Mynd: Bára Huld Beck

453 einstaklingar og lögaðilar eiga fleiri en sex íbúðir á Íslandi

Á fimmta þús­und ein­stak­lingar og lög­að­ilar eiga fleiri en eina íbúð á Íslandi. Framboð íbúða er í lág­marki og verð þeirra hefur hækkað gríð­ar­lega.

Alls eiga 71 ein­stak­lingar og 382 lög­að­ilar fleiri en sex íbúðir, 155 ein­stak­lingar og 101 lög­að­ilar eiga fimm íbúðir og 579 ein­stak­lingar og 165 lög­að­ilar eiga fjórar íbúðir. Fjöldi þeirra ein­stak­linga sem eiga þrjár íbúðir er 2.974 og fjöldi lög­að­ila sem eiga sama magn íbúða er 285. Þá eiga 16.501 ein­stak­lingur og 688 lög­að­ilar tvær íbúðir.

Þetta kemur fram í svari Þjóð­skrár við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Vert er að taka fram að ein­stak­lingur eða lög­að­ilar geta verið eig­endur að sömu eign­unum.

Þjóðskrá hóf að birta upp­lýs­ingar um eign­ar­hald íbúða í síð­asta mán­uði. Í þeim tölum sem stofn­unin birtir á heima­síðu sinni má sjá hversu margar þeirra þeirra 148.425 íbúða sem telj­ast full­búnar á Íslandi voru í eigu ein­stak­linga eða lög­að­ila sem áttu bara eina íbúð og hversu margar voru í eigu aðila sem áttu fleiri en eina íbúð.

Mikil breyting frá því fyrir hrun

Í töl­unum má sjá að 35,1 pró­sent íbúða var í eigu ein­stak­linga eða lög­að­ilar sem áttu fleiri en eina íbúð, alls 52.079 íbúðir. Það hlut­fall hefur hald­ist nokkuð stöðugt á síð­ustu árum en hefur hækkað skarpt frá því sem var fyrir 15 árum, þegar 28,5 pró­sent íbúða voru í eigu aðila sem áttu fleiri en eina íbúð.

Íbúðir sem eru í eigu ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð, og þar af leið­andi eignir umfram þá sem þeir búa í, eru nú 30.713. Þeim hefur fjölgað um 9.031 frá árinu 2006, eða 41 pró­sent. Ef horft er lengra aft­ur, til árs­ins 2000, hefur þeim fjölgað um 13.838, eða 82 pró­sent.

Til sam­an­burðar hefur þeim ein­stak­lingum sem eiga eina íbúð fjölgað um tólf pró­sent frá árinu 2006 og um tæp­lega 22 pró­sent frá alda­mót­um.

Íbúðir sem eru í eigu lög­að­ila sem eiga fleiri en eina íbúð, til að mynda leigu­fé­laga, eru nú 21.366 tals­ins. Árið 2006 voru þær 12.503 og því hefur þeim fjölgað um 71 pró­sent á 15 árum. Frá ald­ar­mótum hefur þeim fjölgað um 12.213, eða 133 pró­sent.

Hátt í fimm þúsund kennitölur eiga fleiri en tvær íbúðir

Eftir að Þjóðskrá hóf að birta töl­urnar um þá sem áttu fleiri en eina íbúð óskaði Kjarninn eftir því að fá upp­lýs­ingar um frekara nið­ur­brot á þeim þannig að hægt væri að sjá hversu margir ættu fleiri en tvær íbúðir.

Í svörum stofn­un­ar­innar kom fram að 3.779 ein­stak­lingar ættu slíkt magn af íbúðum og 933 lög­að­ilar. Alls áttu 226 ein­stak­lingar fleiri en fimm íbúðir og 483 lög­að­ilar.

Ljóst er þó að í ein­hverjum til­vikum eiga ein­stak­lingar og lög­að­ilar sömu íbúð­ina saman. Það getur til að mynda verið þannig að ein­stak­lingur eigi hlut í henni á eigin kenni­tölu en svo á lög­að­ili, sem sami ein­stak­lingur getur sann­ar­lega átt en hefur aðra kenni­tölu, átt það sem upp á vantar í eign­inni.

Þannig eru fjöldi kennitalna sem eiga íbúðir á Íslandi 186.327 tals­ins en full­búnar íbúðir á land­inu eru, líkt og áður sagði, 148.425. Af því má ráða að 37.902 íbúðir séu í eigu fleiri en eins aðila.

Þær kenni­tölur sem eru skráðar fyrir fleiri en einni íbúð eru alls 21.901 en fjöldi íbúða sem eru í eigu aðila sem eiga fleiri en eina íbúð eru 52.079.

Greiðslu­byrði sem telj­ast má íþyngj­andi

Í árlegri könnun Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) á íslenska leigu­mark­aðn­um, sem fram­kvæmd var frá júní til sept­em­ber 2021 og nær til ein­stak­linga 18 ára og eldri sem eru á leigu­mark­aði á land­inu öllu, kom fram að hlut­fall ráð­stöf­un­ar­tekna allra leigj­enda sem fer í leigu sé nú 45 pró­sent. Það var 40 pró­sent 2019. Sam­kvæmt HMS gefur það hlut­fall til kynna mjög mikla greiðslu­byrði að með­al­tali sem telj­ast megi íþyngj­andi. Í umfjöllun um könn­un­ina er þó tekið fram að aukn­ing­una á hlut­fall­inu megi að hluta til skýra með því að tekju- og eigna­meiri leigj­endur náðu að kom­ast af leigu­mark­aði og yfir í eigið hús­næði á tíma­bil­inu.

Í sömu könnun kom fram að leigj­endur hjá einka­reknum leigu­fé­lögum og ein­stak­lingum á almennum mark­aði voru með næst­hæsta hlut­fall þeirra sem greiddu 70 pró­sent eða meira af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu, eða 13 pró­sent. Ein­ungis leigj­endur á stúd­enta­görð­um, að uppi­stöðu náms­menn með lágar tekj­ur, voru með hærra hlut­fall þeirra sem greiddu svo stóran hluta ráð­stöf­un­ar­tekna í leigu, eða 15 pró­sent.

Hlut­fall þeirra sem greiddi helm­ing eða meira af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu var hins vegar lang­hæst hjá einka­reknum leigu­fé­lög­unum, sam­tals 44 pró­sent. Til sam­an­burðar var það hlut­fall 26 pró­sent hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og 23 pró­sent hjá þeim sem leigðu af ætt­ingjum eða vin­um.

Kalla eftir stór­átaki í hús­næð­is­málum

Í umsögn sinni um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp kallar Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) eftir stór­átaki í hús­næð­is­málum og lýsir yfir veru­legum von­brigðum með litla umfjöllun og skort á aðgerðum til að bregð­ast við stöð­unni á hús­næð­is­mark­aðn­um. Þar segir að íslenskur leigu­mark­aður sé óskipu­lagður og hlut­fall óhagn­að­ar­drif­ins hús­næðis lít­ið, leigj­endur njóti tak­mark­aðrar verndar og hafa veika samn­ing­stöðu. Í yfir­lýs­ingu stjórn­valda til stuðn­ings kjara­samn­ingum 2019 hafi verið boð­aðar umbóta­að­gerðir á leigu­mark­aði sem ekki hafi verið fylgt eft­ir.

ASÍ segir frum­varpið gera ein­ungis ráð fyrir 2,9 pró­sent aukn­ingu í hús­næð­is­stuðn­ing og að ekki séu gerðar breyt­ingar á fyr­ir­liggj­andi for­sendu um fjár­mögnun upp­bygg­ingu óhagn­að­ar­drif­inna leigu­í­búða, þrátt fyrir að allir stjórn­mála­flokkar hafi verið sam­mála fyrir kosn­ingar um þörf­ina á auknum fram­lögum til almenna íbúða­kerf­is­ins. „Fyr­ir­séð er að leigu­mark­aður verði fyrir áhrifum hækk­unar hús­næð­is­verðs, auk­ins hag­vaxt­ar, fjölg­unar ferða­manna og auknum búferla­flutn­ing­um. Leigu­verð hækk­aði þannig umfram verð­lag á árunum 2011- 2019, og umfram vísi­tölu launa.

Sam­kvæmt tölum frá OECD sem vitnað er í í umsögn ASÍ eru um 43 pró­sent af leigj­endum í neðsta tekju­fimmt­ungi að glíma við íþyngj­andi hús­næð­is­kostn­að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár