Ásta Guðrún hættir sem þingflokksformaður Pírata

Ágrein­ingur milli Ástu Guðrúnar Helga­dóttur og meiri­hluta þing­flokks Pírata varð til þess að hún ákvað að stíga til hliðar sem þing­flokks­for­maður.

Ásta Guðrún fyrir miðju ásamt hópi Pírata.
Ásta Guðrún fyrir miðju ásamt hópi Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, hefur ákveðið að stíga til hliðar sem þing­flokks­for­maður flokks­ins. Frá þessu greinir hún á Facebook-síðu sinni.

„Í ljósi ágrein­ings milli mín og meiri­hluta þing­flokks Pírata varð­andi innra skipu­lag þing­flokks­ins hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem þing­flokks­for­maður Pírata,“ skrifar Ásta Guðrún. Hún segir þing­menn­ina hafa ólíka sýn á hvert þing­flokk­ur­inn ætti að stefna og því haldi hún að það sé far­sæl­ast að annar taki við starf­inu. Ágrein­ing­ur­inn hafi í stuttu máli falist í innra skipu­lagi og verk­sviði þing­flokks­for­manns­ins, en hún segir málið enn í ferli og því geti hún ekki tjáð sig nánar um það.

„Hlakka til að ger­ast óbreyttur þing­maður á ný, en þá gefst meiri tími til að vinna að þeim mál­efnum sem eru mér hug­leikin,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár