Niðursoðin fiskilifur á meðal þess helsta sem selt hefur verið til Rússlands frá innrás

Útflutn­ingur frá Íslandi til Rúss­lands hefur frá inn­rás rík­is­ins í Úkraínu ein­ungis verið um 2 pró­sent af því sem hann var að með­al­tali á mán­að­ar­grund­velli í fyrra. Veið­ar­færi, fiskilifur og gas­olía hefur þó selst til Rúss­lands.

Sáralítil viðskipti hafa verið með vörur frá Íslandi til Rússlands frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar.
Sára­lítil við­skipti hafa verið með vörur frá Íslandi til Rúss­lands frá því að Rússar réð­ust inn í Úkraínu í lok febr­úar. Mynd: Pexels

Segja má að skrúfast hafi fyrir útflutn­ing á íslenskum varn­ingi til Rúss­lands í kjöl­far inn­rásar rík­is­ins í Úkraínu í lok febr­ú­ar­mán­aðar. Ekki ein ein­asta vara flutt frá Íslandi til Rúss­lands í ágúst­mán­uði, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni.

Þetta er umtals­verð breyt­ing. Á síð­asta ári nam verð­mæti íslenskra útflutn­ings­vara til Rúss­lands 389,5 millj­ónum króna að með­al­tali í mán­uði hverjum, en frá því í mars og fram í ágúst á þessu var útflutn­ings­verð­mætið að með­al­tali ein­ungis 8,4 millj­ónir króna.

[adspot]

Það jafn­gildir því að verð­mæti mán­að­ar­legs útflutn­ings frá Íslandi til Rúss­lands frá því að Rússar réð­ust inn í Úkraínu sé ein­ungis rúm tvö pró­sent af því sem hann var að með­al­tali á síð­asta ári.

Þróun tveggja síð­ustu mán­aða er þó ekki talin þarna með, en nýj­ustu tölur Hag­stof­unnar eru frá því í ágúst.

En hvað er þetta lít­il­ræði, sem íslenskir aðilar hafa verið að flytja út til Rúss­lands þrátt fyrir áhrif inn­rás­ar­innar á við­skipti við ríkið og vöru­flutn­inga? Kjarninn tók það helsta saman.

Í apr­íl­mán­uði flutti ein­hver íslenskur aðili út 191 kíló af búk­lýsi til Rúss­lands, að and­virði 2,4 millj­óna íslenskra króna. Í mars hafði ein­hver flutt út tæpt tonn af þotu­elds­neyti til Rúss­lands að and­virði 116 þús­und króna.

[adspot]

Einna stærstu við­skiptin með vörur frá Íslandi áttu sér svo stað í maí, er ein­hver aðili flutti út 15,7 tonn af nið­ur­soð­inni fisklifur fyrir 15,9 millj­ónir króna. Í júní voru svo flutt út 129 tonn af gasol­íum til Rúss­lands, að verð­mæti 23,4 millj­óna króna.[links]

[links]Í júlí var svo tals­vert af veið­ar­færum flutt til Rúss­lands, sam­kvæmt því sem sjá má í útflutn­ings­yf­ir­liti Hag­stof­unnar. Flutt voru út fiskinet og fiskineta­slöngur fyrir 4,7 millj­ónir króna, vörur til veið­ar­færa úr járni fyrir 1,5 millj­ónir króna, kaðlar úr pólyetyleni eða pólyprópy­leni fyrir 523 þús­und krónur, rúllu­keðjur fyrir 363 þús­und krónur, botn­rúllur fyrir 262 þús­und krónur og kast­hjól og reim­hjól fyrir 43 þús­und krónur.

Það virð­ist því ekki margt sem enn er flutt til Rúss­lands eftir inn­rás lands­ins í Úkraínu og þau við­skipti sem eru enn á milli íslenskra aðila og rúss­neskra eru nær öll á hinn veg­inn, en eins og Kjarninn rakti í sam­an­tekt sem birt­ist á dög­unum er ýmiss rúss­neskur fram­leiðslu­varn­ingur enn fluttur til Íslands með svip­uðum hætti og fyrir inn­rás, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár