„Besta jólakveðja sem ég hef nokkru sinni fengið“

Það er þungu fargi létt af Heiðu Guðnýju Ásgeirs­dóttur, bónda í Skaft­ár­hreppi. Jóla­kveðjan í ár, sú besta sem hún hefur nokkru sinni fengið, er sú að frið­lýs­ing­ar­ferli Skaftár er hafið. Þar með verður Búlands­virkjun, sem hún hefur barist gegn, úr sög­unni.

Heiða Guðný ásamt tryggum vini sínum, hundinum Fífli.
Heiða Guðný ásamt tryggum vini sínum, hund­inum Fífli. Mynd: Úr einkasafni

Nýverið barst Heiðu Guðnýju Ásgeirs­dóttur, bónda á Ljót­ar­stöðum í Skaft­ár­tungu, ábyrgð­ar­bréf í pósti. Í því leynd­ust tíma­móta­fréttir: Lagt hefur verið til að friða vatna­sviðs Skaftár, svæð­is­ins sem orku­fyr­ir­tæki hafa í fleiri ár sóst eftir að virkja. Og með frið­lýs­ing­unni yrði Búlands­virkjun, sem Heiða hefur barist af krafti gegn, aldrei byggð. „Þetta er besta jóla­kveðja sem ég hef nokkru sinni fengið,“ segir Heiða Guðný við Kjarnann, innt eftir við­brögðum við frið­lýs­ing­ar­til­lög­unni.

En þar sem þetta er til­laga og frið­lýs­ingin ekki í höfn spyr blaða­maður hvort hún ótt­ist að babb eigi eftir að koma í bát­inn. „Ég trúi því að þetta haldi,“ svarar Heiða, „en er líka búin að læra það að ekk­ert er öruggt í þessu lífi, sér­stak­lega ekki ef það eru pen­ingar ein­hvers staðar í spil­inu.“

[adspot]

Samkvæmt lögum um vernd- og orku­nýt­ingu land­svæða, ramma­á­ætlun, skal frið­lýsa þau svæði sem ákveðið er að setja í vernd­ar­lokk áætl­un­ar­innar, eða eins og segir orð­rétt í lög­unum: „Stjórn­völd skulu þegar Alþingi hefur sam­þykkt verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun hefja und­ir­bún­ing að frið­lýs­ingu land­svæða sem ástæða þykir til að frið­lýsa gagn­vart orku­vinnslu sam­kvæmt vernd­ar­flokki áætl­un­ar­innar.“

Virkj­un­ar­kost­ur­inn Búlands­virkjun, sem Suð­ur­orka, dótt­ur­fé­lag HS Orku, hefur verið með á teikni­borð­inu í Skaftá rétt við Hóla­skjól, var settur í bið­flokk 2. áfanga ramma­á­ætl­unar. Verk­efn­is­stjórn 3. áfang­ans lagði árið 2016 til að hann færi í vernd­ar­flokk. Árin liðu og það var ekki fyrr en í vor, tæpum sex árum síðar, sem Alþingi afgreiddi til­lög­una. Og þar með var Búlands­virkjun komin í vernd­ar­flokk.

Það þýðir þó ekki að ekki megi hreyfa við þeirri flokkun. Raunin er sú að Alþingi getur ákveðið að færa virkj­un­ar­kosti innan ramma­á­ætl­unar svo lengi sem virkj­un­ar­leyfi hefur ekki verið gefið út fyrir kosti í nýt­ing­ar­flokki og kostir í vernd­ar­flokki hafa ekki verið frið­lýstir með lögum.

Umhverf­is­stofnun hefur nú lagt fram til kynn­ingar til­lögu að frið­lýs­ingu vatna­sviðs Skaftár á grund­velli flokk­unar virkj­un­ar­kost­ar­ins Búlands­virkj­unar í ramma­á­ætlun. Til­gang­ur­inn er að vernda vatna­sviðið gegn orku­vinnslu. Frið­lýs­ingin nær til alls vatna­sviðs Skaftár ofan fyr­ir­hug­aðra stíflu­mann­virkja og meg­in­far­vegs árinnar og næsta nágrennis hans til sjávar.

Frestur til að skila athuga­semdum við til­lög­una er til og með 2. febr­úar 2023. Að kynn­ing­ar­tíma loknum tekur Umhverf­is­stofnun saman umsögn um fram­komnar athuga­semdir og vísar til­lögu að frið­lýs­ing­ar­skil­málum til ráð­herra.

[links]Suð­ur­orka áform­aði að reisa 150 MW virkjun í Skaftá, í 319 m hæð yfir sjó, rétt við Hóla­skjól. Þar átti að rísa stífla þvert yfir ána og veita bæði Skaftá og bergvatns­ánni Syðri-Ófæru í göngum inn í grunnan dal við Þor­valdsaura. Þar stóð til að gera um 10 fer­kíló­metra miðl­un­ar­lón. Stöðv­ar­hús átti að byggja við suð­aust­ur­enda lóns­ins og þaðan átti að veita vatn­inu um önnur göng og út í Skaftá, skammt frá bænum Búlandi sem virkj­un­ar­kost­ur­inn dregur nafn sitt af.

Fram­kvæmdin myndi hafa áhrif á þrjár ár; Skaftá sjálfa, Syðri-Ófæru og Tungufljót. Þetta hefði þýtt að far­vegur Skaftár yrði vatns­lít­ill á 14-15 kíló­metra kafla. Fram­kvæmdin hefði einnig haft áhrif á Syðri-Ófæru og Tungufljót en þar stóð til að reisa stíflu í Rás­gljúfri og miðl­un­ar­lónið hefði roðið í far­vegi þess. Talið er að vatns­magn í Tungufljóti þar sem það rennur í Kúða­fljót hefði minnkað um 50 pró­sent og áin því ekki áfram til í núver­andi mynd.

[adspot]

Skaftá á upp­tök sín í Skaft­ár­jökli í vest­an­verðum Vatna­jökli. Jök­ul­hlaup eru algeng í Skaftá en þau verða vegna jarð­hita undir jökli í Skaft­ár­kötlum. Það svæði sem Búlands­virkjun var áformuð á er stór­brotið, enda rétt við Eldgjá, hina 75 kíló­metra löngu gossprungu sem er hluti af Kötlu­kerf­inu og gaus árið 939. Ófæru­foss fellur ofan í gjána, sem til­heyrir Vatna­jök­uls­þjóð­garði og er svæðið vin­sælt til úti­vistar.

Heiða Guðný lýsti bar­áttu sinni gegn Búlands­virkjun í bók Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur, Heiða – fjall­dala­bóndi sem kom út árið 2016. Hún hafði áður vakið athygli á mál­inu, m.a. með skrifum sínum, og bar­áttan leiddi hana í póli­tík í Skaft­ár­hreppi. Hún hefur nú sagt skilið við þann kafla.

Er verk­efn­is­stjórn 3. Áfanga ramma­á­ætl­unar lagði til að Búlands­virkjun færi í vernd­ar­flokk héldu margir að þar með væri málið í höfn. Að öllu tali um virkj­un­ina væri þar með sjálf­hætt. En það reynd­ist ekki raunin. HS Orka gaf Búlands­virkjun ekki svo auð­veld­lega upp á bát­inn og sagði við Kjarnann í fyrra að hún teldi kost­inn eiga „fullt erindi í nýt­ing­ar­flokk“ ramma­á­ætl­unar. End­ur­meta ætti þá þætti sem taldir voru nei­kvæðir og urðu til þess að virkj­unin var sett í vernd­ar­flokk til­lög­unnar. „Að heyra þetta var enn eitt höggið í kvið­inn,“ sagði Heiða í við­tali við Kjarnann af þessu til­efni. Hún sagði að hins vegar hefði mátt eiga von á því þar sem til­laga ramma­á­ætl­unar væri enn óaf­greidd og svæðið ekki frið­lýst. „Á meðan staðan er þannig þá er þetta yfir­vof­andi hætta. Þetta er ekki búið.“

En núna, þegar frið­lýs­ing­ar­á­formin eru komin fram, er til­finn­ingin allt önnur. „Hún er dásam­leg,“ segir Heiða. „Skaftá kom á undan okkur og hún mun lifa okkur öll, þangað til okkur tekst að bræða Vatna­jökul það er að segja. Það er svo ekki síður gleði­leg stað­reynd að Tungufljót muni um ókomna tíð halda sínu blá­tæra vatns­magni og renna í friði um sín móbergs­gljúfur og aura og fram­hjá kot­inu mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

búlandsvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár