Leggja aftur fram tillögu um að Alþingi biðjist afsökunar á Landsdómsmálinu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er fyrsti flutn­ings­maður til­lögu sem felur í sér að Geir H. Haarde verði beðin afsök­unar á því að hafa verið ákærður í Lands­dóms­mál­inu. Tillagan er nú lögð fram í annað sinn.

Geir H. Haarde er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Hann er í dag sendiherra landsins í Bandaríkjunum.
Geir H. Haarde er fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Hann er í dag sendi­herra lands­ins í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Alls 15 þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Flokki fólks­ins og Mið­flokki hafa lagt aftur fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um órétt­mæti máls­höfð­unar Alþingis gegn ráð­herrum og afsök­un­ar­beiðni. Fyrsti flutn­ings­maður er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son en á meðal ann­arra flutn­ings­manna er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
Í til­lög­unni felst að þing­menn­irnir vilja að Alþingi álykti að „rangt hafi verið að leggja fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um máls­höfðun gegn ráð­herrum hinn 28. sept­em­ber 2010 [...] Við­kom­andi ráð­herrar verð­s­kuldi afsök­un­ar­beiðni vegna þessa.“

Tillagan sem þing­menn­irnir 15 vilja að verði ályktað um snýst um höfðun saka­máls vegna refsi­verðrar hátt­semi í emb­ætt­is­færslur á hendur Geir H. Haarde, sem var for­sæt­is­ráð­herra Íslands í aðdrag­anda hruns­ins. Hún var sam­þykkt á sínum tíma með 33 atkvæðum gegn 30 í i sept­em­ber 2010.

Á meðal þeirra sem sam­þykktu ákæruna á hendur Geir í þing­inu í sept­em­ber 2010 voru nokkrir ráð­herrar sem nú sitja í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Þeir eru Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Sig­urður Ingi Jóhanns­son, Svan­dís Svav­ars­dóttir og Ásmundur Einar Daða­son. Þau kaus Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, einnig með ákærunni.

Geir einn ákærður

Rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í skýrslu sinni sem birt var í apríl 2010 að nokkrir íslenskir ráð­herrar hefðu sýnt af sér van­rækslu í starfi í aðdrag­anda hruns­ins. Þing­­manna­­nefnd sem skipuð var til að fjalla um skýrsl­una komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í sept­­em­ber 2010 að ákæra ætti fjóra fyrr­ver­andi ráð­herra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ing­i­­björgu Sól­­rúnu Gísla­dóttur og Björg­vin G. Sig­­urðs­­son, fyrir Lands­­dómi vegna þess­­arar van­rækslu.

Þegar alþing­is­­menn kusu um málið varð nið­­ur­­staðan hins vegar sú að ein­ungis Geir var ákærð­­ur. Nokkrir þing­­menn Sam­­fylk­ingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráð­herrum Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins en hlífa sínum flokks­­mönn­­um.

Lands­­dóms­­mál­inu lauk með því að Geir var fund­inn sekur um einn ákæru­lið en þeir voru upp­­haf­­lega sex. Honum var ekki gerð refs­ing. Geir kærði máls­­með­­­ferð­ina til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu. Það mál tap­að­ist í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um.

Skipu­lagt eftir flokkspóli­tískum línum

Í grein­ar­gerð sem fylgir með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni segir m.a. að rang­lega hafi verið staðið að atkvæða­greiðslu um til­lög­una um að ákæra Geir og að rangt hafi verið að sam­þykkja hana.

„Al­þingi álykti enn fremur að þeir fyrr­ver­andi ráð­herrar sem upp­haf­lega þings­á­lykt­un­ar­til­lagan beind­ist gegn, og sá ráð­herra sem loks var ákveðið að höfða mál gegn[...] verð­s­kuldi afsök­un­ar­beiðni frá hlut­að­eig­andi aðil­um.

Flutn­ings­menn segja að nið­ur­staða lands­dóms hafi sýnt að ekki hafi verið til­efni til ákæru, að ekki hefði verið gætt sam­ræmis við beit­ingu laga um lands­dóm þar sem lög­unum hefur ekki verið beitt í öðrum til­vikum er varða stjórn­mála­legar ákvarð­anir og aðgerðir sem stefnt hafa hags­munum rík­is­ins í hættu, að atkvæða­greiðsla um máls­höfðun hafi borið þess merki þess að nið­ur­staða um það hverja skyldi ákæra „hefði ann­að­hvort verið til­vilj­ana­kennd eða skipu­lögð eftir flokkspóli­tískum lín­um“, og að lýð­ræð­is­legu stjórn­ar­fari lands­ins standi ógn af því ef reynt sé að fá starf­andi eða fyrr­ver­andi stjórn­mála­menn dæmda til fang­els­is­vistar vegna póli­tískra aðgerða eða aðgerða­leysis „án þess að um hafi verið að ræða ásetn­ing um brot“. Ýmsar stjórn­mála­legar stefnur og ákvarð­an­ir, eða aðgerða­leysi, geti verið skað­legar hags­munum rík­is­ins án þess að ætl­unin hafi verið að valda tjóni. Slíkt álita­mál beri að leiða til lykta í kosn­ingum en ekki fyrir dóm­stól­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár