Lilja fundaði með aðstoðarmönnum og tveimur lögmönnum áður en hún áfrýjaði

Stuttu eftir að hér­aðs­dómur hafði hafnað því að ógilda nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála um að Lilja D. Alfreðs­dóttir hefði brotið jafn­rétt­islög boð­aði hún fjóra ein­stak­linga á fund. Þar var tekin ákvörðun um að áfrýja nið­ur­stöð­unni.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áætlað er að kostn­aður vegna mála­rekst­urs Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, verði um tíu millj­ónir króna. Hafdís Helga sótti um stöðu ráðu­neyt­is­stjóra í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu haustið 2019 en var ekki metin ein af fjórum hæf­ustu umsækj­end­unum. Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­rit­ari í Kópavogi, var skip­aður í emb­ættið. Hafdís Helga kærði ráðn­ing­una til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála og vann. Lilja stefndi henni í kjöl­farið en hér­aðs­dómur hafn­aði mála­til­bún­að­inum í mars síð­ast­liðnum. Lilja ákvað sam­dæg­urs að áfrýja nið­ur­stöð­unni til Lands­réttar.

Til við­bótar við ofan­greindan kostnað vegna mála­rekst­urs­ins kost­aði það rík­is­sjóð fimm millj­ónir króna að skipa í emb­ættið, en uppi­staðan í þeim kostn­aði var vegna starfa hæf­is­nefndar.

Ákvörðun um að áfrýja nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms til Lands­réttar var tekin á fundi Lilju með tveimur aðstoð­ar­mönnum hennar og tveimur lög­mönnum, sem unnið höfðu umdeilt lög­fræði­á­lit um málið, strax eftir að nið­ur­staðan lá fyrir. Rúmum fjórum tímum eftir dóms­upp­sögu hafði ráð­herra til­kynnt að nið­ur­stöð­unni yrði áfrýjað. Á áður­nefndum fundi kom einnig fram „sú stað­fasta skoðun þeirra sem komu að skipan í starf ráðu­neyt­is­stjóra að rétt hefði verið staðið að málum og jafn­rétt­islög hefðu ekki verið brotin.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar, um málið sem birt var á vef Alþingis í gær.

Byggðist á lögfræðiálitum

Páll, sem er flokks­bróðir Lilju og hefur gegnt fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í gegnum tíð­ina, var skip­aður í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra 1. nóv­em­ber 2019. Hafdís Helga kærði ráðn­ing­ar­ferlið í kjöl­farið til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála sem komst að því í júní 2020 að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög er hún skip­aði Pál. Hún hefði van­­metið Haf­­dísi Helgu í sam­an­burði við Pál. Til þess að fá þessum úrskurði hnekkt þurfti ráð­herra að höfða mál gegn Hafdísi Helgu per­sónu­lega og það ákvað Lilja að gera. Um er að ræða ein­staka ákvörðun.

[adspot]Ákvörðun Lilju um að stefna Hafdísi Helgu til að fá úrskurð­inum hnekkt byggð­ist á lög­fræði­á­litum sem ráð­herr­ann afl­aði sér eftir að nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar lá fyrir. Þau voru sögð benda til laga­legra ann­marka í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. Kjarninn óskaði eftir þessum lög­fræði­á­litum frá ráðu­neyt­inu sama dag og ljóst var að málið stefndi fyrir dóm­stóla, en þau reynd­ist ómögu­legt að fá. Umrædd lög­fræði­á­lit voru samin af lög­mönn­unum Víði Smára Petersen og Guðjóni Ármanns­syni. Víðir Smári rak svo málið fyrir hönd mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrir dómi eftir að hafa verið settur rík­is­lög­maður í mál­inu.

Úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála stað­festi synjun ráðu­neyt­is­ins á gagna­beiðni Kjarnans í lok sum­ars 2020, en nið­ur­staðan var sú að bréfa­skipti hins opin­bera við sér­fróða aðila í tengslum við rétt­ará­grein­ing eða til afnota í dóms­máli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað skuli und­an­þegin upp­lýs­inga­lögum.

Fundaði með fjórum

Þann 5. mars 2021 var greint frá því að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefði ekki fall­ist á kröfu Lilju um ógild­ingu dóm­ur­inn var kveð­inn upp á tólfta tím­anum, fyrir hádegi. Rúmum fjórum klukku­tímum síðar hafði ráð­herra tekið ákvörðun um að áfrýja dómnum.

í fyr­ir­spurn sinni spurði Þorbjörg Helga um hvaða for­sendur hefðu legið að baki ákvörðun Lilju að áfrýja dómnum, hvaða vinna hefði farið fram í ráðu­neyt­inu við að greina nið­ur­stöður hans og við hverja ráð­herr­ann hefði ráð­fært sig áður en ákvörðun um áfrýjun var tekin.

[links]Í svari Lilju segir að um klukkan 12 þennan dag hafi fundur haf­ist. Á honum hafi verið, auk hennar, Víðir Smári Petersen, aðstoð­ar­menn hennar Milla Ósk Magn­ús­dóttir og Hrannar Pét­urs­son og Guðjón Ármanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður. „Á þeim fundi var farið yfir for­sendur hér­aðs­dóms og málið greint með til­liti til þeirra sjón­ar­miða sem upp­haf­lega lágu til grund­vallar máls­höfð­unar vegna úrskurðar kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.“

Í svar­inu segir að Lilja hefðu áður aflað lög­fræði­legra álits­gerða og að þau sjón­ar­mið sem þar komu fram ættu enn við um ákvörðun um áfrýjun máls­ins. „Á áður­nefndum fundi kom einnig fram sú stað­fasta skoðun þeirra sem komu að skipan í starf ráðu­neyt­is­stjóra að rétt hefði verið staðið að málum og jafn­rétt­islög hefðu ekki verið brotin. Talið var mik­il­vægt að eyða öllum vafa um efn­is­at­riði máls­ins og er varða ákveðin grund­vall­ar­at­riði við skipan í opin­ber emb­ætti. Er þá meðal ann­ars vísað til þess hvort ráð­herra skuli fara að ráðum hæfn­is­nefndar eða víkja frá nið­ur­stöðu hennar, án þess að ríkar ástæður séu fyrir hendi.“

Kostn­að­ur­inn við rekstur máls­ins fyrir hér­aðs­dómi nam alls 8,7 millj­ónum króna. Áætla er að kostn­aður vegna áfrýj­unar til Lands­réttar verði á bil­inu 900 þús­und krónur til 1,2 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Því má ætla að kostn­að­ur­inn verði í kringum tíu millj­ónir króna.

Ráðuneytið var samþykkt útvistun

Þorbjörg Sigríður spurði einnig um ástæður þess að mál­inu hefði verið útvi­stað til Víðis Smára en ekki rekið af rík­is­lög­manni. Hún vildi fá að vita hvort ráð­herr­ann hafi sjálfur komið að þeirri ákvörðun að Víðir Smári hafi fengið málið í sínar hendur.

Í svar­inu segir að rík­is­lög­maður hefði tjáð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu þann 19. júní í fyrra að hann teldi ástæðu til þess að nýta heim­ild í lögum til að fela lög­manni utan emb­ætt­is­ins með­ferð máls­ins fyrir dómi. „Ástæða þess væri einkum sú að hlut að máli ætti skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti en sam­kvæmt for­seta­úr­skurði fer það ráðu­neyti með mál­efni emb­ættis rík­is­lög­manns. Embætti rík­is­lög­manns fékk kynn­ingu á lög­fræði­á­liti Víðis Smára Petersen og Guðjóns Ármanns­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manna og þar sem óska þurfti eftir flýti­með­ferð og þess að lög­menn­irnir hefðu kynnt sér málið ítar­lega stóðu til þess rök að fela Víði Smára Petersen með­ferð máls­ins fyrir dómi fyrir hönd mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra vegna íslenska rík­is­ins. Ráðu­neytið var sam­þykkt þess­ari ráð­stöfun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár