Íslam á Íslandi

Sádí-Arabía greindi frá því fyrir ári síðan að landið hefði áhuga á að styrkja bygg­ingu mosku í Reykja­vík. Forseti Íslands hefur m.a. sagt að honum þyki það óæski­legt en engar reglur eða við­mið eru um slíkar styrk­veit­ingar á Íslandi.

Þann 5. mars 2015 afhenti nýr sendi­herra Sádi-Arabíu í Stokk­hólmi, Ibrahim S.I. Ali­bra­him, trún­að­ar­bréf sitt á Bessa­stöðum á fundi með for­seta Íslands, Ólafi Ragnari Gríms­syni, en hann er einnig sendi­herra gangvart Íslandi. Á fund­inum gat Ali­bra­him þess að Sádí-Arabía hyggð­ist styrkja bygg­ingu mosku í Reykja­vík og jafn­framt að hann hefði skoðað land í Sogamýri sem úthlutað hefur verið til moskubygg­ingar í Reykja­vík. 

For­seta­emb­ættið sagði frá heim­sókn­inni á vef sínum og allir helstu fjölmðilar á Íslandi tóku málið upp. Margir höfðu af þessu nokkrar áhyggjur, ekki síst í ljósi þess að stutt var síðan hryðju­verka­árásir voru gerðar í París og Kaup­manna­höfn og hætta á hryðju­verkum á Íslandi hafði farið úr því að vera talin í lítil í að telj­ast í að vera í með­al­lagi. Íslam í Evrópu var í eld­lín­unni.

Ekki löngu eftir heim­sókn Ibrahim S.I. Ali­bra­him lét for­seti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, þau orð falla í við­tölum við fjöl­miðla að hann teldi óæski­legt að þiggja fé frá Sádí-Arabíu og að breyta þyrfti umræð­unni og nálgun Íslend­inga á það verk­efni að finna íslam far­veg á Íslandi. Í við­tali við Bítið á Bylgj­unni þann 17. nóv­em­ber 2015 sagði for­set­inn m.a.: „Þessi ákvörðun erlends ríkis að fara að skipta sér af trú­ar­brögðum á Íslandi á sama hátt og það hefur gert vítt og breytt um ver­öld­ina, fjár­magnað skóla þar sem öfga­kennt islam er ræktað, og ungir karl­menn aldir upp í þeim við­horfum, er það áminn­ing til okkar Íslend­inga að við verðum að hefja nýja umræðu.“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ásamt Ibrahim S.I. Alibrahim, sendiherra Sádí-Arabíu, á Bessastöðum.
Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, ásamt Ibrahim S.I. Ali­bra­him, sendi­herra Sádí-Arabíu, á Bessa­stöðum.

Á því ári sem liðið er síðan Ibrahim S.I. Ali­bra­him til­kynnti um fjár­fram­lög Sádí-Arabíu til múslima á Íslandi hefur málið orðið flókn­ara frekar en skýr­ara. Ekki ein­vörð­ungu hefur tor­tryggni í garð múslima á Íslandi vegna máls­ins færst í auk­ana heldur hefur einnig borið á auknum átökum milli múslima á Íslandi í kjöl­far pen­inga­gjaf­ar­innar. Það eina sem almennt virð­ist ríkja nokkur sátt um á Íslandi er að fram­lagið frá Sádí-Arabíu séu nokk­urs konar blóð­pen­ingar og til þess ætl­aðir að hafa óeðli­leg áhrif á þróun íslam á Íslandi. Til þess að kanna for­sendur, mark­mið og afstöðu yfir­valda í Sádí-Arabíu til máls­ins fékkst sam­þykki sendi­ráðs Sádí-Arabíu í Stokk­hólmi til þess að svara nokkrum spurn­ingum sem málið varða. Hér á eftir fer umfjöllun sem byggir á svörum sendi­ráðs­ins. 

Sænskir múslimar á Íslandi

Ekki lá jóst fyrir í upp­hafi hverjir hefðu fengið fjár­magn­inu úthlutað. Síðar kom í ljós að það rann til Stofn­unar múslima á Íslandi. Svo virð­ist þó sem það sé ekki alls kostar rétt, því móð­ur­fé­lag stofn­un­ar­innar The Scandinavian Islamic foundation er sagt mót­tak­andi styrks­ins í svörum frá sendi­ráð­inu. Stofnun múslima er eins konar útibú frá því félagi sem stýrt er frá Svíþjóð. Bæði starf­andi trú­fé­lög múslima á Íslandi eru andsnúin starf­semi hins sænska félags og segja óheppi­legt að félag sem stýrt er utan frá sé með afskipti af mál­efnum múslima á Íslandi.

Í byrjun febr­úar rataði deilan milli Stofn­unar múslima og Menn­ing­arest­urs múslima inn í dóms­sal hjá hér­aðs­dómi Reykjvíkur, en Stofnun múslima krefst þess að Menn­ing­ar­setri múslima, sem leigir af þeim Ýmis­húsið, verði gert að fjar­lægja skilti af hús­inu þar sem starf­semi leigj­end­anna, það er að segja rekstur til­beiðslu­húss eða mosku, sam­ræm­ist ekki stefnu hús­eig­enda. 

Í frétt á dv.is um málið þann 8. febr­úar segir lög­fræð­ingur Stofn­unar múslima, Gísli Kr. Björns­son, að skiltið gefi til kynna að moska sé í hús­inu og það sam­ræm­ist ekki reglum Stofn­unar múslima, sem sé ekki trú­fé­lag og hafi ekki heim­ilað upp­setn­ingu skilt­is­ins. Í við­tali við mbl.is tveimur mán­uðum áður stað­hæfði Karim Aksari, fram­kvæmda­stjóri Stofn­unar múslima, hins­vegar að félagið væri trú­fé­lag og fram­vís­aði því til stað­fest­ingar papp­írum frá Reykja­vík­ur­borg þess efnis að félagið væri trú­fé­lag og sem slíkt und­an­þegið fast­eigna­skatti.

Samkvæmt skrán­ingu Hag­stof­unnar er félagið skráð sem sjálfs­eign­ar­stofnun.

Í fyr­ir­spurn til sádí-arab­íska sendi­ráðs­ins var meðal ann­ars spurt á hvaða for­sendum Stofnun múslima eða móð­ur­fé­lag þess hefði fengið styrknum úthlutað. Í svar­inu kemur skýrt fram að fram­lagið var ein­göngu ætlað til bygg­ingar mosku á Íslandi. Orðrétt segir í svari sendi­ráðs­ins, í þýð­ingu blaða­manns: „Í til­viki Íslands var fjár­fram­lagið, að upp­hæð 10.000.0000 Sádí ryi­als (um 350 millj­ónir íkr innsk. blaða­manns) í einni greiðslu, rausn­ar­legt fam­lag Abu­dullah kon­ungs sem hafði fengið beiðni um fjár­stuðn­ing frá The Scandinavian Islamic foundation (móð­ur­fé­lag Stofn­unar múslima, innsk. blaða­manns) til moskubygg­ingar í Reykja­vík.“

Í þessu ljósi hlýtur það að telj­ast ein­kenni­legt að það sam­ræm­ist ekki reglum eða stefnu Stofn­unar múslima, sem er skráð sem sjálfs­eign­ar­stofnun en ekki trú­fé­lag á Íslandi, að reka mosku eða til­beiðslu­hús í Ýmis­hús­inu.

Auk þessa fram­lags til að byggja mosku á Íslandi fjár­magn­aði Sádí-Arabía einnig kaup Stofn­unar múslima á Ýmis­hús­inu við Skóg­ar­hlíð.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var for­saga styrk­veit­inga frá Sádí-Arabíu til múslima á Íslandi sú að þegar fréttir bár­ust af því að Reykja­vík­ur­borg hefði úthlutað landi til moskubygg­ingar í Sogamýri eftir ára­langa bar­áttu hafi stjórn­andi The Scandinavian Islamic foundation, Hussein Aldaoudi, farið í fjár­mögn­un­ar­her­ferð í Mið Aust­ur­löndum til þess að fjár­magna verk­efnið, sem kynnt var sem fyrsta moskubyggin í sögu Íslam á Íslandi. Meðal ann­ars hringdi hann inn á útvarps­stöðu sem útvarpar kór­an­söng í Sádí-Arabíu og óskaði eftir stuðn­ingi við verk­efnið. Abdullah kon­ungur var að hlusta á útvarpið og greip hug­mynd­ina á lofti og gaf þær tæpu 350 millj­ónir sem sendi­ráðið hafði svo milli­göngu um að semja um við Aldaoudi og The Scandinavian Islamic foundation. Viðtalið, sem er á arab­ísku, má hlusta á hér.

Eini hæng­ur­inn á verk­efn­inu var sá, að það var annað félag sem hafði fengið land­inu til moskubygg­ingar úthlutað og hefur styrk­veit­ing því orðið til­efni til ósættis milli múslima á Íslandi. 

Wikileak skjöl og fundur í Sendiráði Sádí-Arabíu

Í júní 2015 voru birt Wikileak-skjöl sem sýndu fram á að múslimar á Íslandi höfðu verið boð­aðir til fundar í sendi­ráð Sádí-Arabíu í Stokk­hólmi vegna þessa ósættis. Á fund­inn mættu Salmann Tamimi for­maður Félags múslima, Hussein Aldaoudi stjórn­andi The Scandinavian Islamic Foundation, Abdul Rahman Mohammed JUDIA, for­veri Ibrahim S.I. Ali­bra­him í emb­ætti sendi­herra, sheikh Hassan Mousa, sendiáðs­full­trúi ráðu­neytis Sádí-Arabíu sem fer með mál­efni Íslam og Taher Khawaj stars­maður sendi­ráðs­ins að mál­efnum Íslam. Í fréttum af mál­inu á sínum tíma í íslenskum fjöl­miðlum mátti skilja það sem svo að með þessum fundi hafi sendi­ráðið haft í frammi til­burði til þess að sam­eina múslima á Íslandi undir hatt meintra öfga­sam­taka, The Scandinavian Islamic Focundation eða Ar Rhisala sem eru sam­tök sem Hussein Aldaoudi stýrir einnig, í til­raun til þess að ýta undir óæski­lega hug­mynda­fræði múslima á Íslandi.

Í við­tali við Stundina þremur árum eftir að fund­ur­inn í sendi­ráð­inu fór fram árið 2012 segir Salmann Tamimi að fund­ur­inn hafi farið fram að beiðni íslenskra stjórn­valda og kvaðst jafn­framt undr­andi á því að stjórn­völd á Íslandi væru að skipta sér af mál­efnum múslima með þessum hætti.

Í svörum sendi­ráðs­ins, sam­kvæmt heim­ild­ar­manni sem þekkir til máls­ins í Svíþjóð og sam­komu­lagi sem drög voru lögð að á fund­inum og Kjarninn hefur undir höndum, virð­ist fund­ur­inn sem Wikileak skjölin fjalla um þó hafa verið liður í sam­starfi stjórn­valda á Íslandi og seni­d­ráðs­ins til að miðla málum og vinna gegn ágrein­ingi milli múslima á Íslandi og The Scandinavian Islamic foundation um þau verk­efni sem Sádí-Arabía veitti fjár­magni til.

Í sam­kom­lag­inu, sem dag­sett er 19. sept­em­ber 2012, og er í átta liðum kemur fram að for­senda styrk­veit­ing­ar­innar hafi verið að múslimar á Íslandi til­einki sér grunn­hug­mynd íslam um ein­ingu og vinni sam­stíga og án ágrein­ings. Áhersla er lögð á sam­vinnu, milli múslima á Íslandi og múslima við stjórn­völd og sam­fé­lagið á Íslandi á víðum grunni. Í sam­komu­lag­inu kemur fram að Sádí-Arabía hafi einnig fjár­magnað kaup á Ýmis­hús­inu, sem er í eigu Stofn­unar múslima, og hygg­ist jafn­framt styrkja bygg­ingu mosku í Reykja­vík á landi sem Félag múslima fékk úthlutað. Þá segir að þar sem múslima­sam­fé­lagið sé lítið á íslandi sé ástæðu­laust að reka fleiri en eina mosku og því beri að skoða sölu á Ýmis­hús­inu þegar moska hafi risið í Soga­mýr­inni. Þó fleiri en eitt trú­fé­lag starfi á Íslandi og þess sé ekki kraf­ist að þau sam­ein­ist eða sinni öllum sínum málum sam­eig­in­lega ætti að leggja áherslu á sam­komu­lag um trú­ar­starf í mosk­unni og allir múslimar á Íslandi ættu að vinna saman og sam­stíga að far­sælli aðlögun íslam að íslensku sam­fé­lagi í sam­vinnu við stjórn­völd í land­inu.

Skýr­ingin er [...] fyrst og fremst sú að stærstur hluti múslima á Íslandi telur óeðli­legt að félag sem stýrt er frá Svíþjóð sé í odda­stöðu í múslima­sam­fé­lag­inu á Íslandi.

Í sam­kom­lag­inu, sem dag­sett er 19. sept­em­ber 2012, og er í átta liðum kemur fram að for­senda styrk­veit­ing­ar­innar hafi verið að múslimar á Íslandi til­einki sér grunn­hug­mynd íslam um ein­ingu og vinni sam­stíga og án ágrein­ings. Áhersla er lögð á sam­vinnu, milli múslima á Íslandi og múslima við stjórn­völd og sam­fé­lagið á Íslandi á víðum grunni. Í sam­komu­lag­inu kemur fram að Sádí-Arabía hafi einnig fjár­magnað kaup á Ýmis­hús­inu, sem er í eigu Stofn­unar múslima, og hygg­ist jafn­framt styrkja bygg­ingu mosku í Reykja­vík á landi sem Félag múslima fékk úthlutað. Þá segir að þar sem múslima­sam­fé­lagið sé lítið á íslandi sé ástæðu­laust að reka fleiri en eina mosku og því beri að skoða sölu á Ýmis­hús­inu þegar moska hafi risið í Soga­mýr­inni. Þó fleiri en eitt trú­fé­lag starfi á Íslandi og þess sé ekki kraf­ist að þau sam­ein­ist eða sinni öllum sínum málum sam­eig­in­lega ætti að leggja áherslu á sam­komu­lag um trú­ar­starf í mosk­unni og allir múslimar á Íslandi ættu að vinna saman og sam­stíga að far­sælli aðlögun íslam að íslensku sam­fé­lagi í sam­vinnu við stjórn­völd í land­inu. 

Ekki náð­ist sátt og sam­komu­lag um verk­efnið, einsog átök unda­far­inna mán­aða sýna. Skýr­ingin er sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans fyrst og fremst sú að stærstur hluti múslima á Íslandi telur óeðli­legt að félag sem stýrt er frá Svíþjóð sé í odda­stöðu í múslima­sam­fé­lag­inu á Íslandi. Sem hand­hafi og vitða­kandi fjár­magns­ins frá Sádí-Arabíu öðlist The Scandinavian Islamic Foundation stöðu sem eins­konar umsjón­ar­að­ili, og þá um leið áhrifa­valdur í útfærslu þeirra verk­efna sem fjár­magn­inu var veitt til. Á það eru Félag múslima og Menn­ing­ar­setur múslima ekki til­búin að fall­ast.

Misvísandi reglur um veitingu og sendinu fjármagns

Samkvæmt svörum sendi­ráðs­ins um styrk­veit­ing­una gilda mjög strangar reglur um fjar­fram­lög Sádí-Araba af þessu tagi. Orðrétt segir í svar­inu (í þýð­ingu blaða­manns): „Sendi­ráðið full­vissar að kon­ungs­ríkið Sádí-Arabía heim­ilar ekki fjár­fram­lög frá einka­að­ilum eða góð­ar­gerð­ar­sam­tökum til stuðn­ings múslimum erlendis. Á grund­velli meg­in­reglu Íslam um ein­ingu styðja yfir­völd trú­bræður og systur í sam­fé­lögum erlendis stundum með fjár­fram­lögum til til­beiðslu, svo sem til þess að gera upp eða byggja moskur. Öll slík fjár­fram­lög til múslima í heim­inum fara eftir diplóma­tíksum leiðum og yfir­völd í Sádí-Arabíu krefj­ast skrif­legs sam­þykkis þeirra landa sem fram­lagið rennur til.“ Í svar­inu kemur jafn­framt fram að slíkt sam­þykki stjórn­valda á Íslandi liggi fyrir, og sendi­ráðið undrist því umræð­una á Íslandi þar sem það hafi staðið í þeirr trú að verk­efnið væri unnið í góðri sam­vinnu við stjórn­völd, einsog fund­ur­inn í sendi­ráð­inu og drög að sam­komu­lagi um sam­starf múslima á Íslandi virð­ist stað­festa. Þegar óskað var eftir frek­ari skýr­ingum á reglu­verk­inu í kringum styrk­veit­ingar af þessu tagi var svar sendi­ráðs­ins á þessa leið: „Til­gangur styrk­veit­inga af þessu tagi er að auð­velda múslima­sam­fé­lögum frið­sama sam­búð og aðlögun að þeim sam­fé­lögum sem þeir búa í. Þegar yfir­völd í Sádi Arabíu fá beiðni um fjár­fram­lög frá sam­tökum erlendis VERÐA við­kom­andi sam­tök að fram­vísa skrif­legu sam­þykki yfir­valda til þess að taka á móti fram­lögum frá Sádí-Arabíu í gegnum diplóma­tíksar leiðir. Sé þessu skil­yrði ekki full­nægt tekur Sádí-Arabía umsókn­ina ekki til efn­is­með­ferðar.“

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn um sam­þykki stjórn­valda upp­lýsir Urður Gunn­ars­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins, að borist hafi þrjár fyr­ir­spurnir vegna fyr­ir­hug­aðs fjár­fram­lags Saudi-Araba til bygg­ingar mosku; frá Félagi múslima á Íslandi, frá Stofnun múslima á Íslandi og frá sendi­ráði Saudi-Arabíu gagn­vart Íslandi. Í svörum ráðu­neyt­is­ins í öllum þremur til­vikum segir Urður að hafi verið áréttað að flutn­ingur fjár­muna af þessu tagi væri ekki háður leyfi stjórn­valda. Á hinn bóg­inn þurfi slíkir fjár­magns­flutn­ingar að fara fram í sam­ræmi við íslensk lög og reglur og sæti eft­ir­liti Seðla­banka og fjár­mála­stofn­ana m.a. m.t.t. gjald­eyr­is­hafta, pen­inga­þvættis og fram­fylgd alþjóð­legra þving­un­ar­að­gerða.

Af þessu er ljóst að ósam­ræmi er á ann­ars vegar reglu­verki í kringum fjár­fram­lög frá Sádí-Arabíu sem gef­enda og hins vegar reglu­verki í kringum mót­töku slíkra fram­laga á Íslandi. Sádí-Arabía leggur áherslu á að fjár­magni sé ekki streymt nema í sam­vinnu og sam­ráði við stjórn­völd í mót­töku­landi, en mót­töku­landið, Ísland, hefur engar reglur eða við­mið og heim­ilar styrk­veit­ingu sem þau þó virð­ast andsnúin, ef marka má ummæli t.d for­seta Íslands. Svo virð­ist þó sem Sádí-Arabía og stjórn­völd á Íslandi hafi gert sam­eig­in­legar var­úð­ar­ráð­stafnir í til­raun til þess að koma í veg fyrir að fjár­magnið myndi valda átökum og óróa í múslima­sam­fé­lag­inu á Íslandi. Óskað var eftir afstöðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins til þess hvort æski­legt væri að end­ur­skoða reglu­verk í kringum fjár­fram­lög af þessu tagi af Íslands hálfu í ljósi úlfúð­ar­innar sem þetta mál hefur vakið, en ekki feng­ust svör við því. Svo virð­ist þó sem að minnsta kosti borg­ar­yf­ir­völd sjái ástæðu til að huga að slíkri end­ur­skoðun.

Þegar málið kom upp óskaði borg­ar­stjóri eftir því að Mann­rétt­inda­skrif­stofa Reykja­víkur kynnti sér málið og á fundi borg­ar­ráðs 28. jan­úar s.l var það til umfjöll­unar, m.a. kom mann­rétt­inda­stjóri Reykja­vík­ur­borgar á fund­inn og gerði gein fyrir úttekt skrif­stof­unnar, sem þó er ekki skráð í fund­ar­gerð eða lýst frekar, nema skam­væmt bókun Sjálf­stæð­is­flokks á fund­inum virð­ist grein­ar­gerðin byggja á fjöl­miðlaum­fjöllun á Íslandi um málið. Ekki virð­ist hafa verið haft sam­band við sendi­ráð Sádí-Arabíu eða upp­lýs­inga leitað í Svíþjóð um The Scandinavian Islamic Foundation eða á Íslandi um Stofnun múslima sem þáðu fjár­magnið, heldur lítur út fyrir að fyr­ir­grennsl­anin hafi ein­skorð­ast við að krefja Félag múslima á Íslandi, sem hefur fengið úthlutað lóð en engu fjár­magni, svara um fyr­ir­hug­aða fjár­mögnun moskubygg­ingar í Sogamýri.

Á fundi borg­ar­ráðs var lögð fram eft­ir­far­andi til­laga borg­ar­stjóra: „Með vísan til svara mann­rétt­inda­stjóra og borg­ar­lög­manns við fyr­ir­spurn um fjár­mögnun bygg­inga mosku, og til að stuðla að upp­lýstri umræðu, sam­þykkir borg­ar­ráð að vekja athygli Alþingis á því að ekki hvílir laga­skylda á trú­fé­lögum um að upp­lýsa um hvernig staðið er að fjár­mögnun kirkju­bygg­inga eða til­beiðslu­húsa. Þá beinir borg­ar­ráð þeim til­mælum til allra trú­fé­laga um að gera grein fyrir fjár­mögnun slíkrar upp­bygg­ingar, þótt laga­skylda sé ekki fyrir hendi. R13080019.“

Til þess að kanna hvernig reglum um fjár­fram­lög af þessu tagi er háttað í Svíþjóð var óskað eftir upp­lýs­ingum frá Sheikh Leif Abdul Haqq Kielan, en hann er sænskur að upp­runa, sner­ist til Íslam fyrir ára­tugum síðan og er ímam í mosk­unni í Eskilst­una og Félagi múslima í Stokk­hólmi. Þá er hann einnig for­maður Samtaka sænskra múslima og ritar Sænsku íslam aka­dem­í­unnar. Hann upp­lýsti um að, líkt og á Íslandi, eru fram­lög af þessu tagi ekki háð sam­þykki yfir­valda, en þó væri skil­yrði að farið væri að sænskum lögum um fjár­magns­flutn­inga og að lögum sem ætlað er að koma í veg fyrir pen­inga­þvætti væri mjög strangt fylgt eftir í Svíþjóð.

Er Sádí-Arabía að reyna að hafa áhrif á hugmyndir múslima á Íslandi?

Þegar fjár­fram­lög frá Sádí-Arabíu til múslima á Íslandi komst í hámæli höfðu margir áhyggjur af því að fjar­magn­ingu myndi fylgja kvaðir um hvernig múslimar ástunda trú sína á Íslandi og að minnsta kosti hluti múslima­sam­fé­lags­ins væri óeðli­lega tengdur Sádí-Arabíu eða að Sádí-Arabía væri að reyna að taka sér óeðli­legt og jafn­vel vafa­samt hlut­verk í múslima­sam­fé­lag­inu á Íslandi. Í fyr­ir­spurn til sendi­ráðs­ins var þessum spurn­ingum varpað beint fram, það er að segja hvort Sádí-Arabía sé að reyna að hafa hug­mynda­fræði­leg og/eða trú­ar­leg áhrif á múslima á Íslandi og hvort þau séu sér­stak­lega tengd einu félagi múslima sem starfa á Íslandi og gera sig gild­andi í skjóli tengsla og fjár­stuðn­ings frá Sádí-Arabíu. Í stuttu máli var svarið bið báðum spurn­ingum nei, sendi­ráðið áréttar að fjár­mangið sem The Scandinavian Islamic foundation fékk úthlutað hafi ein­göngu verið ætlað til moskubygg­ingar í Reykja­vík og ekki til verk­efna sem gagn­ast ein­stak­lingum, hvar í félagi sem þeir standa, sér­stak­lega eða þeir geti hagn­ast á. Orðrétt segir (í þýð­ingu blaða­manns): „Sendiráð Sádí-Arabíu í Stokk­hólmi hefur ekk­ert að gera með átök mill ein­stak­linga eða félaga múslima á Íslandi, og heldur sömu fjar­lægð gangvart ÖLLUM.“

Í samn­ingi sem áður hefur verið vísað í, og sem ræddur var á fund­inum í sendi­ráð­inu sem Salmann Tamimi sótti fyrir hönd Félags múslima á Íslandi og Hussein Aldaoudi, fyrir hönd the Scandinavian Islamic Foundation og Menn­ing­arest­urs múslima, sem ekki átti full­trúa á fund­inum, er að finna ákvæði sem renna stoðum undir þessa full­yrð­ingu sendi­ráðs­ins. Samn­ing­ur­inn kveður á um að for­senda þess að Stofnun múslima njóti fjár­stuðn­ings Sádí-Araba sé að leyst sé úr ágrein­ingi milli múslima á Íslandi og þeir stofn­setji sam­ráðs­vett­vang skip­aðan fimm stjórn­ar­mönnum, tveimur frá Félagi múslima á Íslandi og skyldi Salmann Tamimi vera for­maður, tveimur frá Stofnun múslima á Íslandi og einum óháðum aðila. Í sam­ingnum er jafn­framt kveðið á um að skyldur múslima á Íslandi séu fyrst og fremst að fara að íslenskum lögum, reglum og hefðum og vera í virkri sam­vinnu við yfir­völd á Íslandi. Þar segir að múslimum á Íslandi beri að „gleðj­ast þegar Ísland gleðst og vera daprir þegar Ísland er dap­urt.“

Salmann Tamimi, formaður Félags múslima, ræðir við börn.
Salmann Tamimi, for­maður Félags múslima, ræðir við börn.

Í 6. lið sam­kom­lags­ins segir (í þýð­ingu blaða­manns): „Allir aðilar, ein­stak­lingar sem og stofn­anir, skuld­binda sig til að vera trúir Íslam í orði og verki og forð­ast hverskyns fram­ferði sem vinnur gegn íslensku sam­fé­lagi. Múslima­sam­fé­lagið á Íslandi er órjúf­an­legur hluti íslensks sam­fé­lags og múslimum ber að gleðj­ast þegar Ísland gleðst og vera daprir þegar Ísland er dap­urt og leit­ast við að þjóna og stuðla að öryggi, sam­vinnu og stöð­ug­leika.“

Rök gegn því að fjárframlög eigi að ýta undir hryðjuverkastarfsemi

Að lokum er rétt að gera grein fyrir rökum sendi­ráðs­ins gegn stað­hæf­ingum um að fjár­fram­lögin séu til þess ætluð að breiða út öfga­kenndar hug­myndir eða ýta undir hryðjverka­starf­semi. Í svari sendi­ráðs­ins kemur fram að Sádí-Arabía taki skýra afstöðu í bar­áttu gegn hryðju­verkum og fjár­mögnun hryðju­verka­sam­taka. Svo segir í svari frá sendi­ráð­inu (í þýð­ingu blaða­manns): „Fyrir rúmum ára­tug hafði Abudllah bin Abdulaziz heit­inn kon­ungur for­göngu um að stofnað yrði aljóð­legt stofnun eða rann­sókn­ar­setur sem beitir sér gegn hryðju­verkum. Árið 2005 hýsti Sádí-Arabía ráð­stefnu þar sem fimm­tíu og fimm lönd áttu full­trúa þar sem drög voru lögð að stofnun the United Nations Counter Ter­r­orism Center (UNCCT).

Árið 2008 lagði kon­ung­ur­inn fram tíu millj­ónir banda­ríkja­dala til Sam­ein­uðu þjóð­anna til þess að stofn­setja rann­sókn­ar­setrið og árið 2011 und­ir­rti­aði Sádí-Arabía samn­ing við Sam­ein­uðu þjóð­irnar um stofn­setn­ing­una. Árið 2014 lét kon­ung­ur­inn hund­rað millj­ónir banda­ríkja­dala renna til rann­sókn­ar­set­urs­ins til þess að styrkja bar­átt­una gegn hryðju­verkum. Í febr­úar 2014 gaf Abdullah kon­ungur út kon­ung­lega til­skipun gegn hryðjverka­starf­semi. Í henni er áréttað að verk­efni sem tengja má við hryðju­verk, þar með talin aðild að skil­greindum hryðju­verka­sam­tökum og þátt­taka í starf­semi slíkra sam­taka erlendis, muni ekki vera liðin. Sádí-Arabía mun halda áfram að berj­ast gegn hryðu­verkum og styðja aðra til þess sama, með því meðal ann­ars að veita miklu fjár­magni til verks­ins. Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafa gefið út þús­undir opin­berra yfir­lýs­inga þar sem æðstu ráða­menn og trú­ar­leið­togar for­dæma öfga­hyggju og tala fyrir hóf­semd. Sádí-Arabía, sem fæð­ing­ar­staður Íslam og aðstetur hinna Tveggja Heilögu moska, hafnar öfga­hyggju og hryðju­verkum sem hafa það að mark­miði að mis­nota Íslam.

Þá má einnig geta þess að Sádí-Arabía, einsog önnur lönd, hefur þjáðst vegna hryðju­verka og margir borg­arar Sádí-Arabíu hafa verið skot­mark hryð­verku­a­árása. Í ljósi alls þessa er ljóst að það fjár­magn sem Sádí-Arabía veitir til að styðja sam­fé­lög múslima erlendis er ævin­lega í sam­ræmi við þá skýru afstöðu sem hefur verið tekin gegn hryðju­verkum og öfga­hyggju og má aldrei nota til þess að styrkja öfga­hópa. Geti Sádí-Arabía með ein­hverjum hætti haft áhrif á múslima­sam­fé­lög erlendis myndum við sann­ar­lega nota þau til þess að ýta undir friða­sama sam­búð múslima við það sam­fé­lag sem þeir búa í og árang­urs­ríka, gang­kvæma aðlögun.“

Margslungið viðfangsefni

Eðlilega hefur fólk af því áhyggjur þegar upp­lýs­ingar ber­ast um að ríki, á borð við Sádí-Arabíu, sem skorar hátt á lista yfir þau lönd í heim­inum þar sem mann­rétt­indi eru síst virt, til­kynna um millj­óna fjár­styrk til múslima á Íslandi. Íslam í Evrópu og heim­inum öllum er í vanda sem ekki má gera lítið úr og það er gott að verk­efnið er til umræðu.

Þau orð for­seta Íslands sem vitnað er í upp­hafi þess­arar úttektar eru sönn og rétt – við verðum að hefja nýja umræðu um Íslam á íslandi og róa þannig að því öllum árum að koma í veg fyrir að Íslam á Íslandi rati í ógöngur og átök. En til þess að sú umræða skili árangri – verði til gagns fremur en ógangs – verður að fjalla um mál­efni múslima á Íslandi af þekk­ingu, ábyrgð, inn­sýn og skiln­ingi. Við­fangs­efnið er flókið og marg­slungið og við verðum að var­ast að draga upp of ein­falda og afr­dátt­ar­lausa mynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár