Niðurstöður um aðskilnað á bankastarsemi lagðar fram fyrir 1. nóvember

Starfs­hópur um kosti og galla aðskiln­aðar við­skipta­banka-og fjár­fest­inga­banka­starf­semi kynnti nið­ur­stöður sínar fyrr í dag. Annar starfs­hópur verður stofn­aður til að leggja mat á nið­ur­stöð­urnar sem kemur út í haust.

Starfshópur Fjármálaráðherra um aðskilnað á bankastarfsemi
Starfs­hópur Fjár­mála­ráð­herra um aðskilnað á banka­starf­semi Mynd: Jónas Atli Gunnarsson

Starfs­hópur Fjár­mála­ráð­herra kynnti fyrr í dag þrjár mögu­legar leiðir um mögu­legan aðskilnað við­skipta­banka og fjár­fest­inga­banka á blaða­manna­fundi fyrr í dag. Stofn­aður verður annar starfs­hópur til þess að vega og meta hverja leið fyrir sig, en starfs­hóp­ur­inn mun skila nið­ur­stöðum sínum í haust. 

Í skýrslu starfs­hóps­ins kemur fram mat á kostum og göllum á aðskiln­aði við­skipta­banka og fjár­fest­inga­banka. Þar var mark­mið skýrsl­unnar að lág­marka áhættu af fjár­fest­inga­banka­starf­semi alhliða banka. Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður sér­fræð­ingum frá ráðu­neyt­inu, Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og Seðla­banka Íslands.

Nefndir voru kostir og gallar þess að hafa fjár­fest­inga­banka og við­skipta­banka undir sama þaki, en við það skap­ast víxlá­hætta og freistni­vandi stjórn­enda fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna. Hins vegar er stærð­ar­hag­ræði falið í sam­spil­inu sem eykur stöð­ug­leika banka og gerir þjón­ustu þeirra fjöl­þætt­ari. Einnig var tekið fram að hömlur á fjár­fest­inga­banka­starf­semi í alhliða bönkum gætu ýtt undir vöxt skugga­banka­starf­semi.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra, segir ákvörð­un­ina um hvort aðskilja ætti við­skipta­banka og fjár­fest­inga­banka alltaf vera póli­tíska og ekki hlut­verk nefnd­ar­innar. Hlutverk hóps­ins hafi fyrst og fremst verið að leggja fram kosti og galla og athuga hvort aðrar leiðir séu færar. Hins vegar sagð­ist ráð­herra finna fyrir ágætis sam­hljómi innan Alþingis, allir flokkar vilji draga úr áhættu.

Þrjár mögu­legar leiðir um frek­ari kerf­is­breyt­ingar á banka­kerf­inu voru til­kynntar á fund­inum:

  • Fyrsta leiðin felur í sér að byggt verði á þeim kerf­isum­bótum sem nú þegar hafa átt sér stað eftir fjár­mála­hrunið 2008 eða séu nú þegar í þróun. Nokkrar breyt­ingar á lögum um banka­starf­semi séu í far­vatn­inu, þar á meðal nýr reikn­ings­skila­stað­all og end­ur­skoðun á ýmsum Basel-reglum
  • Önnur leiðin er fullur aðskiln­aður við­skipta­banka og fjár­fest­inga­banka að erlendri fyr­ir­mynd. Þar yrðu eigin við­skipti bönnuð ásamt fjár­fest­ingum og lán­veit­ingum til til­tek­inna sér­hæfra sjóða, en starf­semin þó heim­iluð tengdu félagi. Fjár­fest­inga­fyr­ir­tæki þyrftu að upp­fylla var­færnis­kröfur á eigin grund­velli. Tengsl félaga yrðu einnig tak­mörkuð. Tekið var fram að umrædd leið fæli að öllum lík­indum í sér meiri kostnað en hinar leið­irnar vegna eft­ir­lits.
  • Í þriðju leið­inni yrði fjár­fest­inga­banka­starf­semi áfram heim­iluð, að því gefnu að umfang hennar yrði ekki stærra en fyr­ir­framá­kveðið hlut­fall og að áhættu sem af henni stafar verði mætt með full­nægj­andi hætti. Þegar umrætt hlut­fall milli við­skipta­banda og fjár­fest­inga­banka er náð skulu fjár­mála­fyr­ir­tæki skila áætlun um úrbætur eða hætta starf­semi.

Benedikt segir að skip­aður verði starfs­hópur sér­fræð­inga sem muni vinna úr nið­ur­stöðum þess­arar nefndar og leggja nið­ur­stöður sínar fyrir fyrir fyrsta nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár