Gjöf frá Gaza

Markmið verk­efn­is­ins Gjöf frá Gaza er að hjálpa palest­ínskum konum að halda fjár­hags­legu sjálf­stæði sínu svo þær geti fram­fleytt sér og fjöl­skyldum sínum. Nú má kaupa vörur Gaza Company á Karolina­fund og styðja þannig við verk­efnið.

Vörur Gaza Company byggja hvort tveggja á íslenskum og palenstínskum hefðum í saumaskap.
Vörur Gaza Company byggja hvort tveggja á íslenskum og palen­stínskum hefðum í sauma­skap.

Gjöf frá Gaza er sam­fé­lags­drifið fram­tak Gaza Company í þágu palest­ínskra kvenna í Gaza. Markmið verk­efn­is­ins er að hjálpa þeim konum að halda fjár­hags­legu sjálf­stæði sínu svo þær geti fram­fleytt sér og fjöl­skyldum sínum. Samhliða því er mark­mið verk­efn­is­ins að við­halda æva­gam­alli hand­verks­hefð kvenna á Gaza svæð­inu; svæði þar sem fólk er að berj­ast upp á líf og dauða fyrir til­veru sinni, fyrir menn­ingu sinni og til­svar­andi rétti til lands­ins sem það hefur byggt frá örófi alda. Kross­saumur er mik­il­vægur hluti af palest­ínskri kvenna­menn­ingu. Um aldir alda hafa palest­ínskar konur miðlað fróð­leik og sögnum sín á milli á meðan þær saum­uðu og gerðu kjóla. Nú vinna um 50 palen­stínskar konur á vegum Gaza Company að því að við­halda þeirri menn­ingu með fram­leiðslu á fal­legum, handunnum og vönd­uðum vörum. Helsti hug­mynda­smið­ur­inn, hönn­uð­ur­inn og stýran að baki verk­efn­inu er Najlaa Atta­allah. Najlaa kemur frá Palest­ínu en hefur verið búsett á Íslandi í rúm­lega tvö ár, þar sem hún hefur unnið hörðum höndum að stofnun og rekstri þessa fyr­ir­tækis kvenna í Gaza.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef um langa hríð unnið að alþjóð­legum verk­efnum í þágu kvenna í gegnum félaga­sam­tök sem hafa það að leið­ar­ljósi að efla fjár­hags­legan hag kvenna, í því skyni að tryggja þeim lífs­við­ur­væri og sjálf­stæði. Í þeirri vinnu minni sá ég þörf­ina fyrir því að styðja við vinnu kvenna sem þurfa á slíkri aðstoð að halda og kynna verk þeirra fyrir almenn­ingi. Í kjöl­far þess að hafa lokið námi mínu við kynja­fræði í Háskóla Íslands, þá ákvað ég að láta gott af mér leiða í þágu palest­ínskra kvenna. Ég hef alltaf verið hug­fangin af handa­vinnu palest­ínskra kvenna og fundið hjá mér þörf til að deila þeiri kvenna­list með öðrum; miðla sögu okkar í saum­sporum.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Vöru­hönn­unin er fyrst og fremst inn­blásin af palest­ínskri menn­ingu, þar sem við sögu koma mynstur, litir, og önnur þekk­ing á hand­verki og list­rænum hefðum sem hefur skilað sér kyn­slóð fram af kyn­slóð á Gazasvæðinu. Auk þessa grunns erum við að vinna sam­hliða að því að þróa og fram­leiða margs­konar vörur sem byggja hvort tveggja á íslenskum og palen­stínskum hefðum í sauma­skap. Sú nýsköp­un­ar­vinna sem felst í þeim sam­runa tveggja ólíkra menn­ing­ar­heima sem birt­ast þannig í saum­verkum er ein­stak­lega spenn­andi. Allar vör­urnar eru hand­gerðar og öll efnin sem við vinnum með eru umhverf­is­væn - enda gætum við að öllum smá­astriðum í fram­leiðslu okkar. Við erum að fram­leiða vörur á borð við töskur, veski, sæng­ur­ver, slæður, snyrti­töskur, lykla­kippur o.fl. Nú þegar er hálft hund­rað kvenna sem vinnur verk­efn­inu. Allar lítum við á verk­efnið Gjöf frá Gaza sem félags­legt og póli­tískt verk­efni í þágu friðar og betra lífs fyrir palest­ínskar konur; bar­áttu sem háð er með saum­nálum í Gaza. Verk­efnið krefst mik­illar og víð­femar þekk­ingar og því var þörf að ráða konur alls staðar frá Gaza svæð­inu, sem búa yfir mis­mun­andi sér­þekk­ingu. Ég hef yfir­um­sjón með vöru­hönn­un­inni héðan frá Íslandi. Hún Abeer Al-kai­yal hefur yfir­um­sjón með allri útfærslu á mynstr­unum í kross­saum, ásamt því sem hún hefur umsjón með fram­göngu verk­anna í Gaza. Auk þess hef ég notið þess að fá hjálp frá fjöl­skyldu minni sem hefur mikla trú á þessu verk­efni. Ég vil einnig þakka vin­konu minni Gyðu Björgu Sig­urð­ar­dóttur sem hvatti mig til að hefja þessa veg­ferð í þágu kvenna á sínum tíma.“

„Verk­efnið Gjöf frá Gaza er mið­ill, tungu­mál, sem ég og aðrar palen­stínskar konur notum við tján­ingu sem gefur þeim og fjöl­skyldum þeirra færi á að draga fram lífið í stríðs­hrjáðri Palest­ínu. Um leið gefur verk­efnið færi á að eiga í upp­byggi­legum sam­skiptum við Íslend­inga sem hafa reynst Palest­ínsku þjóð­inni mik­il­væg hjálp­ar­hella á þeim umbrota­tíma Palest­ínu sem enn veldur því að þjóðin er í gísl­ingu í eigin landi. Listin að sauma sam­einar þannig ekki bara konur þess­ara landa heldur einnig fjöl­skyldur þeirra - og varðar þannig veg list­ar­innar að lifa af.“

Hér er hægt að taka þátt í verk­efn­inu og kaupa vörur frá Gaza

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár