Öll erum við afsprengi aðstæðna okkar

Elspa – saga konu, er engin hetju­saga, í henni er eng­inn full­kom­inn endir. Þrek­virki Elspu er ein­fald­lega að taka ábyrgð á lífi sínu og reyna að læra af því.

Bók

Elspa

Saga konu
Höfundur Guðrún Frímannsdóttir
Sögur útgáfa
400 blaðsíður
Gefðu umsögn

Í bók­inni Elspa – saga konu, ritar Guðrún Frí­manns­dóttir félags­ráð­gjafi harm­ræna ævi­sögu Elspu Sigríðar Salberg Olsen. Bókin er gefin út af Sögum útgáfu.

Elspa ólst upp á Akureyri ásamt stórum systk­ina­hópi, þar sem fátækt og alkó­hól­ismi setja svip sinn á upp­eldið. Hún lýsir hvernig henni var þrælað út í lím­verk­smiðju á barns­aldri, fékk varla að ganga í skóla og þurfti oft að sækja laun sjó­manns­ins föður síns fyr­ir­fram, svo hann drykki þau ekki út í landi. 

Þegar Elspa full­orðn­ast tekur hún með sér þau verk­færi sem henni voru gefin, hún sækir í óheil­brigð sambandsmynstur og finnur enga ró í heim­il­is­lífi. Hún eign­ast níu börn, sem tvö verða and­vana fædd og hin sjö ýmist eru fóstruð, a.m.k. tíma­bundið, eða ætt­leidd að fullu. Hún ræður ekki við móð­ur­hlut­verkið í því and­lega ástandi sem hún er í, og er …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÖG
    Magni Örvar Guðmundsson skrifaði
    Mjög góð.
    0
  • Hver er sinnar gæfusmiður en stundum verða aðstæður sem stefna oft annað en vonast er til og líka alveg óviðráðanleg rótlaust er reikult þangið
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár