Ásmundur Einar: Launahækkanir í efstu lögunum eru úr öllum takti

Ásmundur Einar Daðason ræddi um hátekju­skatt, end­ur­reisn bóta­kerfis og allt of miklar launa­hækk­anir í efstu lög­unum í við­tali í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut.

„Stað­reyndin er sú að þær launa­hækk­anir sem við höfum verið að sjá í efstu lög­unum, og kannski mest á almenna mark­aðnum sem er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða[...]að launa­hækk­anir þar eru úr öllum takti. Ef við sjáum ekki að menn geti setið á sér þar á næstu árum þá er rosa­lega erfitt að rétt­læta það niður allan stig­ann að þetta sé ekki með þessum hætti.“

[links]Þetta er meðal þess sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sagði

Í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við hann í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dags­kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Ásmundur Einar vakti nýverið athygli fyrir að segja að hann hefði það á til­finn­ing­unni að hér byggju tvær þjóðir en ekki ein þegar hann skoð­aði launa­upp­bygg­ingu þjóð­ar­innar. Þörf væri á því að breyta skatt­kerf­inu, meðal ann­ars með hátekju­sköttum. Þegar Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var spurð út í áform um álagn­ingu hátekju­skatt sagði hún að umræður um slíkan væru ekki hafnar og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði slíkar til­lögur ekki vera á borð­inu.

[adspot]Aðspurður um þessi atriði, og þessar mis­mun­andi fram­setn­ingar ráða­manna, sagði Ásmundur Einar að það hafi verið vinna í gangi um hvernig skatta- og bóta­kerf­inu verði breytt. „„Ég bind bara vonir við það að menn geti í sam­ein­ingu tekið á þess­ari þróun sem verið hefur verið hér í sam­fé­lag­inu.“

Ásmundur Einar segir einnig að það sé vilji til að end­ur­reisa bóta­kerfin hér­lendis og þar með auka tekju­jöfn­un­ar­hlut­verk rík­is­sjóðs. „

„Það er vilji til þess og ég held að það hafi komið skýrt fram í þeim skrefum – þó mönnum þyki þau ekki stór – sem stigin verða við gerð fjár­laga­frum­varps næsta árs þar sem verið er bæði að gera breyt­inga á skatt­þrep­unum og að hækka barna­bæt­urnar.

Það er í gangi vinna við end­ur­skoðun á skatta- og bóta­kerf­inu á milli allra hlut­að­eig­andi ráðu­neyta. Sá hópur hefur meðal ann­ars átt fundi með aðilum vinnu­mark­aðar til þess að átta sig á því hvernig umræður munu þró­ast þar. Ég held að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að nið­ur­staðan úr þessu rími við þá nið­ur­staða sem hugs­an­lega geti orðið á milli aðila innan vinnu­mark­að­ar­ins.“

Hægt er að horfa á við­talið við Ásmund Einar í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár