Ísland langt frá því að uppfylla Parísarsáttmálann

Ísland er óra­fjarri því að ná settu marki í minnkun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í takti við Par­ís­ar­sátt­mál­ann. Sam­fé­lags­legur kostn­aður vegna kaupa los­un­ar­heim­ilda í fram­tíð­inni er met­inn á rúm­lega 220 millj­arða.

Frá loftslagsráðstefnunni í París í fyrra.
Frá lofts­lags­ráð­stefn­unni í París í fyrra. Mynd: EPA

Búist er við því að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi árið 2030 verði 99% meiri en árið 1990, ef fram­heldur sem horfir. Þetta hefur meðal ann­ars verið rakið í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, sem Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, pró­fessor við Háskóla Íslands, rit­stýrði.

Til þess að landið standi við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt Par­ís­ar­sátt­mál­anum gætu íslenska ríkið og íslenskt atvinnu­líf, staðið frammi fyrir rúmum 220 millj­arða króna kostn­aði vegna kaupa á los­un­ar­heim­ildum.

Ísland, Noregur og Liechtenstein eru að semja við ESB um inn­göngu inn í lofts­lags­kerfi sam­bands­ins, en kerfið fylgir Par­ís­ar­samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var árið 2015 og stað­festur í fyrra. Það er næsta víst að skuld­bind­ingar þess­ara landa muni fara í stórum dráttum eftir þeim reglum og við­miðum sem er að finna í til­lögum ESB.

Umræddar til­lögur Evr­ópu­sam­bands­ins fela í sér að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda muni drag­ast saman um 40% árið 2030 miðað við árið 1990. Það verði gert með 43% sam­drætti í iðn­aði sem fellur undir við­skipta­kerfi ESB og 30% sam­drætti frá öðrum los­un­ar­að­ilum.

Stóriðja og alþjóða­flug innan Evrópu fellur undir við­skipta­kerfi ESB, en minnkun á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verður fram­kvæmd með við­skiptum á los­un­ar­heim­ildum.

Langt frá markmiðum

Samkvæmt spá Orku­stofn­unnar þarf mikið til að Ísland geti upp­fyllt þau skil­yrði. Því er spáð að elds­neyt­is­notkun fari úr um 655 þús­und tonnum árið 1990 í um 972 þús­und tonn árið 2030, en það sam­svarar 48% aukn­ingu. Ekki er tekið til­lit til skóg­ræktar og end­ur­heimt vot­lendis í þessum útreikn­ingum.

Grafið hér að neðan sýnir þróun í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda und­an­farin ár. Svarta línan sýnir stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins, sem Ísland þarf að öllum lík­indum að fylgja eftir. Bláa línan sýnir svo árangur sam­bands­ins hingað til, sem hefur náð að halda mark­miði sínu. Rauða línan sýnir svo árangur Íslands, en útblástur hér á landi hefur auk­ist nokkuð á síð­ustu 27 árum. Tölur fyrir útblástur hjá Íslandi inni­halda að vísu ekki alþjóða­flug til og frá lands­ins, þótt það sé tekið með í tölum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Spáð er áfram­hald­andi aukn­ingu á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hjá Íslandi ef fyr­ir­hug­aðar áætl­anir um opnun kís­il­málms­verk­smiðja gangi eftir og ferða­mönnum haldi áfram að fjölga með til­heyr­andi aukn­ingu milli­landa­flugs. Samkvæmt skýrslu Hag­fræði­stofn­unnar mun aukn­ingin nema 99% árið 2030 miðað við 1990, ef fram heldur sem horfir og ekk­ert verður að gert.

220 milljarðar

Verð á kolefn­isk­vóta mun fara ört vax­andi í fram­tíð­inni, sam­kvæmt nýrri skýrslu sem gefin var út á vegum Alþjóða­bank­ans. Til þess að stand­ast skuld­bind­ingar ESB um minnkun á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er því spáð að íslenska ríkið og atvinnu­lífið muni þurfa að kaupa kolefn­isk­vóta á bil­inu 5-50 millj­arða á ári hverju. Núvirtur kostn­aður vegna kaupa á kolefn­isk­vóta til árs­ins 2030 nemur rúm­lega 220 millj­örðum, miðað við fyrr­nefndar for­sendur.

Ljóst er því að kostn­aður vegna skuld­bind­inga Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins muni verða veru­leg áskorun. Annað hvort er hægt að fjár­festa í grænum innviðum fyrir rúma 220 millj­arða eða borga þá beint út í kolefn­isk­vóta til Evr­ópu­sam­bands­ins. Seinni kostn­að­ur­inn gæti hins vegar verið kostn­að­ar­sam­ari fyrir Ísland, ef svo færi að landið þyrfti að standa við frek­ari lofts­lagskuld­bind­ingar eftir árið 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár