætla að gera það mjög bráð­lega. Þetta er fyrsta könn­unin sem birt­ist um fylgi Guðna eftir að hann íhug­aði alvar­lega að bjóða sig fram til for­seta. Könnun Maskínu var gerð dag­ana 18. til 29. apríl. Nær þriðj­ungur svar­enda á eftir að gera upp hug sinn og tekur ekki afstöðu til fram­bjóð­enda.

Unga fólkið og framsóknarmenn vilja Ólaf

Ólafur er með mikið yfir­burða­fylgi meðal yngstu kjós­end­anna, en þrír af hverjum fjórum vilja að hann sé for­seti áfram. Hann er með 32 til 45 pró­senta fylgi í öðrum ald­urs­hópum. Meira en 30 pró­sent þeirra sem eru 45 ára eða eldri segj­ast ætla að kjósa Guðna Th. en hann hefur ekk­ert fylgi meðal yngstu kjós­end­anna. Andri Snær nýtur mests stuðn­ings þeirra sem eru 25 til 44 ára, en 22 pró­sent þeirra segj­ast ætla að kjósa hann. 

Ólafur Ragnar nýtur mests stuðn­ings meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Nið­ur­stöður Maskínu ríma vel við nýjasta Þjóð­ar­púls Gallup þar sem fram kom að 83 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks eru ánægðir með fram­boð hans og 71 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna. Könnun Maskínu leiðir í ljós að fjórir af hverjum fimm kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks vilja Ólaf Ragnar og sjö af hverjum tíu kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks. Ólafur nýtur minnsta stuðn­ings meðal kjós­enda Bjartrar fram­tíðar og Sam­fylk­ingar. Guðni hefur aftur á móti mestan stuðn­ing meðal kjós­enda Bjartrar fram­tíðar, Sam­fylk­ingar og Pírata en minnstan meðal kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna.

Fylgi Ólafs og Guðna tók stökk í Wintris-málinu

Maskína hefur spurt opið frá ára­mótum hvern fólk vill sjá í emb­ætt­inu. Svar­endur fengu því ekki fyr­ir­fram gefna mögu­leika og þurftu að skrifa niður nafn þess sem þeir vildu sjá. Guðni Th. var fólki ekki ofar­lega í huga fyrr en í kring um þann tíma sem Ólafur til­kynnti um fram­boð sitt. Fylgi Ólafs hefur þró­ast mikið síðan frá ára­mótum, en hann mæld­ist með sjö til tíu pró­senta fylgi frá jan­úar til mars, en fyrri part­inn í apríl fór fylgið upp í 20 pró­sent og svo í tæp­lega 46 pró­sent eftir að hann til­kynnti fram­boð. Fylgi Höllu hefur dalað.

Auk Ólafs, Andra, Höllu og Guðna voru Katrín Jak­obs­dóttir, Hrannar Pét­urs­son og Ástþór Magn­ús­son einnig nefnd í síð­ustu könnun.

Svar­endur í könn­unum í jan­úar og febr­úar voru í kring um 400 og þá voru mjög margir sem tóku ekki afstöðu. í þremur nýj­ustu könn­un­unum í mars og apríl voru svar­endur Maskínu á bil­inu 870 til 1080.

Þorgerður ætlar ekki fram og Berglind komin til landsins

Ellefu manns eru nú í fram­boði til for­seta Íslands. Fimm hafa dregið fram­boð sitt til baka eftir að Ólafur Ragnar til­kynnti ákvörðun sína; Vigfús Bjarni Alberts­son, Bæring Ólafsson, Guð­mundur Franklín, Heimir Örn Hólmars­son og Hrannar Pét­urs­son.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra, hefur íhugað fram­boð lengi. Hún gaf það út í þætt­inum Vikunni á RÚV í gær að hún ætli ekki að gefa kost á sér. Berglind Ásgeirs­dóttir, sendi­herra í Frakk­landi, er komin til lands­ins til að ræða við bak­land sitt um mögu­legt fram­boð. Samkvæmt RÚV er stutt í að hún til­kynni ákvörðun sína.

Fleiri hafa verið nefndir í tengslum við fram­boð en hafa ekki gert upp hug sinn. Má þar nefna Stefán Jón Hafstein, Ellen Calmon, Guðrúnu Nordal og Sigrúnu Stef­áns­dóttur.

Kosning í útlöndum hófst í dag

Kosning utan kjör­fundar erlendis vegna for­seta­kosn­ing­anna má hefj­ast í dag, 30. apríl. Algeng­ast verður þó að fram­kvæmd kosn­ing­anna hefj­ist ekki fyrr en á mánu­dag, þar sem margar stofn­anir eru lok­aðar í dag. Ef Íslend­ingur hefur búið erlendis í meira en átta ár þarf að til­kynna sig aftur inn á kjör­skrá og rann frestur til þess út þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Það hefur staðið lengi til að end­ur­skoða þessi lög um utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu, í ljósi þess að kosn­ing hefst áður en það liggur ljóst fyrir hverjir verði end­an­lega í fram­boði. Þannig er auð­veld­lega hægt að kjósa fólk nú sem ekki hefur boðið sig form­lega fram og mun mögu­lega ekki gera það þegar á hólm­inn er komið, og ekki hægt að kjósa fólk sem mun mögu­lega bjóða sig fram áður en fram­boðs­frestur rennur út.

Tíminn styttist óðum

Tilkynna þarf fram­boð form­lega til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í síð­asta lagi fimm vikum fyrir kosn­ingar, eða fyrir mið­nætti föstu­dag­inn 20. maí. Fram­boð­unum skal fylgja sam­þykki for­seta­efnis, nægi­legur fjöldi með­mæl­enda sem vott­aður skal af við­kom­andi yfir­kjör­stjórn um að með­mæl­end­urnir séu kosn­ing­ar­bærir. For­seta­kosn­ing­arnar verða laug­ar­dag­inn 25. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár