Forseti Íslands ítrekað notaður í svikapóstum

Facebook-aðgangur í nafni Guðna Th. Jóhann­ess­sonar, for­seta Íslands, hefur ítrekað birst á frétta­veitum not­enda. For­seta­emb­ættið hefur gert lög­reglu við­vart en færsl­urnar birt­ast alltaf aftur.

Svikapóstur í nafni forseta Íslands dúkkar reglulega upp á Facebook.
Svika­póstur í nafni for­seta Íslands dúkkar reglu­lega upp á Facebook. Mynd: Skjáskot: Facebook

Svika­póstur í nafni for­seta Íslands hefur verið í dref­ingu síðan fyrir jól. Svo virð­ist sem um eins konar staf­rófs­happa­drætti sé að ræða þar sem „for­set­inn“ seg­ist hafa valið 200 manns af handa­hófi og fer það eftir upp­hafs­staf hversu háa upp­hæð við­kom­andi fær, allt frá 50-90 þús­und krónum. Mynd af for­seta­hjón­unum, Guðna Th. Jóhann­essyni og Elizu Reid, fylgir færsl­unni auk mynda af árit­uðum umslögum og pen­inga­seðlum.

Una Sig­hvats­dóttir, sér­fræð­ingur hjá emb­ætti for­seta Íslands, segir svika­síður sem þessar skjóta öðru hverju upp koll­inum. „Okkur er kunn­ugt um þessa til­teknu síðu og var lög­reglu gert við­vart um hana fyrir jól,“ segir hún.

Þetta er ekki fyrsta dæmið þar sem settar eru upp síður á sam­fé­lags­miðlum í nafni for­seta Íslands en allar síð­urnar hafa verið til­kynntar til lög­reglu að sögn Unu. Hópurinn þar sem nýjasti svika­póst­ur­inn birt­ist, sem gengur undir heit­inu „Stétta­bar­áttan“, hefur oftar en einu sinni verið til­kynntur til lög­reglu. „En því miður án árang­urs enn sem komið er,“ segir Una.

Hópurinn er með fáa fylgj­endur og færsl­urnar fá yfir­leitt lítil við­brögð. Una segir að engu að síður sé mik­il­vægt að fólk hafi var­ann á þar sem alltaf sé hugs­an­legt að ein­hver láti blekkj­ast. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur vakið athygli á svika­síðum sem þessum og í hafa varað við nýrri hrinu af svoköll­uðum vef­veiðum (e. phising). Lög­reglan beinir því til fólks sem fær svindl­pósta eða er í vafa að hafa sam­band með tölvu­pósti, abendingar@lrh.is eða cybercrime@lrh.is. „Ef þið eruð í vafa, spyrjið okkur,“ segir í Facebook-færslu lög­regl­unnar frá því í des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár