Fyrsta svarta konan við hæstarétt – 232 árum eftir stofnun hans

Ketanji Brown Jackson veit að hún er fyr­ir­mynd margra og að sú ábyrgð sé mikil. En hún er til­búin að axla hana. Ég tekst á við þetta með gjöfum for­feðra minna. Ég er draumur og von þræl­anna.“

Ketanji Brown Jackson er 51 árs, fædd í Washington en uppalin í Miami.
Ketanji Brown Jackson er 51 árs, fædd í Washington en upp­alin í Miami. Mynd: EPA

„Það liðu 232 ár og tók 115 aðrar til­nefn­ingar áður en kom að því að svört kona væri valin til að sitja í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna. En við höfum náð hingað. Við höfum gert það. Við öll.“

Þetta sagði Ketanji Brown Jackson í apríl er öld­unga­deild banda­ríska þings­ins hafði sam­þykkt til­nefn­ingu hennar í emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Á fimmtu­dag sór hún emb­ætt­is­eið sinn. Hún er sjötta konan sem tekur sæti í dómnum, tekur við af Stephen Breyer sem orð­inn er 83 ára og sest nú í helgan stein eftir tæpa þrjá ára­tugi við dóm­stól­inn.

[adspot]

Joe Biden for­seti til­nefndi Jackson í emb­ættið í vetur er ljóst var að Breyer myndi senn láta að störfum. Til­nefn­ingin var tekin til atkvæða­greiðslu í öld­unga­deild­inni í byrjun apríl og var sam­þykkt með 53 atkvæðum þing­mann­anna gegn 47.

Emb­ætt­is­taka Jackson er sögu­leg í ýmsum skiln­ingi. Hún er ekki aðeins aðeins sjötta konan sem tekur sæti í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna heldur fyrsta svarta konan. 116 dóm­arar hafa setið í rétt­inum frá stofnun hans.

Jackson tók við emb­ætt­inu við lát­lausa og fámenna athöfn. Hún sór emb­ætt­is­eið sinn á biblíu í eigu fjöl­skyldu sinnar og aðra sem er í eigu dóm­stóls­ins. Eig­in­maður hennar, lækn­ir­inn Patrick, hélt á bók­unum er hún lagði hönd sína á þær og sór að sinna störfum sínum af heil­indum án þess að fara í mann­grein­ing­ar­á­lit. Við dóm­stól sem hefur svo sann­ar­lega verið umdeildur – ekki síst síð­ustu vikur eftir að meiri­hluti hans sneri við ríf­lega hálfrar aldar nið­ur­stöðu í máli Roe gegn Wade er tryggt hafði stjórn­ar­skrár­bund­inn rétt til þung­un­ar­rofs.

Seta Jackson í hæsta­rétti mun ekki breyta því valda­hlut­falli milli þeirra tveggja blokka sem þykja ein­kenna hann; íhalds­samra dóm­ara ann­ars vegar og frjáls­lynd­ari hins vegar. Sex dóm­arar falla í fyrri flokk­inn og þrír áfram í þann seinni.

„Á tímum þar sem hægri öfga­stefna eitrar hæsta dóm­stól lands­ins okkar mun hún hafa rödd – og atkvæði – sam­kenndar, virð­ingar fyrir mann­rétt­indum, lögum og reglum,“ sagði Derrick Johnson, for­seti N.A.A.C.P., sam­taka sem berj­ast rétt­indum fólks sem er dökkt á hör­und. „Þetta eru stærstu fréttir fyrir svart fólk í Banda­ríkj­unum í langan, langan tíma.“

Öld­ung­ar­deild­ar­þing­menn úr röðum repúblik­ana sóttu hart að Jackson er hún kom fyrir þing­nefnd eftir til­nefn­ingu sína til að svara spurn­ingum. Þeir reyndu að gera hana tor­tryggi­lega með ásök­unum um að hún tæki af lin­kind á kyn­ferð­is­brotum gegn börnum og reyndu að kveikja elda með því að spyrja hvernig hún skil­greindi orðið „kona“, svo dæmi séu tekin.

Þrír þing­menn Repúblikana­flokks­ins greiddu hins vegar að lokum með til­nefn­ingu hennar, þau Mitt Romney, Lisa Murkowski og Susan Collins.

Jackson fædd­ist í höf­uð­borg­inni Washington árið 1970 en ólst upp í Miami. Hún útskrif­að­ist úr Harvard-háskóla. Hún starf­aði næstu árin m.a. sem aðstoð­ar­maður Breyers hæsta­rétt­ar­dóm­ara, sak­sókn­ari og síðar dóm­ari við áfrýj­unar- og umdæm­is­dóm­stóla í Washington. Faðir hennar, Johnny Brown, er lög­fræð­ingur og var sak­sókn­ari í Miami-Dade sýslu og móðir hennar, Ellery, var skóla­stjóri í lista­skóla. Jackson-hjónin eiga tvær dætur; Leilu og Taliu.

Eftir að Jackson sór sinn emb­ætt­is­eið við­ur­kenndi hún að til­hugs­unin um að vera fyr­ir­mynd svo margra væri nokkuð yfir­þyrm­andi en að hún væri til­búin í að taka þá ábyrgð. Hún gerði orð úr ljóði Mayu Angelou að sínu og sagði: „Ég tekst á við þetta með gjöfum for­feðra minna. Ég er draumur og von þræl­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár