Tólf ára stelpur áreittar í strætó

Þrjár tólf ára stelpur voru áreittar í stræt­is­vagni í Reykja­vík í gær. Íris Björk Tanya Jóns­dóttir, móðir tveggja þeirra, segir ömur­legt að við séum komin á þann stað að geta ekki hleypt börnum í strætó klukkan átta að kvöldi á björtum degi.

Þrjár tólf ára stelpur voru kyn­ferð­is­lega áreittar í strætó í síð­ustu viku. Móðir tveggja þeirra, Íris Björk Tanya Jóns­dóttir og eig­andi Vera Design, vekur athygli á þessu á Facebook. Að sögn hennar voru stelp­urnar á leið­inni heim úr bíó þegar þrír strákar tóku að áreita þær. Stelp­urnar töldu strák­ana lík­lega vera um 15 eða 16 ára, að minnsta kosti eldri en þær. 

Íris Björk
Íris Björk Móðir tveggja stelpna sem áreittar voru í strætó segir þeim hafa verið veru­lega brugðið. „Frosnar sátu þær og sögðu ekki orð og komu heim skít­hræddar.“

„Þeir létu þær ekki vera alla leið­ina,“ segir Íris í sam­tali við Stundina. „Þeir voru að „veipa“ framan í þær, spraut­uðu rakspíra í and­litið á þeim og síðan sagði einn; er ekki bara kom­inn tími til að nauðga þess­ari? og benti á eina.“

Íris segir að stelp­unum hafi verið mjög brugðið og að hennar fyrstu við­brögð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár