Starfsmenn Kerecis mögulega þeir einu sem borga skatt vegna sölunnar

Skatta­sér­fræð­ingur segir fátt hægt að full­yrða um skatt­heimtu rík­is­ins vegna sölu­hagn­aðar hlut­hafa Kerecis. Hluta­fé­lög geti frestað skatt­greiðslum vegna sölu­hagn­aðar af hluta­bréfum og ef hlut­hafar séu erlendis sé afar ólík­legt að skattur af sölu­hagn­aði rati í fjár­hirslur íslenska rík­is­ins. For­stjóri Kerecis hélt því fram að færa mætti rök fyrir því að skatt­tekjur af söl­unni gætu dugað til vega­bóta til Ísa­fjarðar. Það er hæpið.

Forstjórinn
For­stjór­inn Guð­mundur Fertram fór mik­inn í kjöl­far söl­unnar á Kerecis.

For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Kerecis skrif­aði nýlega, í umsögn sinni um drög að sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda, að færa mætti „rök fyrir því, að skatt­greiðslur í kjöl­far nýlegrar sölu Kerecis dugi einar og sér til að koma vega­sam­göngum milli Ísa­fjarðar og Reykja­víkur í við­un­andi horf“. 

Fátt er þó hægt að full­yrða um hversu miklar skatt­tekjur íslenska ríkið kemur til með að heimta vegna sölu Kerecis, hvenær og hvort þær ber­ast og hversu mikið væri hægt að fram­kvæma í vega­málum fyrir það fé sem salan á vest­firska vaxt­ar­sprot­anum skilar í fjár­hirslur hins opin­bera.

Þegar fyr­ir­tæki eru seld fá hlut­haf­arnir greiðslu fyrir hlut sinn í þeim. Það fer svo alfarið eftir því hvernig hlut­haf­alist­inn er sam­settur hvort, hvar og hvenær skattur er greiddur af sölu­hagn­að­inum. Ein­stak­lingar sem áttu hluti í eigin nafni, eins og ein­hverjir …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár