Læknafélagið leggst gegn tillögu um skoðanakönnun um dánaraðstoð

Einhliða og bjöguð umræða, keyrð áfram af þeim sem helst vilja beita sér fyrir lög­leið­ingu dán­ar­að­stoðar, er ástæða þess að Lækna­fé­lag Íslands seg­ist ekki telja tíma­bært að gera nýja könnun á hug heil­brigð­is­starfs­fólks til dán­ar­að­stoðar.

Læknafélag Íslands telur umræðuna bæði bjagaða og einhliða, þegar að dánaraðstoð kemur. Mynd úr safni.
Lækna­fé­lag Íslands telur umræð­una bæði bjag­aða og ein­hliða, þegar að dán­ar­að­stoð kemur. Mynd úr safni. Mynd: Birgir.

Lækna­fé­lag Íslands telur umræðu um dán­ar­að­stoð hér á landi hafa verið bæði „ein­hliða og bjag­aða“ og seg­ist af þeim sökum ekki geta stutt við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis heil­brigð­is­ráð­herra verði falið að kanna afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til dán­ar­að­stoðar með skoð­ana­könnun.

Félagið leggst gegn því að skoð­ana­könnun af þessu tagi verði gerð fyrr en umræðan um dán­ar­að­stoð verði „víð­tæk­ari og almenn­ari“ og „ekki knúin fram af þeim sem harð­ast vilja beita sér fyrir lög­leið­ingu dán­ar­að­stoðar,“ sam­kvæmt því sem segir í umsögn félags­ins til Alþingis, en þar er þings­á­lykt­un­ar­til­lagan, sem þing­menn fimm flokka leggja nafn sitt við, til umræðu í vel­ferð­ar­nefnd.

Samkvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni á mark­miðið með gerð skoð­ana­könn­un­ar­innar að vera að fá sem gleggsta mynd af afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til álita­efn­is­ins, sem hafi „fengið meiri opin­bera umræðu en áður eftir að skýrsla heil­brigð­is­ráð­herra um dán­ar­að­stoð kom út, og kanna á hlut­lausan og vand­aðan hátt hvort og hvernig afstaða heil­brigð­is­starfs­fólks hefur breyst svo unnt sé að vinna málið áfram.“[links]

Lækna­fé­lagið hefur verið gagn­rýnið á nálgun stjórn­valda á þessi mál. Í umsögn þess til vel­ferð­ar­nefndar er vísað til þess að starfs­menn líkn­ar­ráð­gjafateymis Land­spít­ala gerðu miklar athuga­semdir við skýrslu heil­brigð­is­ráð­herra um dán­ar­að­stoð sem birt var síð­asta haust og köll­uðu eftir því að skýrslan yrði dregin til baka. Meðal ann­ars var gagn­rýnt að líkn­ar­með­ferð væri sögð ein teg­und dán­ar­að­stoðar í skýrslu heil­brigð­is­ráð­herra.

Tungutakið ásteytingarsteinn

Auk þess komu starfs­menn líkn­ar­ráð­gjafateym­is­ins á fram­færi athuga­semdum við tungu­takið, en orðin dán­ar­að­stoð og líkn­ar­dráp eru bæði notuð í íslensku yfir sama hlut­inn, enska hug­takið eut­hanasia.

„Orðið er loðið og greini­lega ætlað til þess að nota „fal­legra orð“ en líkn­ar­dráp sem hingað til hefur verið notað. Þetta nýyrði þarf meiri umræðu áður en það er notað í opin­berum skýrslur. Lífsrof sam­an­ber þung­un­ar­rof væri ef til vill orð sem ætti að hug­leiða,“ sagði í umfjöllun starfs­manna líkn­ar­ráð­gjafateymis, sem fjallað var um á vef Lækna­fé­lags­ins og félagið vísar til í umsögn sinni.

Í umsögn Lækna­fé­lags­ins er líka vísað til greinar Jóns Snædal fyrr­ver­andi for­seta Alþjóða­sam­taka lækna sem birt­ist í Kjarn­anum síð­asta haust. Honum var orða- og hug­taka­notk­unin einnig ofar­lega í huga.

[adspot]

„Þegar ekki er góð sam­staða um hug­taka­notkun verður að taka allar skoð­ana­kann­anir með fyr­ir­vara, ekki síst við sam­an­burð milli landa og milli tíma. Þetta á við hvort sem kann­anir bein­ast að almenn­ingi eða heil­brigð­is­starfs­fólki. Ef líkn­ar­með­ferð er talin vera hluti af dán­ar­að­stoð er t.d. lík­legt að 95-100% séu fylgj­andi dán­ar­að­stoð,“ sagði Jón í grein sinni, sem var svar við grein tveggja stjórn­ar­manna í Lífs­virð­ingu, félagi um dán­ar­að­stoð.

Stjórn­ar­menn­irnir, Bjarni Jónsson og Sylviane Lecoultre, höfðu skömmu áður skrifað í Kjarnann og sagt það af og frá að nota orðið líkn­ar­dráp. „Rétt þýð­ing er „góður dauð­i“. Gæti verið að þeir sem nota líkn­ar­dráp í mál­flutn­ingi sínum geri það í þeim til­gangi að setja það í nei­kvæða merk­ingu?“ sagði í grein þeirra.

Flutn­ings­menn þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar vilja að gerð verði ný skoð­ana­könnun og segj­ast telja vís­bend­ingar um að afstaða heil­brigð­is­starfs­fólks til þess­ara mála hefði breyst, frá því að síð­asta könnun var gerð árið 2010. Sam­kvæmt rann­sóknum og frétta­flutn­ingi frá Norð­ur­löndum á und­an­förnum árum mætti til dæmis greina að afstaða heil­brigð­is­starfs­fólk hefði „færst meira og meira í átt til frjáls­lyndis á síð­ustu 10 árum.“

Lækna­fé­lag Íslands telur þó ekki rétt, á þessum tíma­punkti, að kanna hvar við­horfin standa hér­lendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár