Vill leyfa náttúrunni að njóta vafans

Arctic Circle-þingið var sett í fimmta sinn í morgun.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra í starfsstjóirn og formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði Arctic Circle-þingið í Hörpu í dag.
Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra í starfs­stjó­irn og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ávarp­aði Arctic Circle-þingið í Hörpu í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Norð­ur­slóðir eiga ekki að verða að hrað­braut milli heims­hluta og mann­kynið verður að standa vörð um nátt­úr­una, sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra í starfs­stjórn, í opn­un­ar­ræðu á Arctic Cirle-þing­inu í Hörpu í morgun.

Bjarni sagði íslensk stjórn­völd stefna að því að draga úr losun útstreymis gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi um 40 pró­sent, eins og ákveðið hafi verið í aðdrag­anda Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins árið 2015. Hann sagði jafn­framt að Ísland ætlar að standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið að fullu.

Alþingi hefur þegar inn­leitt og stað­fest Par­ís­ar­sam­komu­lagið á Íslandi en enn hefur ekki verið samnið við Evr­ópu­sam­bandið um það sem er kallað „sann­gjörn hlut­deild“ í sam­eig­in­legu mark­miði Evr­ópu­sam­bands­ins sem Ísland og Noregur eru einnig hluti af.

Vinna við nýja aðgerða­á­ætlun íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum er í bið, eftir að rík­is­stjórn­ar­sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar féll 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og þar til ný rík­is­stjórn tekur ákvörðun um fram­haldið eftir kosn­ing­arnar.

Arctic Circle-þingið hófst í Hörpu í Reykja­vík í dag, með ávarpi Ólafs Ragnars Gríms­sonar, Bjarna Bene­dikts­sonar og Guðna Th. Jóhann­es­sonar.

[links]Í ávarpi sínu sagði Bjarni að stjórn­völd ríkja á norð­ur­slóðum verði að leyfa nátt­úr­unni að njóta vafans við ákvörð­un­ar­töku um nýt­ingu auð­linda.

Ólafur Ragnar er stjórn­ar­for­maður Arctic Circle sem nú er haldið í fimmta sinn. Árlega dregur þingið að áhrifa­fólk og þjóð­ar­leið­toga um allan heim. Meðal þeirra sem sækja þingið í ár eru Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra skosku rík­is­stjórn­ar­innar, Patricia Espinosa, fram­kvæmda­stjóri lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, Ségloène Royal, heim­skauta­sendi­herra Frakk­lands.

Eins og nafn þings­ins gefur til kynna þá eru mál­efni norð­ur­slóða til umræðu á Arctic Circle-þing­inu. Bráðnun heim­skauta­íss­ins er ein helsta birt­ing­ar­mynd lofts­lags­breyt­inga í heim­inum. Ólafur Ragnar segir í við­tali við Kjarnann að ef bar­áttan á norð­ur­slóðum tap­ast þá tap­ist einnig bar­áttan í lofts­lags­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár