Lítil ást heimamanna á náttúrunni stingur mest

„Það þýðir ekki að guggna,“ segir Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir bóndi og sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Skaft­ár­hreppi sem berst gegn því að virkjað verði í Hverf­is­fljóti, einu yngsta árgljúfri heims.

Heiða Guðný ásamt tryggum vini sínum, hundinum Fífli.
Heiða Guðný ásamt tryggum vini sínum, hund­inum Fífli. Mynd: Úr einkasafni

Það er alltaf jafn sárs­auka­fullt að upp­lifa það hversu kæru­lausir heima­menn eru gagn­vart nátt­úr­unni. Hversu ótrú­lega lítil ást þeirra er á þess­ari stór­kost­legu nátt­úru sem umlykur þá. Það er það sem stingur mig mest.“

Heiða Guðný Ásgeirs­dóttir, bóndi á Ljót­ar­stöðum í Skaft­ár­tungu, er þekkt fyrir bar­áttu sína gegn virkjun í Skaftá, svo­kall­aðri Búlands­virkjun, fyrir um ára­tug síðan. Hún skrif­aði greinar, kom fram í við­tölum og um hana sjálfa og bar­áttu hennar skrif­aði Steinunn Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur síðar vin­sæla bók: Heiða – fjall­dala­bónd­inn.

Baráttan kveikti áhuga Heiðu á póli­tík og í átta ár hefur hún setið í sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps sem full­trúi Z-list­ans, lista sem sett hefur umhverf­is­mál á odd­inn. Kæru­leysi gagn­vart nátt­úr­unni er Heiðu nú aftur ofar­lega í huga en vegna ann­arrar áform­aðrar virkj­unar í Skaft­ár­hreppi: Hnútu­virkj­unar.

Samþykkt var á síð­asta fundi sveit­ar­stjórn­ar­innar að gefa út fram­kvæmda­leyfi fyrir virkj­un­ina. Þriggja manna meiri­hluti, skip­aður full­trúum D-lista Sjálf­stæð­is­flokks, fram­kvæmdi þennan gjörn­ing, segir Heiða, sem er í minni­hluta ásamt sam­flokks­konu sinni, líf­fræð­ingnum Jónu Björk Jóns­dóttur. „Þetta er sárt. Það er svo margt rangt við þetta. Og þetta er svo þung­bært á þessu land­svæði hér.“

Og þar sem umhverf­is­mati er lokið og búið að breyta aðal­skipu­lagi og sam­þykkja deiliskipu­lag, er í raun fátt því lengur til fyr­ir­stöðu að hefja bygg­ingu hennar. Nema að ákvörðun sveit­ar­fé­lags­ins verði kærð. Sem á að gera.

Ragnar Jónsson, eig­andi jarð­ar­innar Dals­höfða, er sá sem fer fyrir hinni fyr­ir­hug­uðu virkjun. Ragnar vill virkja jök­ul­ána Hverf­is­fljót við Hnútu. Virkj­unin, 9,3 MW að afli, yrði í hinu tæp­lega 240 ára gamla Eld­hrauni sem rann í Skaft­ár­eldum, einu mesta eld­gosi Íslands­sög­unnar og þriðja mesta hrauni sem runnið hefur á jörð­inni frá ísald­ar­lokum.

Um þetta atriði fjall­aði Skipu­lags­stofnun sér­stak­lega í áliti sínu á mats­skýrslu Ragnars sem gefið var út sum­arið 2020. Var nið­ur­staða stofn­un­ar­innar sú að virkj­unin myndi hafa nei­kvæð áhrif á Skaft­ár­elda­hraun sem hefði mikið vernd­ar­gildi bæði á lands­vísu og heims­vísu. Ekki væri hægt að að horfa til stærðar hrauns­ins og hlut­falls­legs rasks þess líkt og gert væri í mats­skýrsl­unni og bent á að um jarð­minjar væri að ræða sem nytu sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Þeim skal ekki raska nema brýna nauð­syn beri til og að almanna­hags­munir séu í húfi. „Skipu­lags­stofnun telur að ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauð­syn fyrir röskun á Skaft­ár­elda­hrauni.“

Að sögn Heiðu breytti þessi „fall­ein­kunn fag­stofn­unar“ þó ekki því, frekar en nei­kvæðar umsagnir stofn­anna á borð við Umhverfis- og Nátt­úru­fræði­stofnun, að meiri­hlut­inn hélt mál­inu til streitu og nú er komið að útgáfu fram­kvæmda­leyfis.

Náttúra Skaft­ár­hrepps er ein­stök og vegna hennar blómstrar þar ferða­þjón­usta sem er orðin stór tekju­lind fyrir sveit­ar­fé­lagið, segir Heiða. Land­bún­aður sæki svo í sig veðrið sam­hliða ferða­þjón­ust­unni þar sem fleira fólk er á svæð­inu og þjón­usta við íbúa þess vegna meiri og betri. „Og svo verður að muna að nátt­úran er gríð­ar­lega verð­mæt í sjálfri sér. Eld­hraunið er ungt og gljúfrin í stöðugri mótun og það er ein­stakt á heims­vísu að sjá slíka krafta að verki.“

Hraunið hafi sér­stakt vernd­ar­gildi, foss­arnir í Hverf­is­fljóti hafi það sömu­leiðis. Fram­kvæmdin myndi því að ganga gegn nátt­úru­vernd­ar­lögum. Svæðið er enn­fremur órofin lands­lags­heild. „Þegar heild­inni er raskað þá er búið að kroppa í glassúr­inn á kök­unni,“ segir Heiða. „Það er ein­fald­lega vand­ræða­legt að fólk sjái ekki hversu slæmt það er.“Virkj­ana­kost­ur­inn þurfti ekki að fara í gegnum ítar­legt ferli ramma­á­ætl­unar þar sem hann er innan við 10 MW að afli. Heiða gagn­rýnir þau stærð­ar­mörk og bendir á að 10 MW virkjun sé „engin smá­virkjun“ heldur gríð­ar­stór og hafi mikil umhverf­is­á­hrif.

En það eru ekki aðeins umhverf­is­á­hrifin sem Z-list­inn hefur varað við. Þær Heiða og Jóna full­yrða að þau rök meiri­hlut­ans að virkj­unin myndi bæta afhend­ingar­ör­yggi raf­orku í sveit­ar­fé­lag­inu stand­ist ekki. „Hverf­is­fljót ber með sér alveg gríð­ar­legt magn af fram­burði frá jöklunum,“ útskýrir Heiða. Áin á upp­tök sín úr Síðu­jökli í vest­an­verðum Vatna­jökli. Þaðan fellur hún með­fram eystri jaðri Eld­hrauns niður á Fljóts­eyrar rétt vestan Skeið­ar­ár­sands. „Á sumrin þegar fram­burð­ur­inn er hvað mestur þá þarf að stöðva virkj­un­ina út af þessum aur­burði. Á vet­urna er svo aftur mjög lítið vatn í Hverf­is­fljóti. Þá þyrfti vænt­an­lega að stoppa hana líka. Einmitt þegar eft­ir­spurnin er mest.“

Þetta er ekk­ert leynd­ar­mál enda frá þessu greint í skýrslum um fram­kvæmd­ina. „Svo er afhend­ingar­ör­yggið hér víst með því besta sem fyr­ir­finnst á land­inu,“ bætir hún við. Búið sé að leggja það í jörð að stærstum hluta og eins standi lag­fær­ingar á stóru spennu­virki við Prests­bakka fyrir dyrum. „Og af því að þessi rök meiri­hlut­ans stand­ast ekki skoðun þá verða þau ákaf­lega létt­væg. Það er ákaf­lega miklu til fórnað fyrir litla hags­muni.“

Í bókun Z-list­ans á sveit­ar­stjórn­ar­fund­inum var vakin athygli á því að þrír full­trúar í sveit­ar­stjórn sem fengu sam­tals 141 atkvæði í síð­ustu kosn­ingum séu að taka stórar ákvarð­anir um fram­kvæmdir sem hafi óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrif í einni af nátt­úruperlum lands­ins. Þetta 141 atkvæði sé 0,08 pró­sent af greiddum atkvæðum á lands­vísu í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018.

Er það þitt mat að lítil sveit­ar­fé­lög eigi ekki að hafa skipu­lags­vald yfir nátt­úru­auð­lindum?

„Þetta þarfn­ast grund­vall­ar­end­ur­skoð­unar,“ svarar Heiða. Skaft­ár­hreppur, nefnir hún sem dæmi, er sjö pró­sent af heild­ar­flat­ar­máli Íslands. „Af hverju geta örfáar hræður heima í hér­aði ráðið yfir svo stórum hluta lands­ins? Yfir þjóð­lendum sem eins og nafnið ber með sér eru eign þjóð­ar­innar? Þetta er ekki rétta leiðin. Þarna eru of fáir að fara með alltof mikla ábyrgð. Og það hefur sýnt sig ítrekað að fólk veldur þeirri ábyrgð ekki.“

Í bókun Z-list­ans er einmitt minnt á að valdi fylgir ábyrgð og Hnútu­virkjun sögð skýrt dæmi um að skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga án beinnar aðkomu fag­stofn­ana þurfi að end­ur­skoða þar sem „frænd­semi, vin­fengi og greiða­semi við nágranna geta leitt til ákvarð­ana með skelfi­legum óaft­ur­kræfum afleið­ingum fyrir heild­ar­hags­muni þjóð­ar­innar“.

Spurð um hvað átt sé nákvæm­lega við með þessu segir Heiða að hættan á hags­muna­tengslum í litlum sveit­ar­fé­lögum sé alltaf fyrir hendi. „Og þó að þau séu ekki til staðar þá er grunur um þau alltaf fyrir hendi. Það skapar ekki traust. Fámennið veldur þessu.“

Rennsli í Lambhagafossum í Hverfisfljóti mun skerðast með tilkomu Hnútuvirkjunar.
Rennsli í Lamb­haga­fossum í Hverf­is­fljóti mun skerð­ast með til­komu Hnútu­virkj­unar.

Búlands­virkjun í Skaftá var áformuð í næsta nágrenni við bæinn hennar Heiðu, Ljót­ar­staði í Skaft­ár­tungu. Í ágúst 2016 lagði verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar til að kost­ur­inn færi í vernd­ar­flokk. Margir héldu að þar með væri sú orr­usta unnin – að ekk­ert yrði af virkj­un­inni. Málið væri dautt. En þannig er það þó ekki. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sem byggir á nið­ur­stöðum verk­efn­is­stjórn­ar­innar, hefur enn ekki verið sam­þykkt, fimm og hálfu ári eftir að hún var fyrst lögð fram á Alþingi.

HS orka hefur ekki gefið Búlands­virkjun upp á bát­inn og sagði í svörum við fyr­ir­spurn Kjarnans í byrjun árs að hún ætti „fullt erindi í nýt­ing­ar­flokk“ ramma­á­ætl­unar. End­ur­meta ætti þá þætti sem taldir voru nei­kvæðir og urðu til þess að virkj­unin var sett í vernd­ar­flokk til­lög­unnar.

„Að heyra þetta var enn eitt höggið í kvið­inn,“ segir Heiða. Hún hafi hins vegar mátt eiga von á því þar sem til­laga ramma­á­ætl­unar sé enn óaf­greidd og svæðið þar með ekki verið frið­lýst. „Á meðan staðan er þannig þá er þetta yfir­vof­andi hætta. Þetta er ekki búið.“

Hinum megin við hana sé svo virkjun í Hólmsá áformuð en sá kostur er í bið­flokki til­lög­unnar. „Þannig að það er fast sótt að Skaft­ár­hreppi utan frá. En það er líka sótt að honum inn­an­frá og það er kannski það erf­ið­asta.“

Jafn umdeildum hug­myndum og virkj­unum fylgir gríð­ar­legt álag á lítil sam­fé­lög, segir Heiða. Það varð aug­ljóst þegar Búlands­virkjun var í hámæli. Fólk skipt­ist í fylk­ingar – eða var dregið í fylk­ingar. Gjá mynd­að­ist milli fólks. Nágranna. „Það jafn­aði sig tals­vert eftir því sem frá leið en svo sjálf­sagt blossar þetta aftur upp núna.“

Búlandsvirkjun er fyrirhuguð í Skaftá.
Búlands­virkjun er fyr­ir­huguð í Skaftá.

D-listi sagði í bókun sinni á fund­inum þar sem fram­kvæmda­leyfið var sam­þykkt að Hnútu­virkjun sam­ræm­ist aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda varð­andi orku­skipti. Þessi rök hafa heyrst nokkuð oft upp á síðkastið í virkj­ana­málum. Er þetta þá ekki tapað stríð, að berj­ast gegn virkj­unum?

„Nei. Það er ekki tapað stríð. En það er hins vegar ofsa­lega erfitt stríð. Það er ekk­ert grín að standa í þessu og það hefur tekið vel á. Það eru orðin tíu ára síðan að ég fór að standa í þess­ari bar­áttu. Á þessum tíu árum hefur tím­inn unnið mikið með okkur. Viðhorf til nátt­úru­verndar hafa breyst til hins betra í sam­fé­lag­inu. Fleiri vilja staldra við og hugsa málin vel og vand­lega til enda. Meta sjón­ar­mið nátt­úr­unnar og sam­fé­lags­ins.“

En með umræð­unni um nauð­syn þess að fara í orku­skipti til að bregð­ast við lofts­lagsvá hefur orðið ákveðin við­horfs­breyt­ing. „Þá kemur stóra bakslagið,“ segir Heiða. „En þetta er alltaf svona. Þegar búið er að ná ákveðnum árangri þá kemur bakslag. Í allt. Og það er að ger­ast núna í þessum málum.“

Virkj­ana­að­ilar sjái sér leik á borði og mót­staðan veik­ist. Orku­mála­stjóri hefur hins vegar talað um nauð­syn þess að for­gangs­raða og nota ork­una skyn­sam­lega. Heiða segir í þessu sam­bandi þarft að muna að hér á landi er gríð­ar­lega mikið raf­magn fram­leitt og um 80 pró­sent þess fer til stórra við­skipta­vina á borð við stór­iðju og gagna­vera. „Stór hluti af starf­semi gagna­ver­anna felst í því að grafa eftir bitcoin. Viljum við það? Á að virkja meira til að halda áfram að leita að ein­hverju sem er ekki einu sinni til?“

Nýta þurfi betur það sem fram­leitt er, nýta þurfi betur þær virkj­anir sem fyrir eru „og bara róa sig aðeins,“ segir Heiða. „Það eru líka hraðar tækni­fram­farir í þessum geira eins og öllum öðrum. Að fara að raska nátt­úru á morgun, af því að það liggur svo rosa­lega á, er alveg ofboðs­lega skrítin nálgun.“

Heiða hefur setið í sveit­ar­stjórn í tvö kjör­tíma­bil fyrir hönd Z-list­ans. En í kosn­ing­unum í vor er hún ekki í fram­boði. „Z-list­inn ákvað að bjóða ekki fram,“ segir hún. „Það var mjög erfitt að vinna með D-list­anum á kjör­tíma­bil­inu. Okkur var haldið mjög stíft frá öllum nefndum og ábyrgð­ar­stöðum framan af. Þetta hefur verið mik­ill slagur og fólk er ein­fald­lega þreytt.“

Hún segir afskiptum sínum af póli­tík þó „alveg örugg­lega ekki“ lokið. „Ég held að það þekki það allir sem áhuga hafa á nátt­úru­vernd­ar­málum að þau algjör­lega hel­taka mann.“

Þegar sveit­ar­fé­lagið gefur út fram­kvæmda­leyfi vegna Hnútu­virkj­unar verður hægt að hefj­ast handa við að byggja hana. „En það næsta sem ger­ist er að þessi ákvörðun verður kærð,“ segir Heiða og vísar til þess að Eldvötn – sam­tök um nátt­úru­vernd í Skaft­ár­hreppi, sem og fleiri nátt­úru­vernd­ar­sam­tök ætla að leggja fram kæru til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála og fara fram á að ekki verði byrjað á fram­kvæmdum fyrr en nið­ur­staða fæst.

Það er því von­andi ekki þannig, segir Heiða, að gröf­urnar séu að fara af stað á morgun.

Hún er enn á því að Hnútu­virkjun verði aldrei reist. „Ég trúi því ekki fyrr en vélar hennar fara að snú­ast. Það þýðir ekki að guggna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

búlandsvirkjun

Mest lesið undanfarið ár