Sparibaukurinn í útrýmingarhættu

Plast­kort hafa komið í stað spari­bauka og sparn­að­ur­inn er orð­inn að tölum á blaði í stað seðla og smá­myntar. Borgþór Arn­gríms­son kannar hvað hafi orðið um spari­b­auk­inn og hvað tap­ast með útrým­ingu hans.

Útrým­ing­ar­hætta er orð sem alloft sést og heyr­ist í fjöl­miðlum. Iðulega er þá verið að segja frá dýra­teg­undum sem eiga í vök að verj­ast vegna aðgangs­hörku manns­ins eða breyttum aðstæðum í umhverf­inu. En það er fleira sem hverfur vegna breyttra aðstæðna. Spari­bauk­ur­inn er dæmi um slíkt.

Óhætt er að full­yrða að nær öll börn í okkar heims­hluta, og reyndar víðar, hafi átt spari­bauk. Allur gangur hefur hins­vegar verið á því hversu vel hefur gengið að safna í bauk­inn. Á árum áður mátti iðu­lega í dag­blöðum og tíma­ritum sjá myndir af stoltum börnum sem voru komin í bank­ann til að tæma bauk­inn og pen­ing­arnir settir á bók til varð­veislu eða gefnir til góðra verk­efna. Þetta var á þeim árum þegar pen­ingar voru pen­ingar en ekki plast­kort. Á síð­ustu árum hefur verið hart sótt að pen­ing­unum, það er að segja seðlum og mynt. Þetta eru ekki góð tíð­indi fyrir spari­bauk­ana.

Sparigrís – Sparibaukur

Eins og allir vita eru til ótelj­andi útgáfur af því sem við Íslend­ingar köllum ýmist spari­bauk eða spari­grís, hið fyrr­nefnda algeng­ara í dag­legu tali. Hlut­verkið er alltaf hið sama: að geyma pen­inga, seðla og mynt. Þessi söfn­unar­í­lát geta verið lítil eða stór, gerð úr plasti, málmi, leir, postu­líni, gúmmíi og tré svo eitt­hvað sé nefnt. Útlitið er líka marg­vís­legt: fugl, kýr, stíg­vél, póst­kassi, hús, bíll, mat­ar­brauð, hattur o.fl o.fl. Og svo auð­vitað grís. Grís? Af hverju grís og af hverju skyldi hann vera tákn sparn­aðar?

Pygg – Pig bank – Piggy bank – Sparigrís

Vitað er að um margra alda skeið, kannski tvö þús­und ár eða lengur hafa verið til ein­hvers­konar spari­baukar. Minni vit­neskja liggur fyrir um ástæður þess að grís­inn varð eins­konar tákn­mynd geymslu­í­lát­anna. Grísinn var fyrr á öldum í upp­á­haldi hjá fátækum bændum í Evrópu, grís­inn vex hratt og gefur af sér mikið kjöt, kannski er það skýr­ingin. Í Kína hefur grís­inn verið tákn vel­meg­unar og ríki­dæmis, ekki er bein­línis vitað hvers vegna.

[adspot]

Ein hug­mynd um upp­runa spari­gríss­ins er sú að á mið­öldum var tals­vert um að fólk not­aði leir­bauka til að geyma pen­inga í. Ein leir­teg­und sem mikið var notuð í þessu skyni kall­að­ist „pygg“. Í banda­rískri bók „The Book of Answers“ (höf. Carol Bolt) er sett fram sú til­gáta að „pygg“ hafi svo breyst í „pig bank“ og enn síðar í „piggy bank“ eins og spari­bauk­ur­inn er nefndur á ensku. Svín hafa ekki verið hluti hefð­bund­ins búpen­ings íslenskra bænda og þess vegna kannski bauks­heitið Íslend­ingum tamara. En nú á spari­bauk­ur­inn, eða grís­inn, í vök að verj­ast og ekki sjálf­gefið að hann standi á borð­inu í her­bergjum barn­anna, og þyng­ist smám saman.

Plastkortin og símarnir koma í stað peninganna

Á und­an­förnum tveimur ára­tugum eða svo hefur orðið mikil breyt­ing í því sem kalla má greiðslu­fyr­ir­komu­lag. Áður gekk fólk með seðla­veski (sem voru vin­sælar ferm­ing­ar­gjafir) og buddu. Svo komu plast­kortin og þau hafa hægt og hægt rutt seðlum og mynt til hliðar. Hægt og hægt er kannski ekki rétta lýs­ingin því þessi breyt­ing hefur í raun gerst á ótrú­lega skömmum tíma og er ekki lokið. Margir muna að þegar greiðslu­kortin komu fram varð kor­t­eig­and­inn að skrifa undir í hvert skipti sem hann innti greiðslu af hendi, svo komu hin svo­nefndu PIN-númer og í dag er nóg að bera kortið upp að eins­konar skynjara til að borga ef um er að ræða lágar upp­hæðir. Síminn er svo nýjasta greiðslu­tækið.

Þessar breyt­ingar sem hér er lýst hafa gert það að verkum að notkun hefð­bund­inna pen­inga, seðlum og mynt, hefur snar­minnkað. Í nýlegri könnun eins af dönsku dag­blað­anna kom fram að þrír af hverjum fjórum sem spurðir voru sögð­ust aldrei ganga með reiðufé á sér og flestir þeirra sem á annað borð voru með pen­inga í budd­unni sögð­ust aldrei nota þá, það væri fyrst og fremst vani að vera með seðla í vesk­inu. Nokkuð er líka farið að bera á því í mörgum löndum, einkum í Evrópu, að versl­anir og þjón­ustu­fyr­ir­tæki taki hrein­lega ekki við reiðufé. Kaupmenn rök­styðja þetta með því að mik­ill kostn­aður fylgi því því að vera að ves­en­ast með (jafn­vel skítuga) seðla og smá­pen­inga, fyrir utan að ekki er hægt að ræna „kass­anum“ þar sem eng­inn „kassi“ er. Og er þetta ekki bara gott og blessað? Jú, myndi margur segja. En, eins og stundum er sagt „engin er rós án þyrna“ og ef spari­bauk­arnir, tala nú ekki um spari­grís­irnir, mættu mæla tækju þeir ekki undir með já fólk­inu. Þetta ógnar nefni­lega til­veru þeirra. Amma og afi og frænka og frændi spari­bauks­eig­and­ans eru hrein­lega ekki með neina pen­inga í vös­unum til að láta detta í bauk­inn þegar þau koma í heim­sókn. Enginn amma og eng­inn afi segir við barna­barnið „ég milli­færi svo­lítið inn á banka­bók­ina þína þegar ég kem heim“. En það er líka annað varð­andi spari­bauk­ana.

Sparibaukurinn er kennslutæki

Flestir, og það gildir bæði um börn og full­orðna, líta kannski ekki á spari­b­auk­inn sem kennslu­tæki í efna­hags­málum og með­ferð fjár­muna. Í nýlegri umfjöllun danska dag­blaðs­ins Börsen voru þrír sér­fræð­ingar sem blaðið ræddi við sam­mála um að spari­bauk­ur­inn hefði í ára­tugi verið það verk­færi sem kennt hefði börnum sam­hengið milli tekna og gjalda, ef svo mætti að orði kom­ast. Sér­fræð­ing­arnir bentu á að börn skildu vel að tómur spari­baukur þýddi að engir pen­ingar væru til en inni­stæðu­laust greiðslu­kort segði hvorki eitt né neitt. Bankar og spari­sjóðir hafa reynt að mæta þess­ari breyt­ingu með eins konar raf­rænum spari­baukum en áður­nefndir við­mæl­endur Börsen voru sam­mála um að þeir kæmu ekki, að minnsta kosti enn, í stað hinna hefð­bundnu spari­bauka. Danskir stærð­fræði­kenn­arar hafa bent á að pen­ingar hafi gegnum tíð­ina verið mik­il­vægt kennslu­tæki, börn eigi mun auð­veld­ara með að læra leynd­ar­dóma stærð­fræð­innar þegar þau hafa hlut­ina (pen­ing­ana) í hönd­unum en ekki bara tölur á blaði. Einn kenn­ari orð­aði það svo „ef pen­ing­arnir hverfa verðum við bara að treysta á Matador-spilið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár