Mynd: gstudioimagen1 / Freepik

Kúlupennar, skíði, timbur og dekk flutt inn frá Rússlandi eins og fátt hafi í skorist

Innrás Rússa í Úkraínu hefur um margt breytt við­skipta­tengslum Íslands og Rúss­lands og inn­flutn­ingur þaðan dreg­ist mikið saman. Í marg­vís­legum vöru­flokkum hefur þó lítil breyt­ing orðið á verð­mæti inn­flutn­ings frá land­inu.

Frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst hefur inn­flutn­ingur varn­ings frá Rúss­landi dreg­ist veru­lega saman, sam­fara því sem Ísland hefur tekið þátt í því að setja á nýjar við­skipta­þving­anir á landið og vest­ræn fyr­ir­tæki hvött til þess, stundum undir tölu­verðum þrýst­ingi neyt­enda, að draga sig úr við­skiptum við rúss­neska aðila.

Þó er marg­vís­leg vara enn flutt til Íslands frá Rúss­landi og í ýmsum vöru­flokkum hefur lítt dregið úr inn­flutn­ingi og í sumum vöru­flokkum hefur inn­flutn­ing­ur­inn auk­ist, sam­kvæmt grein­ingu Kjarnans á tölum Hag­stof­unnar um inn­flutn­ing frá Rúss­landi yfir 20 mán­aða tíma­bil frá jan­úar 2021 til ágúst 2022.

Tollverð þess varn­ings sem fluttur var inn til Íslands frá Rúss­landi í ágúst­mán­uði nam 185,8 millj­ónum króna, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni. Það er ein­ungis rúmur þriðj­ungur af toll­virði þess varn­ings sem var fluttur var til Íslands frá Rúss­landi í hverjum mán­uði að með­al­tali á síð­asta ári, en með­al­verð­mæti inn­flutn­ings­ins nam 531,2 millj­ónum króna á mán­uði í fyrra.

Frá mars og fram í ágúst á þessu ári, eða frá því að inn­rás Rúss­lands í Úkraínu var hafin, hafa vörur verið fluttar til Íslands frá Rúss­landi fyrir alls tæpa 2,2 millj­arða króna. Hæst var toll­verð­mætið í mars á þessu tíma­bili, 862 millj­ónir króna, en það hrap­aði svo niður í 217 millj­ónir króna í apríl og hefur hæst farið í 333 millj­ónir króna í júní, sam­kvæmt þeim tölum Hag­stof­unnar sem nú þegar eru til reiðu.

Kjarninn lagð­ist yfir það hvaða vörur helst er verið að flytja til Íslands frá Rúss­landi og hvernig þró­unin hefur verið í inn­flutn­ingi þess varn­ings frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst. Upp­hæð­irnar sem hér er talað um eru toll­verð varn­ings­ins, en það er heiti yfir end­an­legt verð vöru sem hingað til lands er komin. Er þá átt við verð vör­unnar að við­bættum flutn­ings­kostn­aði, trygg­inga­kostn­aði og öllum öðrum kostn­aði sem leggst á verð vör­unnar erlendis og á leið til lands­ins.

Innflutningurinn sem hefur jafnvel aukist

Inn­flutn­ingur á vörum sem falla undir toll­flokk­inn skíði frá Rúss­landi hefur heldur færst í auk­ana frá fyrra ári. Verð­mætið var talið í tugum þús­unda á fyrri hluta síð­asta árs, en fór upp í um og yfir tvær millj­ónir króna flesta mán­uði seinni hluta árs­ins 2021. Tollverð varn­ings í þessum flokki sem fluttur var inn frá Rúss­landi nam svo 7,4 millj­ónum í apríl og hefur numið hátt í tveimur millj­ónum króna að með­al­tali alla mán­uði síðan. Samkvæmt laus­legri athugun blaða­manns er rúss­neska göngu­skíða­merkið Spine selt hjá úti­vist­ar­versl­unum hér á landi.

Undir toll­flokknum aðrar vélar og tæki ót.a. byrj­aði nokkur inn­flutn­ingur í sumar, sem var umfram þann inn­flutn­ing sem var á fyrra ári og framan af þessu ári. Nam verð­mæti inn­flutn­ings­vara undir þessum toll­flokki 5,1 milljón í júní, 6,7 millj­ónum í júlí og 4 millj­ónum í ágúst.

Íslend­ingar flytja inn tölu­vert mikið af timbri frá Rúss­landi. Það hefur lítið breyst í þeim efnum þrátt fyrir inn­rás Rússa í Úkraínu. Í toll­flokknum önnur fura, söguð, höggvin, flöguð, birkt, hefluð, slípuð o.þ.h., > 6 mm þykkur hefur inn­flutn­ingur auk­ist frá fyrra ári, raunar fremur mikið, en verð á timbri hefur líka hækkað tals­vert. Í stökum mán­uði í fyrra fór inn­flutn­ings­verð­mætið mest í rúmar 25 millj­ónir en á þessu ári hefur toll­verð inn­flutn­ings eins mán­aðar hæst farið í 95 millj­ónir, í júlí­mán­uði.

Undir toll­flokknum aðrir hluti og bún­aður til íþrótta eða úti­leikja ót.a.; sund­laugar og vað­laugar var svo nær ekk­ert flutt inn allt síð­asta ár, en skyndi­lega í júlí á þessu ári nam inn­flutn­ings­verð­mæti varn­ing sem féll undir flokk­inn 11,5 millj­ónum króna.

Það sem er lítt breytt frá því fyrir innrás

Fyrstu mán­uði árs­ins 2021 var ekk­ert flutt inn til Íslands frá Rúss­landi af vörum sem falla í toll­flokk­inn flúr­skinsinni­ljósakrónur og -ljós, í loft eða á veggi. Nokkur inn­flutn­ingur hófst hins vegar á vörum frá Rúss­landi í þessum toll­flokki í maí í fyrra og var toll­verðið sam­tals á fjórða tug millj­óna króna árið 2021, þar af rúmar 22 millj­ónir í októ­ber. Það sem af er þessu ári hefur verið stöð­ugur inn­flutn­ingur á vörum í þessum flokki, alls fyrir á þriðja tug millj­óna króna. Mest var flutt inn í júlí og ágúst, eða fyrir um 7 millj­ónir króna í hvorum mán­uði.

Mikill fjöldi penna, í toll­flokki sjálf­blek­unga, stylógraf­penna og ann­arra penna, er fluttur hingað til lands í hverjum mán­uði og nær ekk­ert lát virð­ist á þeim inn­flutn­ingi þrátt fyrir inn­rás Rússa í Úkraínu. Íslend­ingar hafa flutt inn penna að and­virði einnar til fjög­urra millj­óna króna frá Rúss­landi nær alla mán­uði sem skoð­aðir voru. Nam inn­flutn­ings­verð­mætið 3,6 millj­ónum króna í júlí.

Inn­flutn­ing­ur­inn á rúss­nesku vodka hingað til lands hefur ekki verið mik­ill, en verð­mæti inn­flutn­ings­ins hljóp á nokkrum hund­ruðum þús­unda í hverjum mán­uði í fyrra og hefur hald­ist nokkuð svip­aður frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst. Inn­flutn­ings­verð­mætið nam 270 þús­und krónum í ágúst.

Töluvert hefur verið flutt inn af nýjum gúmmí­hjól­börðum fyrir fólks­bíla frá Rúss­landi, en toll­virðið nam sam­an­lagt á þriðja hund­rað millj­óna árið 2021. Á þessu ári nam inn­flutn­ing­ur­inn numið um 50 millj­ónum fram í ágúst – en stærstu dekkja­send­ing­arnar á síð­ast ári komu að haust­lagi og í upp­hafi vetrar.

Íslend­ingar flytja inn sígar­ettur frá Rúss­landi fyrir nokkrar millj­ónir í hverjum mán­uði. Undir toll­flokknum aðrar sígar­ettur hefur inn­flutn­ingur haldið fullum dampi það sem af er ári, og fluttar voru inn rúss­neskar rettur fyrir 1,6 millj­ónir í ágúst.

Í hverjum ein­asta mán­uði í fyrra voru fluttir inn hlutir í toll­flokknum aðrir hlutar og fylgi­hlutir í yfir­bygg­ingar bíla fyrir nokkrar millj­ónir króna frá Rúss­landi. Það hefur haldið áfram og voru vörur að toll­virði 4,1 milljón króna fluttir inn í ágúst­mán­uði.

Tölu­verður inn­flutn­ingur er alla mán­uði frá Rúss­landi til Íslands undir toll­flokknum önnur ljós og luktir sem örygg­is­bún­aður á öku­tæki og hefur hann lítt raskast frá inn­rás. Íslenskir aðilar fluttu inn ljós og luktir á bíla frá Rúss­landi að and­virði 12,6 millj­óna í júní og 17,3 millj­óna í júlí.

Inn­flutn­ingur hefur hald­ist nokkuð stöð­ugur í toll­flokkum fleiri bíla­parta. Fluttir voru inn aðrir hemlar og afl­hemlar og hlutar í þá fyrir 1-3 millj­ónir króna nær alla mán­uði síð­asta árs og það hefur haldið áfram. Inn­flutn­ing­ur­inn nam 2 millj­ónum króna í ágúst. Svipaða sögu má segja af toll­flokki dri­f­öxla með mis­muna­drifi.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru fluttir íhlutir í þvottavélar frá Rússlandi hingað til lands að tollvirði 7,2 milljóna króna í júlí síðastliðnum. Mynd: Pexels
Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru fluttir íhlutir í þvotta­vélar frá Rúss­landi hingað til lands að toll­virði 7,2 millj­óna króna í júlí síð­ast­liðnum. Mynd: Pexels

Flesta mán­uði eru fluttar ryksugur frá Rúss­landi til Íslands, greini­lega í nokkru magni ef marka má toll­virðið, sem hleypur alla jafna á millj­ónum króna. Toll­virði varn­ings sem féll undir toll­flokk­inn aðrar ryksugur hefur tekið litlum breyt­ingum frá því í fyrra, í júní nam inn­flutn­ing­ur­inn 8,9 millj­ónum króna, í júlí 5,1 milljón og í ágúst 4,6 millj­ónum.

Nær alla mán­uði þessa árs og þess síð­asta hafa svo verið flutt inn tæki í toll­flokknum vélar og tæki til hit­unar eða eld­unar á hvers konar drykkjum og mat­vælum, í veit­inga­rekstri frá Rúss­landi. Aldrei þó fyrir hærri upp­hæð en í ágúst síð­ast­liðnum, er toll­verðið nam 6,3 millj­ónum króna. Buxur karla eða drengja, úr baðm­ull hafa verið fluttar inn frá Rúss­landi alla mán­uði sem skoð­aðir voru, oft­ast fyrir rúma milljón á mán­uði.

Í hverjum mán­uði sem skoð­aðir voru hafa verið fluttar inn vörur fyrir nokkrar millj­ónir til Íslands frá Rúss­landi í toll­flokknum hlutar í lyftur, skúffu­bönd eða renni­stiga. Á þessu hefur engin breyt­ing orðið frá því að inn­rásin í Úkraínu hófst og nam toll­verð þess varn­ings sem fluttur var inn í júlí 3,5 millj­ónum króna og 2,4 millj­ónum í ágúst.

Alla mán­uði á því tíma­bili sem var skoðað hefur verið ein­hver inn­flutn­ingur á vörum sem falla undir toll­flokk hluta í mjalta- og mjólk­ur­búsvélar og hefur hann hald­ist nokkuð svip­aður frá inn­rás. Í ágúst­mán­uði voru fluttir inn íhlutir í slíkar vélar fyrir rúmar tvær millj­ónir króna.

Undir toll­flokknum aðrar vélar til vinnslu á mat­vöru og drykkj­ar­vöru, þó ekki til vinnslu á feiti eða olíu úr dýra­rík­inu hefur verið reglu­legur inn­flutn­ingur á vélum, þó ekki hafi verið inn­flutn­ingur alla mán­uði á því tíma­bili sem skoðað var. Hann hefur haldið áfram eftir inn­rás Rússa og nam verð­mæti inn­flutn­ings í þessum toll­flokki 20,2 millj­ónum króna í ágúst­mán­uði.

Hið sama á við um inn­flutn­ing á hlutum í þvotta­vélar en hann hefur verið óreglu­legur á tíma­bil­inu, en hlaupið á nokkrum millj­ónum alls níu mán­uði af þeim tutt­ugu sem voru skoð­aðir. Verðmæti inn­flutn­ings­ins nam mest 7,2 millj­ónum króna í júlí síð­ast­liðnum, sem er hærri upp­hæð en í nokkrum stökum mán­uði í fyrra.

Íslend­ingar hafa verið að flytja inn nokkuð af vörum undir toll­flokknum raf­magns­heyrn­ar­tíðni­magn­arar fyrir hljóð­færi eða söng­kerfi á und­an­förnum miss­erum og hefur sá inn­flutn­ingur lítt raskast frá inn­rás, þó að reyndar hafi ekk­ert verið flutt inn undir þessum flokki í ágúst. Tollverð inn­fluttra magn­ara frá Rúss­landi nam þannig 13 millj­ónum í apríl og 10 millj­ónum í júlí.

Íslenskir aðilar fluttu inn mótað járn­grýti með reglu­legu milli­bili á síð­asta ári, eða um það bil annan hvern mánuð. Þar hefur verið um ansi vænar summur að ræða í hvert sinn eða á bil­inu 90-140 millj­ónir króna að toll­virði. Síðasta send­ing barst í júní og var toll­verð hennar tæpar 250 millj­ónir króna, sem þýðir að send­ingin nam um 75 pró­sentum af virði alls inn­flutn­ings frá Rúss­landi til Íslands í þeim mán­uði.

Þrýst­ings­mælar að toll­virði hund­ruða þús­unda hið minnsta voru fluttir inn í hverjum mán­uði í fyrra. Svo er enn. Hið sama á við um vörur í toll­flokki eld­húsinn­rétt­inga og ein­inga í þær úr viði.

Það sem helst virðist hafa dregist saman – eða jafnvel snarhætt

Á síð­asta ári og í upp­hafi þessar var inn­flutn­ingur á vélum eða tækjum til síunar eða hreins­unar á vökva stundum veru­legur hluti af inn­flutn­ingi frá Rúss­landi til Íslands. Í jan­úar 2021 var toll­verð varn­ings sem í þennan flokk féll 128 millj­ónir króna og enn meira í jan­úar 2022, eða 157 millj­ónir króna – eða jafn­vel rúmur helm­ingur alls toll­virts inn­flutn­ings frá Rúss­landi. Frá því að inn­rás Rússa hófst hefur inn­flutn­ingur vara af þessu tagi þó verið mun minni en á síð­asta ári. Í mars nam hann 69 millj­ónum, en svo 15 millj­ónum í apríl og toll­verð­mætið nam ein­ungis 461 þús­und krónum í maí og 141 þús­und krónum í júlí. Í ágúst voru þó fluttar inn vörur af þessu tagi að and­virði 13,7 millj­óna.

Allt síð­asta ár og þar til í mars á þessu ári voru fluttar inn vörur í toll­flokknum önnur spankefli fyrir allt að 71 milljón króna á mán­uði, en þó nær alltaf fyrir á bil­inu 12-23 millj­ónir. Í apríl á þessu ári voru flutt inn spankefli fyrir nákvæm­lega 0 krónur og hefur það hald­ist með sama hætti síðan.

Undir toll­flokknum aðrir raf­magns­leið­arar fyrir <=1.000 V nam inn­flutn­ingur frá Rúss­landi nokkrum millj­ónum flesta mán­uði síð­asta árs. Hann er enn til staðar en verð­mæti inn­flutn­ings hefur þó frá inn­rás verið nokkuð undir með­al­tali síð­asta árs.

Inn­flutn­ingur ann­arra öku­hjóla og hluta í þau nam yfir 10 millj­ónum króna all­nokkra mán­uði í fyrra og í upp­hafi þessa árs og hljóp inn­flutn­ings­verð­mætið eig­in­lega alltaf á nokkrum millj­ónum, þar til í júní er það lækk­aði snöggt niður í nokkra tugi þús­unda og hefur enn lækkað síðan. Allt síð­asta ár og til og með í apríl á þessu ári voru fluttar inn hillur og skápar úr viði fyrir nokkrar millj­ónir á mán­uði, en eng­inn inn­flutn­ingur hefur verið í þeim toll­flokki síðan þá. Í toll­flokknum önnur við­ar­hús­gögn hefur svo ekki verið nein hreyf­ing síðan í júní, en allt síð­asta ár og vel fram á þetta ár nam virði inn­flutn­ings nokkrum hund­rað­þús­und­köllum upp í á aðra milljón í mán­uði hverjum.

Frum­fram­leitt álblendi var flutt frá Rúss­landi til Íslands fyrir nokkur hund­ruð millj­ónir flesta mán­uði síð­asta árs og fyrstu mán­uði þessa árs. Eftir að inn­rásin hófst og fram í ágúst hefur hins vegar ein­ungis verið flutt inn álblendi frá Rúss­landi í maí, og þá fyrir tæpar 122 millj­ónir.

Inn­flutn­ingur á óblendnu hrá­járni sem inni­heldur innan við 0,5 pró­sent fos­fór nam nokkrum millj­ónum króna flesta mán­uði síð­asta árs og í byrjun þessa. Ekkert hefur verið flutt inn af því síðan í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár