Nýtt útlánamet hjá lífeyrissjóðunum – Í fyrsta sinn yfir 100 milljarða

Þrátt fyrir að stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafi allir reynt að draga úr aðsókn í sjóðs­fé­laga­lán til íbúð­ar­kaupa þá juk­ust ný útlán þeirra í fyrra. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa aldrei lána fleiri krónur til sjóðs­fé­laga en á árinu 2019.

Þrátt fyrir að hægt hafi á verðhækkunum á húsnæðismarkaði í fyrra jukust útlán lífeyrissjóða í krónum talið.
Þrátt fyrir að hægt hafi á verð­hækk­unum á hús­næð­is­mark­aði í fyrra juk­ust útlán líf­eyr­is­sjóða í krónum talið. Mynd: Bára Huld Beck

Alls lán­uðu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins 101,6 millj­arðar króna í sjóðs­fé­laga­lán á árinu 2019. Það er hæsta upp­hæð í krónum talið sem þeir hafa nokkru sinni lánað til íbúð­ar­kaupa, en fyrra metið var 99,2 millj­arðar króna árið 2017. Þegar tekið er til­lit til verð­bólgu síð­ustu tveggja ára var raun­virði útlána þó hæst á því ári.

Þetta kemur fram í nýlega birtum tölum Seðla­banka Íslands um líf­eyr­is­sjóða­kerfið.

Heild­ar­um­fang verð­tryggðra lána sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa veitt jókst um 17 pró­sent á árinu 2019. Það fór úr 353 millj­örðum króna í 414 millj­arða króna. Á sama tíma jókst hins vegar umfang óverð­tryggðra lána sem sjóð­irnir veittu þeim sem borga í þá um 42,5 pró­sent, fór úr 80 millj­örðum króna í 114 millj­arða króna.

Verð­tryggðu lánin eru þó enn mun hærra hlut­fall af heild­ar­út­lánum líf­eyr­is­sjóða en þau óverð­tryggðu, eða 78 pró­sent á móti 12 pró­sentum. 

Óverðtryggð lántaka jókst mikið

Óver­tryggð lán­taka sótti því í sig veðrið á síð­asta ári. Í októ­ber 2019 gerð­ist það í þriðja sinn í sögu íslenska líf­eyr­is­­­sjóða­­­kerf­is­ins að sjóðs­fé­lagar tóku meira að láni óverð­­­tryggt en verð­­­tryggt. Í hin tvö skipt­in, í des­em­ber 2018 og í jan­úar 2019, hafði verð­­­bólga hækkað nokkuð skarpt og var á bil­inu 3,4 til 3,7 pró­­­sent, eftir að hafa verið að mestu undir 2,5 pró­­­sent verð­­­bólg­u­­­mark­miði Seðla­­­bank­ans frá því í febr­­­úar 2014. Í októ­ber var hún hins vegar 2,8 pró­­­sent og spár gerðu ráð fyrir að verð­­­bólgan myndi fara við og jafn­­­vel undir 2,5 pró­­­sent verð­­­bólg­u­­­mark­mið í nán­­­ustu fram­­­tíð. Það gerð­ist síð­­an í des­em­ber þegar skörp lækkun skil­aði verð­­bólg­unni niður í tvö pró­­sent. Í jan­úar lækk­aði hún enn frekar og mælist nú 1,7 pró­sent.

Við þessu brugð­ust íslenskir lán­tak­endur. Í nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra tóku þeir mun frekar verð­tryggð lán hjá líf­eyr­is­sjóð­unum en óverð­tryggð. Í nóv­em­ber var hlut­fallið 65 á móti 35 pró­sentum og í des­em­ber 59 á móti 41 pró­senti, verð­tryggðum lánum í vil.

Þessi þróun bendir til þess að íslenskir neyt­endur séu orðnir mun með­vit­aðri um hvernig vindar blása í efna­hags­líf­inu hverju sinni þegar þeir ákveða hvora lána­leið­ina þeir feta. Þegar verð­bólga hækkar færa þeir sig yfir í óverð­tryggð lán, en þegar hún lækkar þá snúa þeir sér í auknum mæli aftur að töku verð­tryggðra lána.

Reyna að hefta vöxtinn

Útlána­aukn­ing líf­eyr­is­sjóð­anna á síð­asta ári athygl­is­verð af nokkrum ástæð­um. Í fyrsta lagi vegna þess að það hægði veru­­lega á hækkun hús­næð­is­verðs í fyrra, en vísi­tala kaup­verðs alls íbúð­­ar­hús­næðis á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækk­­aði um 2,4 pró­­sent á árinu 2019. Til sam­an­­burðar hækk­­aði hús­næð­i­verðið um 13,6 pró­­sent á árinu 2017 og 5,8 pró­­sent á árinu 2018.

Í öðru lagi þá var, líkt og áður sagði, umtals­verð verð­­bólga í lok árs 2018 og í byrjun árs 2019. Verð­­bólga hefur veru­­leg áhrif á lána­kjör fjölda Íslend­inga þar sem flestir þeirra eru með verð­­tryggð lán. Þegar leið á árið í fyrra lækk­­aði verð­­bólgan hins vegar skarpt og mælist nú 1,7 pró­sent, eða vel undir 2,5 pró­­sent verð­­bólg­u­­mark­miði Seðla­­banka Íslands.

Í þriðja lagi hafa stærstu líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna og Gildi allir reynt að draga úr eft­ir­­spurn eftir sjóðs­­fé­laga­lánum hjá sér með því að þrengja lána­skil­yrði og hækka vexti hjá sér.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða hins vegar enn upp á miklu betri íbúða­lána­kjör en við­skipta­bank­arnir. Lægstu breyti­legu verð­tryggðu vextir sem þeir bjóða á grunn­lánum (65 til 70 pró­sent af kaup­verði) eru 1,69 pró­sent. Til sam­an­burðar eru lægstu sam­bæri­legu lán sem við­skipta­banki veitir hjá Lands­bank­anum, þar sem kjörin eru 3,2 pró­sent á 70 pró­sent láni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár