Brynjar kannast ekkert við rasisma hjá Piu

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir Danska þjóð­ar­flokk­inn dæmi­gerð­ann félags­hyggju­flokk sem setji vel­ferð­ar­mál í for­gang, einkum mál­efni aldr­aðra og öryrkja. Barna­legir vinstri menn hafi útmálað Piu Kjærs­gaard sem útlend­inga­hat­ara.

Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að mjög athygl­is­vert hafi verið að fylgj­ast með upp­á­komum og umræð­unni í kjöl­far heim­sóknar for­seta danska þings­ins, Piu Kjærs­gaard. Hann segir að margir vinstri menn, og einkum þeir sem honum finnst „barna­leg­astir“ hafi útmálað Piu sem útlend­inga­hat­ara og and­lit fas­ism­ans í Evrópu, en ekk­ert vitað hver hún var.

[links]„Það kann að vera að margir vinstri menn telji rétt að ríki eigi að vera opin gestum og gang­andi með litlum eða engum tak­mörk­unum,“ skrifar Brynjar og bætir við að margir í Danmörku og víðar telji ekki frma­hjá því kom­ist að herða inn­flytj­enda­lög­gjöf­ina eftir „lausa­tök síð­ustu ára­tug­ina“.

„Sú afstaða hefur ekk­ert með hatur á útlend­ingum að gera. Ekkert í stefnu danska þjóð­ar­flokks­ins eða mál­flutn­ingi Piu bendir til slíks hat­urs. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn er dæmi­gerður félags­hyggju­flokkur sem setur vel­ferð­ar­mál í for­gang, einkum mál­efni aldr­aðra og öryrkja.“

Brynjar segir að lokum að til séu þeir sem hati þá sem eru ósam­mála þeim. Vilji helst að skoð­anir þeirra verði gerðar refsi­verðar og reka eigi þá úr vinnu og helst úr sam­fé­lag­inu. „Það hljómar soldið fasískt“

Hér er stöðu­upp­færsla Brynjars í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár