Apple „breytti heiminum“ í vikunni

Þátta­stjórn­endur Tækni­varps­ins segja Apple hafa „breytt heim­inum“ í vik­unni þegar fyr­ir­tækið kynnti nýjar Mac tölvur með ARM örgjörvum.

Apple kynnti nýjar Mac tölvur með ARM örgjörvum á sér­stökum Mac-við­burði þann 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Tækni­varpið fjall­aði ítar­lega um við­burð­inn í hlað­varps­þætti sem birt­ist í morgun á Kjarn­anum.

Fram kemur í þætt­inum að ARM örgjö­farnir þýði meira afl, minni hita, lengri raf­hlöðu­end­ingu og miklu betri skjá­stýr­ingu. Apple byrjar á ódýr­ari tölvunum, Macbook Air, Macbook Pro 13 tveggja porta og Mac Mini. Tölv­urnar eru allar vænt­an­legar á þessu ári og eru strax komnar í sölu í Banda­ríkj­unum. Allar tölv­urnar við­halda að lang­mestu leyti fyrri hönnun og allar fá þær „M1“ örgjörvann.

M1 örgjörvinn er byggður á ARM hönnun og er með 8 kjarna örgjörva, 7-8 kjarna skjá­stýr­ingu, 16 kjarna fyrir véla­nám og samnýtt vinnslu­minni, að því er fram kemur hjá Tækni­varp­inu.

[links]Enn fremur greina þátta­stjórn­endur Tækni­varps­ins frá því að Macbook Air fái aðeins upp­færðan skjá og nýja FN-takka (Mic mute, Spotlight og Do Not Disturb). Hún sé 3,5x hrað­ari en fyrri Air tölvan og end­ist í 18 klukku­tíma í stað 12. Hún sé viftu­laus, hljóð­lát og fær betri hljóð­nema.

Macbook Pro 13 fær betri hljóð­nema, bætta vef­mynda­vél og heldur sinni stöku viftu. Með vift­unni getur hún keyrt M1 aðeins hraðar og er hún 2,8 sinnum hrað­ari en fyrri Pro 13. tölvan. Hleðslan end­ist í 20 tíma sem er það lengsta á far­tölvu frá Apple.

Mac mini er eina tölvan sem verður áfram í boði með Intel örgjörva, og er einnig eina tölvan sem missir eitt­hvað. Intel tölvan býður upp á meira minni og mögu­leik­ann á 10 gíga­bita net­korti. Mac mini með M1 örgjörva býður mest upp á 16GB en er mun hrað­ari og býður upp á betri skjá­stýr­ingu.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknivarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár